Stjórnarliðar fengu talpunkta vegna yfirvofandi taps í Strassborg

„Ísland er full­valda ríki og hefur ekki fram­selt dóms­vald sitt til Evrópu“. Þetta er á meðal frasa í sam­an­tekt sem þing­menn stjórn­ar­liðs­ins fengu senda dag­inn áður en Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu dæmdi íslenska ríkið brot­legt í Lands­rétt­ar­mál­inu.

Stjórnarliðar fengu talpunkta vegna yfirvofandi taps í Strassborg
Sagði af sér Sigríður Andersen lét af emb­ætti dóms­mála­ráð­herra í mars til að skapa frið um við­brögð stjórn­valda við dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu. Mynd: Pressphotos

Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna fengu senda „sam­an­tekt“ frá aðstoð­ar­manni Sigríðar Andersen, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, þann 11. mars síð­ast­lið­inn, dag­inn fyrir upp­kvaðn­ingu dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu, þar sem lagðar eru lín­urnar um hvernig bregð­ast megi við dóm­inum í opin­berri umræðu. 

Sam­an­tekt fyrir stjórn­ar­liðaSvo virð­ist sem skjalið hafi verið sett saman til að búa þing­menn stjórn­ar­liðs­ins undir að íslenska ríkið tap­aði lands­rétt­ar­mál­inu í Strass­borg.

Stundin hefur skjalið undir höndum, en svo virð­ist sem það sé samið til að búa stjórn­ar­liða undir að íslenska ríkið tapi mál­inu. Sam­an­tektin er í sjö liðum, en um er að ræða eins konar tal­punkta eða áróð­ursfrasa sem miðlað er til þing­manna, setn­ingar á borð við „Ísland er full­valda ríki og hefur ekki fram­selt dóms­vald sitt til Evrópu“. Er þetta í takt við þá orð­ræðu sem for­ystu­fólk í Sjálf­stæð­is­flokknum átti síðan eftir að við­hafa dag­ana eftir að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu féll.

Fullyrt er í sam­an­tekt­inni frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu að allar þrjár greinar íslenskrar stjórn­skip­unar, lög­gjaf­ar­vald, fram­kvæmd­ar­vald og dóms­vald, auk for­seta Íslands, hafi kom­ist að sömu nið­ur­stöðu og telji skipan dóm­ara við Lands­rétt lög­mæta. „Ekkert íslenskt mál sem farið hefur til MDE hefur haft við­líka stuðn­ing og stað­festu frá íslensku rétt­ar­ríki,“ segir í skjal­inu. 

Rakið er sér­stak­lega hvernig Hæsti­réttur hafi þegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ann­markar á máls­með­ferð­inni við skipun dóm­ara við Lands­rétt hafi ekki vægi við mat á því hvort skip­unin sjálf sé lög­mæt. Loks er lögð áhersla á full­veldi Íslands og að úrlausnir MDE séu ekki bind­andi að íslenskum lands­rétti enda hafi dóms­vald ekki verið „fram­selt“ til Evrópu. 

Nokkrum dögum eftir að MDE dæmdi íslenska ríkið brot­legt í Lands­rétt­ar­mál­inu boð­aði Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra til blaða­manna­fundar og til­kynnti um afsögn sína. Um leið sagð­ist hún ekki myndu „láta það átölu­laust að íslenskir dóm­stólar fram­selji vald til túlk­unar á íslenskum lögum til erlendra dóm­stóla“. 

Bjarni Bene­dikts­son tók í sama streng. „Mér finnst líka mjög mik­il­vægt að við veltum upp annarri spurn­ingu sem er þessi: Höfum við fram­selt túlk­un­ar­vald yfir íslenskum lögum til Evrópu? Ég hélt ekki, ég hélt ekki,“ sagði hann á frétta­manna­fundi í þing­hús­inu eftir að greint var frá afsögn Sigríðar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár