Sigur Rós stóð í þeirri trú að hafa gert rétt í skattsvikamáli

Ákæra hefur verið birt fjórum núver­andi og fyrr­ver­andi með­limum hljóm­sveit­ar­innar Sigur Rósar vegna skattsvika. Eru með­lim­irnir sak­aðir um að koma sér hjá greiðslu tuga millj­óna króna í tekju- og fjár­magnstekju­skatt hver. „Hljóm­sveit­ar­með­limir eru tón­list­ar­menn og ekki sér­fróðir í bók­haldi og alþjóð­legum við­skiptum,“ segir lög­maður.

Sigur Rós stóð í þeirri trú að hafa gert rétt í skattsvikamáli

Meðlimir hljóm­sveit­ar­innar Sigur Rósar, þeir Georg Holm og Jón Þór Birg­is­son, auk fyrr­ver­andi með­li­manna Kjartans Sveins­sonar og Orra Páls Dýra­sonar, hafa verið ákærðir fyrir skatt­svik. Ákærur hafa verið birtar þeim fyrir að telja ekki fram tekjur og arð­greiðslur. RÚV greinir frá.

Hljóm­sveit­ar­með­lim­irnir eru ákærðir fyrir að standa ekki skil á efn­is­lega réttum skatt­fram­tölum á árunum 2011 til 2014, nema Kjartan, sem ákærður er vegna gjald­ár­anna 2012 til 2014. Jóni Þór, sem þekktur er sem Jónsi, er gefið á sök að hafa komið sér undan greiðslu þrjá­tíu millj­óna króna í tekju­skatt og þrettán millj­óna í fjár­magnstekju­skatt.

Í yfir­lýs­ingu segj­ast hljóm­sveit­ar­með­limir harma að hér­aðs­sak­sókn­ari hafi tekið ákvörðun um að ákæra. Hljóm­sveit­ar­menn hafi haft fullan ásetn­ing til að standa í réttum skilum við skatt­yf­ir­völd og hafi staðið í þeirri trú að það hefði verið gert.  „Hljóm­sveit­ar­með­limir eru tón­list­ar­menn og ekki sér­fróðir í bók­haldi og alþjóð­legum við­skiptum – hvað þá í fram­tals­gerð og skatt­skilum,“ segir í yfir­lýs­ingu frá Bjarn­freði Ólafs­syni frá LOGOS lög­manns­þjón­ustu.

Georgi er gefið að sök að kom­ast hjá greiðslu 35 milljón króna í tekju­skatt og 9,5 millj­óna í fjár­magnstekju­skatt. Kjartan, sem hætti í hljóm­sveit­inni fyrir sex árum, er sak­aður um að koma sér undan greiðslu 18 millj­óna króna í skatt.

Þá er Orri Páll Dýrason, sem hætti í hljóm­sveit­inni í októ­ber í kjöl­far ásök­unar um nauðgun, sagður hafa kom­ist undan 36 millj­ónum króna í tekju­skatt og 9,5 millj­ónum í fjár­magnstekju­skatt.

Eignir hljóm­sveit­ar­með­lima voru kyrr­settir í des­em­ber 2017 vegna rann­sóknar máls­ins. Krafa Toll­stjóra nam alls 800 millj­ónum króna.

Yfirlýsingin frá Sigur Rós í heild

Skil á skatt­fram­tölum hljóm­sveit­ar­með­lima fyrir árin 2010-2014 hafa verið til skoð­unar hjá yfir­völdum í nokkur ár. Í des­em­ber síð­ast­liðnum féllst rík­is­skatt­stjóri á allar inn­sendar upp­lýs­ingar og útskýr­ingar og því er eng­inn ágrein­ingur á milli þeirra og skatt­yf­ir­valda. 

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur hins vegar tekið ákvörðun um að ákæra hljóm­sveit­ar­með­limi vegna van­fram­tal­inna tekna. Hljóm­sveit­ar­með­limir harma að málið þurfi að fara fyrir dóm en von­ast á sama tíma til þess að máls­á­stæður þeirra skýrist. Þeir hafi ávallt haft fullan ásetn­ing til að standa í réttum skilum við skatt­yf­ir­völd og stóðu í þeirri trú að það hefði verið gert. 

Bjarn­freður Ólafsson, LOGOS lög­manns­þjón­ustu: „Hljóm­sveit­ar­með­limir eru tón­list­ar­menn og ekki sér­fróðir í bók­haldi og alþjóð­legum við­skiptum – hvað þá í fram­tals­gerð og skatt­skilum. Þess vegna réðu þeir við­ur­kennda sér­fræð­inga til að ann­ast bók­hald og öll sam­skipti við íslensk skatt­yf­ir­völd. En í ljós hefur komið að röngum fram­tölum var skilað til rík­is­skatt­stjóra og/eða þeim skilað alltof seint. Á sama tíma töldu hljóm­sveit­ar­með­limir að þessi mál væru í lagi og í höndum fag­manna. Það verður núna verk­efni Hér­aðs­sak­sókn­ara að færa sönnur fyrir því að hljóm­sveit­ar­með­limir hafi sjálfir gerst sekir um stór­fellda van­rækslu á fram­tals­skyldu sinni. Í ljósi máls­at­vika fæ ég ekki séð hvernig það verður hægt og þess vegna veldur það von­brigðum að emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara hafi tekið ákvörðun um ákærur á hendur þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skattamál

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár