Kona ein er á Facebook. Ég þekki hana ekki, hef líklega hvorki séð hana né heyrt um ævina. Hún gefur ekki upp aldur en af myndum að dæma, sem hún birtir þar, þá er hún vafalaust komin spölkorn inn á áttræðisaldurinn. Með því að hnusa aðeins af því sem hún gefur upp um sjálfa sig og sömuleiðis skoða netið, þá verður ekki betur séð en þessi kona hafi verið prýðilega virk í samfélaginu, tekið þátt í ýmsu félagsstarfi, verið töluvert skelegg og látið sig pólitík óspart varða. Hún er greinilega stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins en meðal annars sem hún lætur sig varða eru málefni hreyfihamlaðra.
Hún birtir líka á Facebook stuðningsyfirlýsingar við björgunarsveitirnar, bleiku slaufuna, friðardúfur ýmsar, íslenska karlalandsliðið …
Athugasemdir