Neyðarástandi lýst yfir í Bretlandi: „Íslensk stjórnvöld ættu hiklaust að lýsa yfir neyðarástandi“

Umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur segir stjórn­völd eiga að lýsa yfir neyð­ar­á­standi. Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík og bæj­ar­stjór­inn á Akureyri úti­loka ekki slíkar aðgerðir.

Neyðarástandi lýst yfir í Bretlandi: „Íslensk stjórnvöld ættu hiklaust að lýsa yfir neyðarástandi“
Jeremy Corbyn Formaður Verka­manna­flokks­ins segir yfir­lýs­ingu breska þings­ins um neyð­ar­á­stand í lofts­lags­málum vera sögu­lega stund.

Breska þingið sam­þykkti í gær að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í land­inu vegna hlýn­unar jarðar. „Söguleg stund“ sagði Jeremy Corbyn, for­maður Verka­manna­flokks­ins. Ákvörð­unin er ekki bind­andi fyrir rík­is­stjórn­ina. Litið er á hana sem tákn­rænan gjörn­ing og von­ast til að hún verði hvatn­ing fyrir rík­is­stjórnir um allan heim til að lýsa yfir lofts­lags­neyð. Umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur segir að íslensk stjórn­völd eigi hik­laust að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna lofts­lags­breyt­inga. Borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík og bæj­ar­stjór­inn á Akureyri úti­loka ekki að til slíkra aðgerða verði gripið hér.

Neyðarástandi lýst í 500 borgum og bæjum

Jeremy Corbyn, for­maður Verka­manna­flokks­ins sendi í vik­unni frá sér mynd­band með yfir­lýs­ingu til að vekja athygli á því að hann hygð­ist fara fram á það við neðri deild þings­ins að neyð­ar­á­standi yrði lýst yfir í land­inu vegna hlýn­unar jarðar og að taf­ar­laust yrði haf­ist handa við að draga veru­lega úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Í mynd­band­inu sem Corbyn deildi á sam­fé­lags­miðlum sagði hann að miðað við þróun allra síð­ustu ára væri rök­rétt að gera ráð fyrir að hita­stig jarðar hækki um 4 gráður frá því sem það var fyrir iðn­bylt­ingu, og því ekki aðeins um lofts­lags­breyt­ingar að ræða heldur lofts­lags­neyð.

Corbyn lagði svo í gær fram til­lögu þess efnis að þingið lýsti yfir lofts­lags­neyð í land­inu og sköp­uð­ust miklar umræður meðal þing­manna um málið. Flestir lýstu áhyggjum af stöðu mála. Michael Gove, umhverf­is­ráð­herra Bret­lands sagði að Bretum hefði tek­ist að draga meira úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda en átta stærstu iðn­ríki heims (G8) Aðspurður hvort rík­is­stjórnin væri að gera nóg til að draga nægi­lega úr losun til að koma í veg fyrir alvar­legar afleið­ingar af völdum hlýn­unar jarðar, sagði Gove að svo væri ekki, rík­is­stjórnin þyrfti að gera enn meira til að ná mark­miðum sínum. Hann studdi ekki til­lögu Verka­manna­flokks­ins í gær.

„Þá daga sem við sofum á verð­inum hlýnar jörðin sem svo leiðir til ham­fara sem ekk­ert okkar vill upp­lifa.“

Bretland er fyrsta landið til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi af völdum lofts­lags­breyt­inga. Hins vegar hafa yfir­völd í um 500 bæjum, þorpum og borgum í Bret­landi, Kanada, Sviss, Banda­ríkj­unum og Ástralíu lýst yfir neyð­ar­á­standi síð­ustu mán­uði. Þeirra á meðal eru London og Manchester í Englandi og Vancouver í Kanada. Talið er að enn fleiri eigi á næst­unni eftir að sam­þykkja að lýsa yfir neyð­ar­á­standi.

Skýrslan sem vakti fólk af værum blundi

„Lofts­lags­breyt­ing­arnar eru hrað­skreiðar en við erum í hæga­gangi. Við erum að renna út á tíma“ sagði António Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna þegar ný skýrsla Lofts­lags­nefndar SÞ var kynnt í októ­ber síð­ast­liðnum. Þar kemur fram að miðað við núver­andi þróun stefni í þriggja til fjög­urra gráðu hlýnun jarðar fyrir næstu alda­mót en sam­komu­lag flestra þjóða heims hljóðar uppá að hlýn­unin fari ekki yfir 2 gráður. Lofts­lags­vís­inda­fólk hefur reyndar sagt að til að koma í veg fyrir alvar­legar ham­farir megi hlýn­unin ekki verða meiri en 1,5°C. Til að það gangi eftir segja vís­inda­menn lofts­lags­nefndar SÞ að þörf sé á hröðum og jafn­framt stór­tækum breyt­ingum á sam­fé­lagi mann­anna.

Guterres sagði að skýrslan sýndi svo ekki yrði um villst að lít­ill tími væri til stefnu. „Hvern dag ætti það að vera for­gangs­verk­efni að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Þá daga sem við sofum á verð­inum hlýnar jörðin sem svo leiðir til ham­fara sem ekk­ert okkar vill upp­lifa.“

Að minnsta kosti 40 millj­ónir manna búa í þeim borgum og bæjum sem hafa lýst yfir neyð­ar­á­standi vegna hlýn­unar jarðar. Yfirvöld á þessum stöðum segj­ast hafa gert sér grein fyrir alvar­leika máls­ins við lestur skýrslu lofts­lags­nefndar SÞ í októ­ber. Aðgerðir Gretu Thunberg hafi einnig haft sitt að segja. Helsta krafa hennar og fjölda­hreyf­ingar sem kallar sig Extinction Rebellion og mót­mælt hefur víða um heim í nokkrar vikur, er að stjórn­völd við­ur­kenni hætt­una sem er yfir­vof­andi, lýsi yfir neyð­ar­á­standi og grípi til taf­ar­lausrar aðgerða í lofts­lags­málum.

Byrjaði í Bristol

Carla DenyerBorg­ar­full­trúi í Bristol

Nokkrum vikum eftir að skýrsla SÞ kom út sagði Carla Denyer, full­trúi Græn­ingja í borg­ar­stjórn Bristol á fundi þar, að komið væri að ögur­stundu. Hún var fyrsti borg­ar­full­trú­inn í Bret­landi sem ljáði máls á að lýsa form­lega yfir neyð­ar­á­standi vegna hlýn­unar jarðar. Hún lagði fram til­lögu um að Bristol yrði fyrsta borgin í Bret­landi til að lýsa yfir lofts­lags­neyð. Tillagan var sam­þykkt með öllum greiddum atkvæðum. Þar er fyrst og fremst stefnt að því að ná fram kolefn­is­hlut­leysi fyrir árið 2030 en það felur í sér að grípa til mót­væg­is­að­gerða þannig að árleg losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sé ekki meiri en það sem binst í gróðri og jarð­vegi á sama tíma.

Í des­em­ber, um mán­uði eftir að Carla Denyer og félagar hennar í borg­ar­stjórn­inni í Bristol lýstu yfir neyð­ar­á­standi í borg­inni, fór kast­ljós fjöl­miðla að bein­ast að sextán ára sænskum aðgerð­ar­sinna. Greta Thunberg var þá búin að skrópa í skól­anum á hverjum föstu­degi frá því í sept­em­ber til að mót­mæla því sem hún kallar aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í lofts­lags­málum. „Skóla­verk­fall fyrir lofts­lagið“ kall­aði Greta mót­mælin. Upp úr þessu varð til fjölda­hreyf­ing barna og ungs fólks sem krefst þess að stjórn­völd bregð­ist strax við með afger­andi hætti.

 „Í ráð­húsi borg­ar­innar verður unnið hörðum höndum að því að lág­marka skað­ann en við þurfum aðstoð rík­is­stjórn­ar­innar“

Sadiq KhanBorg­ar­stjóri London hefur gagn­rýnt rík­is­stjórn sína vegna aðgerða­leysis.

Núna, hálfu ári eftir að borg­ar­stjórnin í Bristol lýsti yfir lofts­lags­neyð í borg­inni hafa um 90 bæjar- og borg­ar­stjórnir í Bret­landi bæst í hóp­inn, þar á meðal London. Tillaga Caroline Russell full­trúa Græn­ingja í borg­inni um þetta var sam­þykkt í des­em­ber. Sadiq Khan, borg­ar­stjóri sagði eftir að til­lagan var sam­þykkt að áhersla yrði lögð á að útfæra vand­lega þær aðgerðir sem gripið yrði til svo spyrna mætti við frek­ari losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Khan gagn­rýndi rík­is­stjórn Theresu May, sagði hana draga lapp­irnar í lofts­lags­málum. „Við erum í neyð sem ógnar jörð­inni, heilsu okkar, börn­unum okkar og barna­börnum og í ráð­húsi borg­ar­innar verður unnið hörðum höndum að því að lág­marka skað­ann en við þurfum aðstoð rík­is­stjórn­ar­innar. Hún þarf að bregð­ast við, með aðgerðum sem hægt er að treysta á að dragi úr losun og rík­is­stjórnin þarf að veita nægi­legt fjár­magn svo hægt sé að ráð­ast í þær aðgerðir sem nauð­syn­legar eru“ sagði Khan við blaða­mann Guardian.

Nicola SturgeonFyrsti ráð­herra Skotlands hefur lýst yfir neyð­ar­á­standi.

Í vik­unni lýsti Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands yfir neyð­ar­á­standi í landi í ræðu á flokks­þingi Skoska þjóð­ar­flokks­ins (SNP). Hún sagð­ist hafa tekið þá ákvörðun eftir að hafa rætt við ungt fólk sem var að mót­mæla aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í lofts­lags­málum.

„Ég hlusta á unga fólkið því það hefur rétt fyrir sér“

„Unga fólkið vill að allar rík­i­s­tjórnir heims lýsi yfir neyð­ar­á­standi. Vís­inda­rann­sóknir stað­festi að svo sé og ég hlusta á unga fólkið því það hefur rétt fyrir sér. Þannig að í dag, sem fyrsti ráð­herra Skotlands, lýsi ég því opin­ber­lega yfir að það er neyð­ar­á­stand vegna hlýn­unar jarðar og að Skotar muni taka því alvar­lega og lofa að gera sitt besta til að leysa vand­ann.“

Sitja sofandi við stjórnvölinn

Yfirvöld í þeim bæjum og borgum þar sem lýst hefur verið yfir lofts­lags­neyð saka rík­is­stjórnir landa sinna um sof­anda­hátt og segja að ef fram heldur sem horfir muni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda aukast. Ástandið sé grafal­var­legt og bregð­ast verði við af fullum þunga. Þess vegna sé krafa þeirra sú að rík­is­stjórn­irnar lýsi yfir neyð­ar­á­standi í heima­lönd­unum. Vegna auk­innar los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fari hita­stig jarðar hækk­andi og ef svo heldur sem horfir sé ekki mögu­leiki að halda hækk­un­inni undir 2 gráðum eins og lofts­lags­vís­inda­fólk hefur sagt að verði að nást ef koma á í veg fyrir grafal­var­legar ham­farir. Þess vegna sé gert ráð fyrir tveggja gráðu hita­mark­inu í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu en þar segi einnig að mun betra væri að halda hita­stigs­hækk­un­inni undir 1,5°. Það sé þó talið óraun­hæft miðað við þróun síð­ustu ára. Hins vegar sé megi búast við að hita­stig jarðar hækki, að óbreyttu, um 4 gráður.

Ekki útilokað að lýst verði yfir neyðarástandi í Reykjavík og á Akureyri

Stefán GíslasonUmhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur segir íslensk stjórn­völd verða að grípa til aðgerða.

Stefán Gíslason umhverf­is­stjórn­un­ar­fræð­ingur segir að sér lít­ist vel á ákvarð­anir þess­ara bæja og borga. „Með þessu stað­festa við­kom­andi stjórn­völd vilja sinn til að með­höndla það neyð­ar­á­stand sem upp er komið sem raun­veru­legt neyð­ar­á­stand og til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda með­al­hlýnun innan við 1,5°C. Þetta skapar ekki aðeins aðstæður til að ráð­ast í metn­að­ar­full lofts­lags­verk­efni í við­kom­andi byggð, heldur líka þrýst­ing á aðrar byggðir að gera slíkt hið sama.“ Stefán telur að aðgerð­irnar geti skilað miklum árangri. „Með yfir­lýs­ing­unum eru lofts­lags­mál sett í fyrsta sæti, sem þýðir meðal ann­ars að verk­efni sem ganga í aðra átt verða að víkja.“

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri seg­ist, aðspurður um hvort til greina komi að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í Reykja­vík, ekki vilja úti­loka neitt sem getur vakið athygli á lofts­lags­vand­anum og knúið á um skjót við­brögð. Þeirra sé sann­ar­lega þörf í lofts­lags­málum. „Vandinn er sá að voð­inn er vís í fram­tíð­inni ef ekki verður brugð­ist afger­andi við núna. Það er þetta sem borgir og rík­is­stjórnir eru að vekja fólk til umhugs­unar um með því að lýsa yfir neyð­ar­á­standi.“

Dagur B. Egg­erts­sonBorg­ar­stjóri segir Reykja­vík­ur­borg hafa verið nokkuð eina um for­ystu í mála­flokknum.

 „Mér hefur fund­ist margt gott fara af stað hjá nýrri rík­is­stjórn en nú skiptir máli að standa við stóru orðin“

Dagur seg­ist hafa sett lofts­lags­mál, loft­gæði og afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga á dag­skrá almanna­verndar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þar sem hann er for­maður. „Það er í fyrsta sinn sem unnið er að við­bragðs­á­ætl­unum og kort­lagður við­bún­aður sem þarf vegna þess“ segir Dagur. Hann segir að enn sem komið er hafi Reykja­vík­ur­borg verið nokkuð ein í for­ystu í þessum mála­flokki meðal íslenskra sveit­ar­fé­laga, bæði með sam­þykkt rót­tækrar lofts­lags­stefnu og aðgerð­ar­á­ætl­unar. „Þar skipum við okkur í röð fram­sækn­ustu borga“ segir Dagur. „Mér hefur fund­ist margt gott fara af stað hjá nýrri rík­is­stjórn en nú skiptir máli að standa við stóru orðin, ekki síst í því að efla almenn­ings­sam­göngur og breyta ferða­venjum í umferð­inni.“

Ást­hildur Sturlu­dóttir bæj­ar­stjóri á Akureyri segir að ekki hafi enn verið rætt um að lýsa yfir neyð­ar­á­standi. „En mögu­lega er ástæða til að ræða það þannig í ljósi ákvarð­ana ann­arra borga og ríkja.“ Hún segir að ákvörðun þeirra sé rétt ef hún sé leiðin til að umheim­ur­inn átti sig á þess­ari miklu ógn. Ást­hildur segir tals­vert rætt um hlýnun jarðar á þeim fundum sem hún sæki erlendis en ekki hafi enn verið talað um að lýsa yfir neyð­ar­á­standi, það kunni hins vegar að breyt­ast í ljósi nýlegra ákvarð­ana bæj­ar­stjórna erlendis.

Flest bendir til þess að losun aukist á Íslandi á næstu árum

Umhverf­is­stofnun greindi frá því um miðjan apríl síð­ast­lið­inn að losun á Íslandi hefði auk­ist um 2,2% milli áranna 2016 og 2017 og að talið væri að losun myndi áfram aukast hér á næstu árum. Aukningu á heild­ar­losun sem er á ábyrgð stjórn­valda má meðal ann­ars rekja til fjölg­unar ferða­manna og auk­innar neyslu almenn­ings. L osun frá stór­iðju hér hefur auk­ist um 133% frá árinu 1990 sam­kvæmt skýrslu Umhverf­is­stofn­unar. Sú losun er aðeins óbeint á ábyrgð stjórn­valda, þar sem stór­iðju­fyr­ir­tækin þurfa að verða sér úti um los­un­ar­heim­ildir úr sér­stöku við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins (ETS = emissions tra­d­ing system).

„Flest bendir til að þessi losun auk­ist veru­lega á næstu árum, einkum vegna nýrrar stór­iðju“

Í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum til árs­ins 2030 segir að flest bendi til þess að losun frá iðn­að­ar­ferlum auk­ist veru­lega fram til árs­ins 2030. Kís­il­málm­verið á Bakka við Húsavík er nefnt til sög­unnar og að starfs­leyfi hafi verið veitt fyrir fyr­ir­hugað kís­li­ver í Helguvík og fleiri stór­iðju­kostir hafi verið í und­ir­bún­ingi. Þá segir í aðgerð­ar­á­ætlun stjórn­valda að sam­dráttur í losun í þessum geira verði vart mögu­legur nema með til­komu nýrrar tækni. Í  áætlun stjórn­valda er einnig fjallað um losun sem fellur undir evr­ópska við­skipta­kerfið (ETS) sem í til­felli Íslands er lang­mest á sviði stór­iðju. Í lok þess kafla skýrslu stjórn­valda segir: „Flest bendir til að þessi losun auk­ist veru­lega á næstu árum, einkum vegna nýrrar stór­iðju, en að langt sé í tækni­fram­farir sem lík­legar eru til að skila miklum sam­drætti í losun.“ Þar segir líka að ný og metn­að­ar­full mark­mið hafi verið sett í stjórn­ar­sátt­mála. Þar beri hæst mark­mið um kolefn­is­hlut­leysi Íslands árið 2040 og að sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun 2019-2023 sé ráð­gert að setja veru­lega fjár­muni í verk­efni sem stuðla að minni losun og aukn­ingu kolefn­is­bind­ingar.

Ísland eigi hiklaust að lýsa yfir neyðarástandi

Í gær skor­aði Land­vernd á rík­is­stjórn Íslands að lýsa því yfir að neyð­ar­á­stand ríki í lofts­lags­málum. Þetta var ákveðið á aðal­fundi sam­tak­anna í gær­kvöldi. Stefán Gíslason tekur undir yfir­lýs­ingu Land­verndar og segir að það liggi alveg fyrir að þau mark­mið sem rík­is­stjórnir þjóða heims hafi sett sér á grund­velli Par­ís­ar­samn­ings­ins dugi engan veg­inn til að ná meg­in­mark­miðum hans. „Íslensk stjórn­völd ættu hik­laust að lýsa yfir neyð­ar­á­standi vegna lofts­lags­breyt­inga, ekki seinna en strax. Þetta neyð­ar­á­stand er skollið á og öll bið gerir ástandið enn óvið­ráð­an­legra. Það skiptir líka máli að vera sá sem dregur vagn­inn í þessum efnum, í stað þess að vera sein­fær spor­göngu­maður,“ segir Stefán Gíslason og bætir við að yfir­lýs­ing um neyð­ar­á­stand hljóti að fela í sér rót­tæka end­ur­skoðun á mark­miðum rík­is­stjórna. Næg þekk­ing sé til staðar, það þurfi bara að nota hana. „Yfir­lýs­ing um neyð­ar­á­stand felur í sér að við­kom­andi stjórn­völd vilji gera allt sem í þeirra valdi standi. Það hafi þau ekki gert hingað til,“ segir Stefán.

„Yfir­lýs­ing um neyð­ar­á­stand felur í sér að við­kom­andi stjórn­völd vilji gera allt sem í þeirra valdi standi. Það hafi þau ekki gert hingað til“

Andrés Ingi JónssonÞing­maður Vinstri grænna segir unga fólkið vaknað.

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Vinstri grænna spurði á Alþingi í fyrra­dag hvort ástæða væri til að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum. Andrés Ingi tal­aði um aðgerðir Gretu Thunberg og sagði „Unga fólkið er vaknað, heim­ur­inn er að vakna og við sem hér sitjum þurfum líka að vakna. Við eigum fjöld­ann allan af aðgerð­ar­á­ætl­unum, þeim þarf að tryggja fjár­magn og þær þarf að gera betri og metn­að­ar­fyllri á hverjum degi. En dugar það til? Kannski er vand­inn orð­inn það knýj­andi að þurfi að lýsa yfir neyð­ar­á­standi í lofts­lags­málum, en áður en til þess kemur getum við líka litið í kringum okkur hér á þingi og fundið breyt­ingar sem má hrinda í fram­kvæmd því sem næst strax.“

Stefán Gíslason segir að ef rík­is­stjórnin taki þetta ekki upp hjá sér ættu ein­stakir þing­menn eða ein­stakir þing­flokkar að leggja fram til­lögu til þings­á­lykt­unar í þessa veru. „Þeir sem ekki styðja slíka til­lögu þurfa að útskýra ástæður þess. Umræðan sem þetta skapar verður tví­mæla­laust gagn­leg!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár