Hagsmunasamtökin: Farþegar á skútu eða flókið hjónaband?

Mikill munur er á sjón­ar­miðum and­stæð­inga ESB og þeirra sem eru hlynntir inn­göngu. Annar hóp­ur­inn ótt­ast að Ísland glati full­veldi sínu á meðan hinn hóp­ur­inn segir þjóð­ina end­ur­heimta það með inn­göngu.

Hagsmunasamtökin: Farþegar á skútu eða flókið hjónaband?
ESB ísland tekst á um að ganga inn í við­ræður við ESB á næstu mán­uðum. Mynd: AFP

And­stæð­ingar ESB innan Heims­sýnar ótt­ast að Ísland muni fyr­ir­gera full­veldi sínu og lýð­ræði með því að ganga inn í Evr­ópu­sam­bandið. Þeir ótt­ast að Ísland fái ekki að stýra skút­unni og að þjóðin verði eins og hreppur í Evrópu.

Evr­ópu­hreyf­ingin hafnar slíkum lýs­ingum og segir inn­göngu inn í ESB meira líkt hjóna­bandi. Því fylgir þó tengda­fólk og mögu­lega stjúp­börn. Í dag sé Ísland eins og ein­stætt for­eldri að reyna að safna sér fyrir íbúð að mati fram­kvæmda­stjóra Evr­ópu­hreyf­ing­ar­innar. 

Himinn og haf er á milli sjón­ar­miða þeirra sem eru hlynntir því að ganga til samn­inga­við­ræðna við ESB og þeirra sem eru alfarið and­vígir slíku. Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla hefur verið boðuð og er áætlað að hún fari fram í lok ágúst verði þings­á­lykt­un­ar­til­laga utan­rík­is­ráð­herra sam­þykkt á Alþingi.

Samkvæmt til­lög­unni er áætlað að þjóðin gangi fyrst til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um það hvort hún vilji yfir höfuð ganga til samn­inga við ESB. Þegar samn­inga­við­ræðum er …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Því næst þarf að gera breytingar á stjórnarskrá svo Ísland geti gengið inn í ESB."

    Ofangreind staðhæfing er efnislega röng, því slík breyting gæti ekki haft afturvirk áhrif.

    Íslendingar höfnuðu ríkisábyrgð á innstæðutryggingum í BINDANDI þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir 15 árum síðan. Ári síðar setti ESB slíka ríkisábyrgð sem ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir öll aðildarríki sín, sem útilokar aðild Íslands að ESB. Þetta er staðreynd, ekki skoðun.

    Auk þess voru ein helstu rökin fyrir einkavæðingu bankanna að "losa ríkið undan áhættu" sem því var haldið fram að fylgdi eignarhaldi á banka. Þó að deila megi um hvort því fylgi nokkur áhætta að eiga hlut í fyrirtækjum sem skila alltaf blússandi hagnaði, ætti með nákvæmlega sömu rökum aldrei að samþykkja ríkisábyrgð á innstæðutryggingum banka í einkaeigu.

    Auk þess er það óheimilt og þeirri niðurstöðu verður ekki breytt eftir á.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár