Alþingi greiðir langmest fyrir áskrift að Morgunblaðinu

Alþingi er með 13 prentá­skriftir að Morg­un­blað­inu en aðeins þrjár að Við­skipta­blað­inu og ein­ungis með raf­ræna áskrift að Stund­inni. Þá greiðir þjóð­þingið 184 þús­und krónur fyrir breska viku­ritið The Economist.

Alþingi greiðir langmest fyrir áskrift að Morgunblaðinu

Alþingi er með 13 prentá­skriftir að Morg­un­blað­inu, 11 að DV og þrjár að Við­skipta­blað­inu auk netá­skrifta en ein­ungis með netá­skrift að Stund­inni. Þá fær Alþingi 15 ein­tök af Frétta­blað­inu og átta af Bænda­blað­inu auk raf­ræns aðgangs.

Þetta kemur fram í svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, við fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar um áskriftir Alþingis að fjöl­miðlum. 

Alþingi varði lang­mestum fjár­munum í Morg­un­blaðið í fyrra, eða 1,1 milljón króna í áskriftir og 508 þús­und krónur í aðgang að Gagna­safni Mbl.is.

Eini ensku­mæl­andi frétta­mið­ill­inn sem Alþingi er áskrif­andi að er breska viku­ritið The Economist þar sem fjallað er um alþjóða­mál frá sjón­ar­hóli mark­aðs­hyggju og frjáls­lynd­is­stefnu. 

Alþingi er með 10 raf­rænar áskriftir að The Economist auk prentein­taks og greiddi tæpar 184 þús­und krónur fyrir það í fyrra. Þá er Alþingi aðeins áskrif­andi að einum nor­rænum miðli utan Íslands, danska blað­inu Weekendavisen.

Þingmenn og starfs­menn þings­ins geta þó nálg­ast fjölda erlendra tíma­rita í gegnum Lands­að­gang tíma­rita, en Alþingi greiðir 462 þús­und krónur á ári fyrir not af gagna­grunn­inum.

Hér að neðan má sjá svör for­seta Alþingis við fyr­ir­spurn Björns Levís Gunn­ars­sonar í heild:

_________________________
Fyr­ir­vari vegna hags­muna
: Hér fjallar Stundin um mál er varða fjöl­mið­il­inn með beinum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár