Skrifstofustjóri Alþingis bað RÚV um að fjarlægja frétt eftir kvörtun frá Miðflokki

Þingmenn Mið­flokks­ins gagn­rýna birt­ingu „svo­kall­aðrar“ siða­nefndar Alþingis á mati í Klaust­urs­mál­inu. Álitið var birt á vef Alþingis fyrir mis­tök.

Skrifstofustjóri Alþingis bað RÚV um að fjarlægja frétt eftir kvörtun frá Miðflokki

Þingmenn Mið­flokks­ins gagn­rýna birt­ingu á mati „svo­kall­aðrar“ siða­nefndar Alþingis vegna Klaust­urs­máls­ins. „Póli­tískt eðli máls­ins er nú stað­fest enn á ný og þurfti ekki frek­ari vitn­anna við,“ segir í yfir­lýs­ingu frá flokknum.

Álit ráð­gef­andi siða­nefndar sem for­sætis­nefnd leit­aði til í mál­inu var birt á vef Alþingis fyrir mis­tök í gær.

Skrif­stofu­stjóri Alþingis fór þess á leit við RÚV að frétt um málið yrði fjar­lægð, en ekki var orðið við því. Nú hefur álitið verið fjar­lægt af vefnum.

Í álit­inu kemur fram að sam­talið sem sex þing­menn áttu á Klaustri bar í nóv­em­ber og var tekið upp hafi ekki talist einka­sam­tal. Ummæli og hegðun þing­mann­anna sex falli undir siða­reglur Alþingis.

Steinunn Þóra Árna­dóttir og Haraldur Bene­dikts­son voru kosnir sér­stakir vara­for­setar Alþingis þar sem for­sætis­nefnd lýsti sig í heild sinni van­hæfa í mál­inu. Óskuðu þau eftir álit­inu. Í því kemur ekki fram afstaða til þess hvort siða­reglur hafi verið brotnar, en þar segir að þing­menn séu opin­berar per­sónur. „Þar sem hátt­ernið varðar almenn­ing verður ekki litið á þau atvik sem hér um ræðir sem einka­sam­tal.“

Róbert Har­alds­son skil­aði sér­á­liti, þar sem hann segir efa­semdir um að hátt­erni þing­mann­anna falli undir siða­reglur Alþingis. Samræður þeirra á barnum hafi verið á köflum „sund­ur­laust raus“ en ekki nokkuð sem varðar almanna­hags­muni.

Ríkisútvarpið upplýst um álitið

Í yfir­lýs­ingu frá Mið­flokknum er birt­ing álits­ins gagn­rýnd, sér í lagi þar sem frestur til að skila and­mælum hafi ekki verið runn­inn út. „Slíkt gengur gegn stjórn­sýslu­lögum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Hins vegar lægju fyrir nýjar og veiga­miklar upp­lýs­ingar sem sýndu að mat siða­nefnd­ar­innar væri byggt á röngum for­sendum. Bentu þing­menn­irnir á að ekki væri hægt að skilja til­kynn­ing­una og tíma­setn­ingu til­kynn­ing­ar­innar öðru­vísi en að með því væri ætl­unin að festa siða­nefnd­ina í far­vegi sem hún hefði komið sér í, á grund­velli ófull­nægj­andi upp­lýs­inga.“

Segir í yfir­lýs­ing­unni að fall­ist hafi verið á kröfu þing­mann­anna, en RÚV hafi engu að síður birt frétt um málið. „Ljóst má vera að Rík­is­út­varpið hafi verið upp­lýst um inni­hald bréfs­ins,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Póli­tískt eðli máls­ins er nú stað­fest enn á ný og þurfti ekki frek­ari vitn­anna við. Lög og grund­vall­ar­reglur sann­gjarnrar máls­með­ferðar hafa ítrekað verið brotnar við með­ferð máls­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár