Laxeldisrisinn Salmar reynir að hefja uppkaup á öllu hlutafé stærsta laxeldisfyrirtækis Íslands

Salmar gerir öllum hlut­höfum Arnarlax yfir­tökutil­boð í hluta­bréf þeirra í fyr­ir­tæk­inu. Hagn­að­ur­inn af rekstri Arnarlax í fram­tíð­inni mun þurfa að dekka fjár­fest­ingar Salmar í fyr­ir­tæk­inu.

Laxeldisrisinn Salmar reynir að hefja uppkaup á öllu hlutafé stærsta laxeldisfyrirtækis Íslands
Gríð­ar­legir hags­munir Mikla athygli vakti þegar stjórn­ar­for­maður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, var í för með atvinnu­vega­nefnd Alþingis, sem Kolbeinn Proppé situr meðal ann­ars í, í Noregi í síð­ustu viku. Þessi mynd var tekin í heim­sókn­inni en Kjartan hefur mörg hund­ruð millj­óna per­sónu­lega hags­muni af því að lax­eldi á Íslandi vaxi og dafni með stuðn­ingi Alþingis.

Norski lax­eld­is­ris­inn Salmar ASA, stærsti hlut­hafi Arnarlax, hefur hafið til­raunir til að kaupa upp allt hlutafé ann­arra hlut­hafa Arnarlax. Sökum þess að Salmar á orðið meiri­hluta hluta­fjár í félag­inu eftir nýleg upp­kaup á sam­tals rúm­lega 12 pró­sent hluta­fjár af félög­unum Fiski­sundi og Trygg­inga­mið­stöð­inni er Salmar skylt að gera öðrum hlut­höfum yfir­tökutil­boð í hluta­bréf þeirra í félag­inu. Um þetta er fjallað í til­kynn­ingu frá Salmar AS til norsku kaup­hall­ar­innar sem birt var í morgun. 

Í til­kynn­ing­unni segir: „Vísað er til kaup­hall­ar­til­kynn­inga frá 14. og 19. febr­úar árið 2019 í kjöl­far kaupa Salmar ASA á hluta­bréfum í Arn­ar­laxi AS. Afleið­ing af þeim upp­kaupum er sú að Salmar er skuld­bundið, sam­kvæmt hlut­hafa­sam­komu­lagi Arnarlax AS, að gera öðrum eft­ir­stand­andi hlut­höfum til­boð í hluti þeirra í Arn­ar­laxi AS.“ Sá tími sem til­boðið gildir er frá því í dag, 13. mars og til 10. apríl. Tilboðið hljóðar upp á 55.783 norskar krónur á hlut.“ 

Á 3 pró­sent hlutNorski hót­el­eig­and­inn Petter Storda­len er meðal hlut­hafa í Arn­ar­laxi sem getur nýtt sér yfir­tökutil­boð Salmar.

Þekktur norskur auðmaður Noregs meðal hluthafa

Ekki liggur fyrir hvaða hlut­hafar Arnarlax munu nýta tæki­færið og selja hluta­bréf sín í íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu. Meðal hlut­haf­anna eru þó nokkur norsk fjár­fest­ing­ar­fé­lög, meðal ann­ars eitt fyr­ir­tæki sem er í eigu hót­el­eig­and­ans og fjöl­miðlafígúr­unnar Petter Storda­lens sem mikið er fjallað um í fjöl­miðlum í Skand­in­avíu.  Storda­len á nærri 3 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi í gengum félagið Strawberry Equities AS. 

Einn hlut­hafi sem þó hefur sagt að hann ætli ekki að selja hlut sinn er Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax. Í til­kynn­ing­unni sem send var í síð­asta mán­uði um kaup Salmar á hluta­bréfum Fiski­sunds og Trygg­ing­ar­mið­stöðv­ar­innar var það sér­stak­lega tekið fram að Kjartan ætl­aði ekki að selja bréf sín í fyr­ir­tæk­inu. Við Stundina sagði Kjartan: „Ég vil vera með áfram,“ en Kjartan á rúm­lega 2 pró­senta hlut í Arn­ar­laxi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár