Dómsmálaráðherra segir samvinnu við brottvísun hælisleitenda dýrmæta fyrir Ísland

Dóms­mála­ráð­herra er ánægð með áhrif Dyfl­inn­ar­sam­starfs­ins á Íslandi, en Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin hefur gert stjórn­völdum kleift að vísa miklum fjölda hæl­is­leit­enda úr landi án efn­is­með­ferðar.

Dómsmálaráðherra segir samvinnu við brottvísun hælisleitenda dýrmæta fyrir Ísland

Dyfl­inn­ar­sam­starfið og sam­vinnan er snýr að brottvísun hæl­is­leit­enda hefur verið dýr­mæt fyrir Ísland. Þetta kemur fram í skýrslu dóms­mála­ráð­herra um Schengen-sam­starfið sem kynnt var í dag.

Dyfl­inn­ar­sam­starfið lýtur að máls­með­ferð ríkja í mál­efnum hæl­is­leit­enda og byggir á Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni svoköll­uðu sem kveður á um að ábyrgð á með­ferð hæl­is­um­sókna hvíli á því ríki sem hæl­is­leit­andi óskar fyrst eftir hæli í. Vegna land­fræði­legrar stöðu Íslands hefur Dyfl­inn­ar­sam­starfið gert stjórn­völdum kleift að vísa burt drjúgum hluta hæl­is­leit­enda und­an­farna ára­tugi án þess að taka umsóknir þeirra til efn­is­með­ferðar. 

„Hvað málefni flótta­manna varðar er Schengen-sam­starfið einnig dýrmætt fyrir Ísland, þá einkum og sér í lagi Dyfl­inn­ar­sam­starfið og sam­starfið og sam­vinnan þegar kemur að brottvísunum þeirra sem dvelja ólöglega innan svæð­is­ins,“ segir í skýrslu dóms­mála­ráð­herra.

Bent er á að Dyfl­inn­ar­kerfið hafi ekki verið hannað til að takast á við þær aðstæður sem sköp­uð­ust í Evrópu árið 2015 vegna auk­innar komu flótta­manna. „Í kjölfarið kom fram ýmis gagnrýni á kerfið, gagnrýni sem raunar á sér lengri aðdrag­anda en náði hámarki árið 2015. Núver­andi Dublin­kerfi þykir þannig hvorki sjálfbært né þykir það dreifa ábyrgð með sann­gjörnum hætti meðal þátttökuríkja. Það hefur leitt til mik­ils þrýstings á fá þátttökuríki sem bera ábyrgð á flestum umsækj­endum um alþjóðlega vernd vegna land­fræði­legrar legu sinnar. Auk álags­ins á ein­staka ríki dregur svo mik­ill þrýstingur úr skil­virkni kerf­is­ins,“ segir í skýrsl­unni.

Þá kemur fram að á fundi leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ins um útlend­inga­mál þann 28. júní í fyrra hafi mátt greina „ákveðna grund­vall­ar­breyt­ingu í við­horfi varð­andi heild­ar­stefnu sam­bands­ins í útlend­ingamálum“. Sú breyt­ing feli fyrst og fremst í sér aukna áherslu á styrk­ingu ytri landamæra og öryggi innan Schengen-svæð­is­ins. „Þessi við­horfs­breyt­ing hefur bein áhrif á Ísland sem þátttak­anda í Schengen-sam­starf­inu og öllum aðgerðum sem miða að styrk­ingu ytri landamæra.“

Dóms­mála­ráð­herra segir helsta ávinn­ing Íslend­inga af Schengen-sam­starf­inu vera hina auð­veldu og þægi­legu för milli landa án landamæra­eft­ir­lits með til­heyr­andi töfum á landamæra­stöðvum og töfum. Þá skipti sköpum fyrir Ísland að hafa aðgang að lög­reglu­sam­vinnu í gegnum Schengen. „Fyrir Ísland er einnig mik­ill ávinn­ingur fólginn í sam­ræmdri stefnu um útgáfu vega­bréfsárit­ana sem gerir íslenskri stjórnsýslu kleift að njóta fyr­ir­svars ann­arra Schengen-ríkja við útgáfu árit­ana inn á svæðið sem greiðir veru­lega fyrir straumi ferða­manna til Íslands.“ Loks er því fagnað hvað sam­starfið á sviði flótta­manna­mála hafi reynst dýr­mætt. 

Athygli vakti í jan­úar 2017 þegar til­kynnt var á vef dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins að Sigríður Andersen hefði lýst efa­semdum fyrir Íslands hönd gagn­vart fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni og áformum um aukna sam­á­byrgð Evr­ópu­ríkja vegna flótta­manna­vand­ans á fundi dóms­mála­ráð­herra og inn­an­rík­is­ráð­herra í Valetta á Möltu. Í skýrsl­unni sem kynnt var í dag virð­ist tekið undir að ann­markar hafi verið á Dyfl­inn­ar­kerf­inu. Áhrifum Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar á flótta­manna­mál á Íslandi er hins vegar fagnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár