Aðstoðarmaður Bjarna segir að skattleysismörkum verði haldið óbreyttum

Enn ýmsum spurn­ingum ósvarað um fyr­ir­ætl­anir rík­is­stjórn­ar­innar.

Aðstoðarmaður Bjarna segir að skattleysismörkum verði haldið óbreyttum
Páll Ásgeir Guð­munds­son, aðstoð­ar­maður ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Pressphotos.biz

Páll Ásgeir Guð­munds­son, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, segir að rík­is­stjórnin vilji halda per­sónu­af­slætti og skatt­leys­is­mörkum óbreyttum næstu árin meðan skatt­kerf­is­breyt­ingar verða inn­leiddar.

„Hann [per­sónu­af­slátt­ur­inn] verður fryst­ur á meðan verið er að inn­leiða nýtt kerfi, í þrjú ár. Skatt­leys­is­mörk­um verður haldið óbreytt­um,“ segir Páll í við­tali við Mbl.is.

Sé þetta raunin munu per­sónu­af­sláttur og skatt­leys­is­mörk rýrna umtals­vert að raun­virði. Ummælin eru að vissu leyti í sam­ræmi við upp­lýs­ingar sem gefnar hafa verið í til­kynn­ingu á vef fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Þar er talað um „til­lögur starfs­hóps­ins að breyttum skatt­þrepum, skatt­hlut­falli, per­sónu­af­slætti og skatt­leys­is­mörkum“ en gefnar upp fjár­hæðir per­sónu­af­sláttar og skatt­leys­is­marka sem eru óbreyttar, þær sömu og gilda árið 2019, þ.e. 56.477 krónur og 159.174 krónur.

Í glæru­sýn­ingu fjár­mála­ráð­herra kom hins vegar fram að áætluð skatt­leys­is­mörk miðað við verð­lags­þróun yrðu 178.503 krónur árið 2022, þ.e. myndu ekki hald­ast óbreytt næstu árin. Einungis per­sónu­af­sláttur yrði frystur á tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár