Taívenskt bíó, forboðin ást og frelsi

Það er ýmis­legt á döf­inni í menn­ing­ar­líf­inu næstu daga.

Taívenskt bíó, forboðin ást og frelsi

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Taívanskir kvikmyndadagar

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 8.–24. mars
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Áhersla þess­ara kvik­mynda­daga er á langa og storma­sama sögu Taívan og þá fjöl­breyttu menn­ing­ar­arf­leifð lands­ins sem óháð taí­vanskt kvik­mynda­gerð­ar­fólk hefur beint sjónum sínum og órit­skoð­uðum linsum að. Sjö mjög ólíkar kvik­myndir verða sýndar, en þær eiga það sam­eig­in­legt að fjalla um mál sem ann­að­hvort eru sér­stak­lega í deigl­unni í Taívan eða hafa alþjóð­legri skírskotun.

La Traviata

Hvar? Harpa
Hvenær? 16., 23., 30. mars og 6. apríl
Aðgangs­eyrir: Frá 4.990 kr.

Lífs­gleðin. Forboðin ást. Frelsi. Íslenska óperan flytur óper­una La Traviata, eða Föllnu kon­una, eftir Giuseppe Verdi sem var frum­flutt í Feneyjum árið 1853 og er löngu orðin klassík. Sagan er í sjálfu sér ein­föld en til­finn­ing­arnar sem hún tjáir djúp­stæðar; hlut­verk Violettu, hinnar föllnu konu, er ein af flókn­ustu og ást­sæl­ustu per­sónum Verdis.

Non plus ultra

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 14. mars til 28. apríl
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Steinunn Önnu­dóttir hefur verið einn af burð­ar­bitum lista­sen­unnar; hún stofn­aði meðal ann­ars sýn­ing­ar­rýmið Harbin­ger árið 2014, sem hún rekur enn. Hún er 36. lista­mað­ur­inn til að sýna í sýn­ing­ar­röð Lista­safns Reykja­víkur í D-sal. Í verkum sínum fæst Steinunn við mál­verkið í víðum skiln­ingi, rann­sakar efn­is­eig­in­leika þess og birt­ing­ar­myndir í sögu og sam­tíma.

Súper – þar sem kjöt snýst um fólk

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 16. mars til 12. apríl
Aðgangs­eyrir: Frá 6.200 kr.

Súper er nýtt leik­rit eftir Jón Gnarr og leik­stýrt af Benedikt Erlings­syni, en það er sýnt í Kassanum. Átta per­sónur hitt­ast í stór­mark­aði og eiga það sem virð­ist við fyrstu sýn vera ein­lægar sam­ræður en eru í raun sjálf­hverfar, og finna vörur í búð­inni sem gera þau heil­steypt­ari. Boðið verður upp á sér­stakar umræður á eftir sýn­ing­una 28. mars.

Matthildur

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 16. mars til 9. maí
Aðgangs­eyrir: Frá 7.900 kr.

Matt­hildur er nýr söng­leikur sem byggir á hinni róm­uðu skáld­sögu Roalds Dahl. Litla stúlkan Matt­hildur er óvenju­lega gáfuð, til­finn­inga­næm og bókelsk og lík­lega þess vegna með sér­lega ríkt ímynd­un­ar­afl. For­eldrar hennar eru þó af öðru sauða­húsi, fáfróð og óhefluð, og skóla­stjór­inn Karítas Mínherfa er hrein­asta martröð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár