Harpa endurheimti lítið vegna tónleika Sigur Rósar

Skipta­stjóri þrota­bús KS Productions, fyr­ir­tækis Kára Sturlu­sonar, segir lítið af eignum fást upp í kröfur í búið. Harpa er stærsti kröfu­haf­inn eftir tón­leika Sigur Rósar í fyrra.

Harpa endurheimti lítið vegna tónleika Sigur Rósar

Lítið af eignum hafa fund­ist í þrota­búi KS Productions, fyr­ir­tækis Kára Sturlu­sonar, sem lengi vel var umboðs­maður hljóm­sveit­ar­innar Sigur Rósar. Harpa verður fyrir tug­millj­óna tjóni fáist ekk­ert upp í kröfur.

Frétta­blaðið hefur eftir Hauki Erni Birg­is­syni, skipta­stjóra þrota­bús­ins, að hann sé ekki bjart­sýnn á að mikið fáist upp í lýstar kröfur í þrota­búið. Þar er Harpa ohf. stærsti kröfu­haf­inn eftir að hafa veitt Kára 35 milljón króna fyr­ir­fram­greiðslu vegna miða­sölu á tón­leika Sigur Rósar í Hörpu í des­em­ber í fyrra.

Kári var í sumar úrskurð­aður gjald­þrota og fram­leiðslu­fyr­ir­tæki hans, KS Productions, einnig. Eignir hans voru kyrr­settar. Harpa og Sigur Rós skiptu með sér tap­inu vegna fyr­ir­fram­greiðsl­unnar og í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu frá hljóm­sveit­inni og Svan­hildi Kon­ráðs­dóttur, for­stjóra Hörpu, kom fram að vonir væru bundnar við end­ur­heimtu­ferlið.

Svan­hildur segir við Frétta­blaðið að ekk­ert til­efni sé til að velta vöngum yfir mál­inu þar sem það sé enn í ferli og nið­ur­staða liggi ekki fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár