Fiskisund selur í Arnarlaxi fyrir 1700 milljónir

Trygg­inga­mið­stöðin og Fiski­sund eru selj­endur hluta­bréf­anna í Arn­ar­laxi. Með við­skipt­unum lýkur aðkomu Fiski­sunds að íslensku lax­eldi en félagið hefur hagn­ast vel á hluta­bréfum með íslensk lax­eld­is­fyr­ir­tæki.

Fiskisund selur í Arnarlaxi fyrir 1700 milljónir
Trygg­inga­mið­stöðin seldi Trygg­inga­mið­stöðin, sem Sigurður Við­ars­son stýrir sem for­stjóri, seldi hluta­bréf sín í Arnarlax til Salmar AS.

Trygg­inga­fé­lagið Trygg­inga­mið­stöðin og eign­ar­halds­fé­lagið Fiski­sund ehf. seldu hluta­bréf sín í Arn­ar­laxi til norska lax­eld­is­ris­ans Salmar AS í dag fyrir um 2,5 millj­arða sam­tals.  Um var að ræða rúm­lega 12 pró­senta hlut. Trygg­inga­mið­stöðin átti 3,9 pró­sent í Arn­ar­laxi og Fiski­sund ehf. átti 8,4 pró­sent. 

Fiski­sund er eign­ar­halds­fé­lag í eigu þeirra Kára Þórs Guð­jóns­sonar, Einars Arnar Ólafs­sonar og Höllu Sigrúnar Hjart­ar­dóttur og var það stofnað utan um fjár­fest­ingu þeirra í Fjarða­laxi á sínum tíma. Árið 2016 seldu þau Fjarða­lax til Arnarlax og fengu greitt fyrir í reiðufé og með hluta­bréfum í sam­ein­uðu félagi. Einar Örn hefur verið stjórn­ar­maður í Arn­ar­laxi síðan en mun nú hverfa úr stjórn­inni þar sem hann á ekki lengur hluta­bréf í félag­inu. 

„Hluta­bréf TM í Arnarlax voru vörsluð hjá norsku fjár­mála­fyr­ir­tæki“

Hvorki TM né Fiskisund komu upp á hluthafalistanum

Í tölvu­pósti til Stund­ar­innar stað­festir Kjartan Vil­hjálms­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Trygg­inga­mið­stöð­inni, sem sér um sam­skipti við fjöl­miðla fyrir hönd trygg­inga­fé­lags­ins, að Trygg­inga­mið­stöðin hafi nú selt hlut sinn. „Já“, segir hann stutt og laggott við þeirri spurn­ingu hvort Trygg­inga­mið­stöðin sé einn þeirra aðila sem selt hafi bréfin til Salmar. 

Aðspurður hvort hluta­bréf Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar hafi verið hluti þeirra bréfa sem voru í vörslu fyr­ir­tæk­is­ins Clearstream bank­ing í Lúx­em­borg segir Kjartan: „Hluta­bréf TM í Arnarlax voru vörsluð hjá norsku fjár­mála­fyr­ir­tæki og skýrist það ein­fald­lega af því að hluta­bréfin sem TM átti voru í norska félag­inu Arnarlax AS.“

Hvorki Trygg­inga­mið­stöðin né Fiski­sund voru skráð beint á hlut­haf­alista Arnarlax og hefur Stundin ekki geta fengið það útskýrt af hverju umrætt félag í Lúx­em­borg var skráð fyrir bréf­unum.

Miðað við kaup­verðið á hluta­bréf­unum hefur Trygg­inga­mið­stöðin fengið um 800 millj­ónir króna fyrir þau.

Fengu um 1700 milljónir fyrir hlutinn

Meiri­hluti hluta­bréf­anna í Arn­ar­laxi var í eigu Fiski­sunds og hefur félagið fengið rúmar 1700 millj­ónir króna fyrir hluta­bréfin sem það seldi. Miðað við verð­mæti hluta­fjár­ins sem selt var er mark­aðsvirði Arnarlax rúm­lega 20 millj­arðar króna. Einar Örn Ólafsson, einn af eig­endum Fiski­sunds, var á fundi þegar Stundin hringdi í hann og gat því ekki farið yfir málið með blað­inu. 

Ljóst er að Fiski­sund hagn­ast veru­lega á við­skipt­unum og er sölu­verðið á hluta­fénu umtals­vert hærra en bók­fært verð hlut­ar­ins í síð­asta árs­reikn­ingi Fiski­sunds. Þar eru hluta­bréfin bók­færð á tæp­lega 1200 millj­ónir. Skuldir félags­ins voru til­tölu­lega lágar, 249 millj­ónir króna. 

Áætlaður sölu­hagn­aður Fiski­sunds á hluta­bréf­unum er því tals­verður. Þessi sölu­hagn­aður bæt­ist við 1400 milljón króna hagnað Fiski­sunds þegar félagið seldi Fjarða­lax til Arnarlax árið 2016. Áætlaður hagn­aður Fiski­sunds af við­skipt­unum með lax­eld­is­fyr­ir­tækin, sökum þess hve skuldir eru lágar, er því um þrír millj­arðar króna. 

Fiski­sund ehf. kom að eign­ar­hal­inu á Fjarða­laxi á tíma­bili þar sem erf­ið­lega hafði

gengið að fá nýja eig­endur að félag­inu og hefur Kári Þór lýst því í fjöl­miðlum að án aðkomu þeirra hefði félagið lík­lega orðið gjald­þrota.  „Fyr­ir­tækið var í sölu í næstum því heilt ár áður en það var selt en það tókst ekki að selja það. [...] Ég var ráð­gjafi eig­enda í verk­efn­inu. í fyrsta lagi að reyna að redda fjár- mögnun,“ sagði Kári og  utskýrði að hans hlut­verk hefði meðal ann­ars verið að reyna að bjarga þeim verð­mætum sem voru inni í fyr­ir­tæk­inu. „Í raun og veru var kom- inn áf samn­ingur við inn­lenda aðila sem vildu kaupa þetta. [...] Það gekk hins vegar ekki upp að kaupa félagið á tveimur til þremur vikum án þess að gera áreið­an­leika­könnun og þess vegna duttu menn út. [. ..] Ég var nátt­úru­lega bara ein­hvers konar full­trúi eig­enda að reyna að forða því að fyr­ir­tækið færi í þrot. Á end­anum sting ég upp á þessum við­skiptum og eig­endur sam­þykkja það að það megi reyna þessa leið og sam­þykkja það að Halla fengi þá að vera með í þessu, taka þátt í þessum kaupum.“ Fiski­sund ehf. hefur því gert afar gott mót fjár­hags­lega með við­skiptum sínum í íslensku lax­eldi.  Athygli vakti hins vegar á sínum tíma að Halla Sigrún Hjart­ar­dóttir, einn eig­andi Fiski­sunds, var starfs­maður fjár­fest­ing­ar­bank­ans Straums sem vann að því að finna nýja hlut­hafa að félag­inu og lét hún af störfum í bank­anum í kjöl­farið á því að Fiski­sund kom að Fjarða­laxi. 

Þau tengsl eru á milli eig­enda Fiski­sunds og Trygg­inga­mið­stöð­ar­innar að Einar Örn Ólafsson er stór hlut­hafi í trygg­inga­fé­lag­inu. Hann á 2,89 pró­sent og er jafn­framt stjórn­ar­maður í fyr­ir­tæk­inu. Því má segja að Einar Örn hagn­ist með tvenns konar hætti á sölu hluta­bréf­anna í Arn­ar­laxi,  sem eig­andi Fiski­sunds og sem hlut­hafi í Trygg­inga­mið­stöð­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár