Sjálfstæðismenn urðu hræddir: „Hefurðu heyrt um einhvern Íslending með bakpoka sem sprengir sig upp?“

Sigurður Sig­ur­björns­son, for­maður Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Kópavogi, seg­ist ekk­ert hafa á móti hæl­is­leit­endum en hafa áhyggjur af öfgum. „Við erum nýbúin að hlusta á fréttir frá Sri Lanka um að ein af sprengj­unum hafi komið frá bak­poka.“

Sjálfstæðismenn urðu hræddir: „Hefurðu heyrt um einhvern Íslending með bakpoka sem sprengir sig upp?“

Gestir á fundi Sjálf­stæð­is­manna um þriðja orku­pakk­ann höfðu áhyggjur af bak­poka sem hæl­is­leit­andi hafði með­ferðis. Hringt var í lög­regl­una, lög­reglu­lið kom sér fyrir við Kópa­vogs­kirkju og ráð­herrar fóru „ákveðna flótta­leið“ út af fund­inum. 

Þetta kemur fram í við­tali við Sigurð Sig­ur­björns­son, for­mann Sjálf­stæð­is­fé­lags­ins í Kópavogi, í frétt á vef Hring­brautar. „Það var líka ógn­andi eins og ein­hver hafði á orði eftir fund­inn, hvað hefði getað verið í þessum bak­poka,“ segir hann í við­tal­inu.

Stundin hafði sam­band við Sigurð í von um frek­ari skýr­ingar. Hann gefur lítið fyrir frétt Hring­brautar og segir að orð sín hafi verið tekin úr sam­hengi. 

„Ég hef ekk­ert á móti hæl­is­leit­endum, en það kemur þessu ekki við. Þeir áttu ekki erindi á þennan fund. Staða þeirra er veik þótt hún sé ekki verri á Íslandi en víða ann­ars staðar. Ég held að það þurfi að vinna hraðar og betur að þessum málum hér á landi, en við skulum samt hafa í huga að gagna­öflun er erfið því hæl­is­leit­end­urnir koma oft með fölsuð skil­ríki,“ segir hann.

„Ég öfunda ekki hæl­is­leit­endur og sem betur fer hefur maður aldrei þurft að vera í þeirra sporum. En hvað eru Íslend­ingar að hugsa sem draga þá sem ein­hverja leik­sýn­ingu inn á fundi til að vera með læti? Er ekki Rauði kross­inn að vinna alveg ágætt starf fyrir hæl­is­leit­endur?“

„Hefurðu heyrt um ein­hvern Íslend­ing
með bak­poka sem hafi sprengt sig upp?“

Segir fólk hafa orðið hrætt

Aðspurður hvers vegna fólk hafi haft áhyggjur af því að mann­eskja væri með bak­poka segir Sigurður: 

„Menn hugsa ýmsa hluti og það fór slatti af fólki út úr salnum þegar þetta gerð­ist. Fólk hafði áhyggjur af ástand­inu sem mynd­að­ist þarna. Það var reynt að fá þá [hæl­is­leit­end­urna] til að róa sig og þeim bent á að þetta væri hvorki staður né stund til að taka þessa umræðu. Þetta trufl­aði mann­skap­inn og fólk varð hrætt. Þessi ein­stak­lingur var eitt, en svo voru hróp og köll ann­ars staðar frá.“

Hann heldur áfram: „Við erum nýbúin að hlusta á fréttir frá Sri Lanka um að ein af sprengj­unum hafi komið frá bak­poka. Það gerð­ist í Boston-mara­þon­inu fyrir örfáum árum. Ég hugs­aði þetta ekki sjálfur. En þetta heyrð­ist eitt­hvað aðeins, pískur um þennan bak­poka.“ 

En held­urðu að sams konar áhyggjur hefðu komið upp ef hvítur Íslend­ingur væri með bak­poka á fund­inum? 

„Hefurðu heyrt um ein­hvern Íslend­ing með bak­poka sem sprengir sig upp?“ 

Nei, en maður hefur heldur ekki heyrt af hæl­is­leit­anda á Íslandi með bak­poka sem sprengir sig upp. 

„Nei, en við vitum heldur ekki alltaf hverjir þessir hæl­is­leit­endur eru. Á meðan þeir koma með fölsuð skil­ríki, þá vitum við ekki hverjir þeir eru og þá er ekki hægt að kanna það.“

Anders Breivik þurfti engin fölsuð skil­ríki... þú skilur hvað ég er að fara?

„Já, ég skil það alveg og þú sérð hvað gerð­ist á Nýja Sjálandi. Við erum með ofsa­fengna brjál­æð­inga sem eru hvítir öfga­hægri­menn. Við höfum séð hvernig andúðin og öfgarnar blossa upp í okkar sam­fé­lagi miðað við hvernig menn skrifa og orð­ræðan er.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár