Fórnarlömb eða skrímsli?

Hart er deilt um örlög ungra stúlkna sem yfir­gáfu heim­ili sín á Vest­ur­löndum til að ganga til liðs við íslamska hryðju­verka­menn í Sýrlandi. Tugir slíkra stúlkna hafa óskað eftir því að snúa heim til Bret­lands með börn sín en margar þeirra hafa ekki sýnt iðrun. Óttast er að þær séu enn heila­þvegnar og því ógn við öryggi Bret­lands.

Fórnarlömb eða skrímsli?

Shamima Begum ólst upp í Bethnal Green í aust­ur­hluta Lundúna og átti að sögn ósköp venju­lega barn­æsku. Hún var 15 ára gömul þegar móðir hennar lést af völdum krabba­meins árið 2014 en fjöl­skyldan hélt veik­ind­unum lengi leyndum fyrir Shamimu. Áfallið var því bæði þungt og skyndi­legt. Shamima tók strax miklum breyt­ingum eftir and­látið, að sögn ætt­ingja. Hún byrj­aði að skrópa í skól­anum, van­rækja námið og verja löngum stundum á net­inu en hvarf um leið af sam­fé­lags­miðlum.

Það eina sem Shamima erfði eftir móður sína voru gömlu skart­grip­irnir hennar. Einn kaldan morgun í des­em­ber fór hún með skartið til veð­mang­ara sem lét hana hafa rúm­lega þús­und pund. Shamima keypti sér flug­miða (aðra leið) til Istanbúl í Tyrk­landi og var degi seinna komin yfir landa­mærin til Sýrlands þar sem hún gaf sig á vald hryðju­verka­sam­tak­anna sem kenna sig við íslamskt ríki. Hún sendi föður sínum bréf þar sem hún sagð­ist ætla …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár