Fáir kolefnisjafna flugferðir sínar

Aðeins rétt rúm­lega 100 ein­stak­lingar greiddu fyrir kolefn­is­jöfnun hjá Kolviði eða Vot­lend­is­sjóði í fyrra. For­svars­menn eru bjart­sýnir á aukna með­vit­und almenn­ings um áhrif lofts­lags­breyt­inga.

Fáir kolefnisjafna flugferðir sínar
Lofts­lags­mót­mæli Mótmælt hefur verið víða um heim vegna skorts á aðgerðum til að draga úr lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum. Mynd: Davíð Þór

Aðeins 45 ein­stak­lingar létu kolefn­is­jafna flug- eða bíl­ferðir sínar hjá Vot­lend­is­sjóði í fyrra og 66 hjá Kolviði. For­svars­menn segja að aukn­ing hafi orðið á þessu ári þar sem með­vit­und fólks um lofts­lags­breyt­ingar af manna völdum sé sífellt meiri.

Vot­lend­is­sjóður og Kolviður eru tveir stærstu aðil­arnir sem bjóða upp á kolefn­is­jöfnun á Íslandi, en fólk getur einnig leitað til aðila sem sinna slíku erlendis í gegnum netið. Hægt er að greiða fyrir bind­ingu kolefnis eða ýmis verk­efni sem draga úr losun þess, en umhverf­is­sinnar hafa lagt mikla áherslu á að kolefn­is­jöfnun megi þó ekki koma í veg fyrir umfangs­meiri aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum.

„Þetta eru í raun alveg hlægi­legar tölur, en í fyrra voru 66 ein­stak­lingar sem kolefn­is­jöfn­uðu hjá okkur,“ segir Einar Gunn­ars­son hjá Kolviði. „Það sem af er þessu ári eru ríf­lega 100 sem eru búnir að gera slíkt hið sama. Við erum að sjá mikla aukn­ingu úr engu. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár