Hagaskóli með styrktarsýningu á Mary Poppins fyrir Zainab Safari

Allur ágóði leik­sýn­ingar nem­enda Haga­skóla í kvöld rennur til Zainab Safari og fjöl­skyldu hennar. „Við munum halda áfram að berj­ast fyrir Zainab og fjöl­skyldu hennar,“ segir sam­nem­andi hennar.

Hagaskóli með styrktarsýningu á Mary Poppins fyrir Zainab Safari
Mary Poppins Nemendur í Haga­skóla setja árlega upp leik­rit. Mynd: Birna Ósk Kristinsdóttir

Haga­skóli frum­sýndi sön­leik­inn Mary Poppins í gær­kvöldi en í kvöld, þriðju­dag­inn 26. mars, er sér­stök styrkt­ar­sýn­ing fyrir Zainab Safari, nem­anda í Haga­skóla og fjöl­skyldu hennar. Allur ágóði af sýn­ing­unni rennur til þeirra.

Zainab er 14 ára stelpa og hæl­is­leit­andi frá Afganistan sem kom til Íslands fyrir um sex mán­uðum síðan með móður sinni og bróður. Fjöl­skyldu Zainab var synjað um efn­is­lega með­ferð hæl­is­um­sóknar sinnar á Íslandi og bíða þau brott­vís­unar.

Síð­ast­lið­inn föstu­dag gengu nem­endur fylktu liði úr Haga­skóla að hús­næði Kæru­nefndar útlend­inga­mála og dóms­mála­ráðu­neyt­inu til að afhenda 6000 und­ir­skriftir sem þeir söfn­uðu fyrir skóla­systur sína. Áður en lagt var af stað í kröfu­göngu buðu nem­endur for­eldrum sínum og öðrum að koma í skól­ann, fá sér kaffi og kleinur og um leið að styrkja fjöl­skyld­una með frjálsum fram­lögum. Þannig hófst fjár­öfl­unin fyrir fjöl­skyld­una.

Magnús Davíð Norðdahl, lög­maður fjöl­skyld­unnar, lagði sama dag fram end­ur­upp­töku­beiðni vegna máls fjöl­skyld­unnar hjá Kæru­nefnd útlend­inga­mála. Krafan sem hann sendi inn var reist á þeim grund­velli að að aðstæður fjöl­skyld­unnar hefðu breyst veru­lega frá því að ákvörðun um brott­vís­un­ina var tekin. Breyt­ingin felist í því hversu sterk tengsl fjöl­skyldan hefur myndað á meðan þau hafa dvalið hér. Magnús segir það sér­stak­lega eiga við um Zainab, sem hefur myndað öfl­ugt tengsla­net í Haga­skóla og að und­ir­skriftir skóla­fé­laga hennar séu til marks um það.

Styrktarsýning á Mary Poppins

Í kvöld halda nem­end­urnir fjár­öflun sinni áfram með sér­stakri styrkt­ar­sýn­ingu á Mary Poppins, söng­leik Haga­skóla í ár, þar sem ágóð­inn rennur allur til Zainab og fjöl­skyldu hennar.

„Þetta er ell­efti söng­leik­ur­inn sem Haga­skóli setur upp,“ segir Sigríður Birna Vals­dóttir, leik­stjóri sýn­ing­ar­innar. „Svona stórar sýn­ingar eru fastur liður í starfi skól­ans. En hvað varðar þessa sýn­ingu, þá var ákveðið á meðal nem­enda skól­ans og þátt­tak­enda sýn­ing­ar­innar að ein af sýn­ing­unum yrði styrkt­ar­sýn­ing.“

„Mér finnst mjög mik­il­vægt að rödd okkar barna heyr­ist og það er mik­il­vægt að við getum tjáð skoð­anir okkar og hjálpað þeim sem eru með minni rödd.“

Það var á fundi þar sem Zainab sagði nem­endum og kenn­urum Haga­skóla sögu sína sem hug­myndin kom upp ásamt fleiri til­lögum um hvernig hjálpa mætti Zainab og fjöl­skyldu hennar.

„Ég er svo hrika­lega stolt af nem­endum okkar í því hvernig þau hafa staðið að þessum málum með Zainab og svo er ég auð­vitað stolt af þeim fyrir sýn­ing­una,“ segir Sigríður.

Aðgerðahópur nemenda

Svava Þóra Árna­dóttir, nem­andi í Haga­skóla, er þátt­tak­andi í Mary Poppins og hluti af aðgerða­hóp sem hefur það að mark­miði að hjálpa Zainab og fjöl­skyldu hennar. Svava segir að það sé mikil sam­staða í skól­anum og allir vilji leggja sitt af mörkum.

Aðgerða­hóp­ur­inn ætli hitt­ast á morgun, dag­inn eftir sýn­ingu og fara yfir stöðu mála. Í hópnum eru krakkar í nem­enda­ráði, réttinda­ráði og nem­enda­full­trúar auk ann­arra sem vilja leggja mál­efn­inu lið. Aðgerð­ar­hóp­ur­inn vinnur í nánu sam­starfi við kenn­ara og starfs­menn skól­ans sem eru þeim innan handar og til halds og trausts.

„Mér finnst mjög mik­il­vægt að rödd okkar barna heyr­ist og það er mik­il­vægt að við getum tjáð skoð­anir okkar og hjálpað þeim sem eru með minni rödd. Við munum halda áfram að berj­ast fyrir Zainab og fjöl­skyldu hennar,“ segir Svava.

Hægt er að kaupa miða á leik­sýn­ing­una á vef­síðu Haga­skóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár