Ekki víst að hert út­lendinga­stefna ríkis­stjórnarinnar standist lög

Í nýlegri reglu­gerð Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra er kveðið á um for­gangs­röðun sjón­ar­miða sem hvergi koma fram í lögum né lög­skýr­ing­ar­gögnum.

Ekki víst að hert út­lendinga­stefna ríkis­stjórnarinnar standist lög
Tog­streita milli lög­gjafar- og fram­kvæmda­valds Arndís A. K. Gunn­ars­dóttir, lög­fræð­ingur og dokt­or­snemi í Strass­borg, veltir því upp hvort ákvæði í reglu­gerð dóms­mála­ráð­herra þrengi svig­rúm stjórn­valda til mats umfram laga­stoð. Mynd: Stjórnarráðið

Hert útlend­inga­stefna núver­andi rík­is­stjórnar kann að vera komin út fyrir þann ramma sem stjórn­völdum er mark­aður með lögum. Áhöld eru um hvort ákvæði í reglu­gerð Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra frá 6. mars síð­ast­liðnum stand­ist lög eða feli í sér þreng­ingu umfram laga­stoð á svig­rúmi stjórn­valda til mats á því hvort hæl­is­um­sóknir skuli teknar til efn­is­með­ferðar. 

Fjallað er ítar­lega um Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ina og fram­kvæmd íslenskra stjórn­valda í grein Arndísar Önnu Krist­ín­ar­dóttur Gunn­ars­dóttur, dokt­or­snema við Strass­borg­ar­há­skóla og fyrrum lög­fræð­ings hjá Rauða kross­inum, sem birt­ist í nýjasta hefti Úlfljóts, tíma­rits laga­nema við Háskóla Íslands. 

Meg­in­nið­ur­staða grein­ar­innar er sú að mynd­ast hafi tog­streita milli fyr­ir­ætl­ana lög­gjafans og fram­kvæmdar stjórn­valda við beit­ingu Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Meðan Alþingi geri breyt­ingar sem miði að því að rýmka heim­ildir stjórn­valda til þess að taka hæl­is­um­sóknir til efn­is­með­ferðar haldi stjórn­völd áfram að túlka útlend­inga­lög­gjöf­ina mjög þröngt. Reglu­gerð Sigríðar Andersen, sem sam­þykkt var sama dag og meiri­hluti þing­manna varði ráð­herr­ann van­trausti, feli í sér þreng­ingu á túlkun 36. gr. útlend­inga­laga, jafn­vel þreng­ingu umfram laga­stoð. 

Stundin fjall­aði ítar­lega um reglu­gerð­ina í mars síð­ast­liðnum, en í henni er því meðal ann­ars slegið föstu að heilsu­far hæl­is­leit­enda skuli hafi „tak­markað vægi“ nema ákveðin skil­yrði séu upp­fyllt, til dæmis að þeir glími við „mikil og alvar­leg veik­indi, svo sem skyndi­legan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm og með­ferð við honum [sé] aðgengi­leg hér á landi en ekki í við­töku­ríki“.

Rauði kross­inn gagn­rýndi reglu­gerð­ina harð­lega og benti á að hertu skil­yrðin næðu bæði til full­orð­inna og barna. „Þannig virð­ist vera gert ráð fyrir að börn sem eru haldin sjúk­dómi sem ekki nær þeim alvar­leika­þrös­k­uldi að telj­ast skyndi­legur og lífs­hættu­legur skuli end­ur­send til við­töku­ríkis, jafn­vel þó að for­eldrar barns­ins muni þurfa að greiða fyrir með­ferð við sjúk­dómnum í við­töku­ríki, án þess að frekara mat fari fram á ein­stak­lings­bundnum aðstæðum barns­ins,“ segir í umsögn Rauða kross­ins.

Þegar fjallað var um reglu­gerð Sigríðar í fjöl­miðlum birti dóms­mála­ráðu­neytið frétta­til­kynn­ingu þar sem full­yrt var að í reglu­gerð­inni væri að finna „almenn við­mið sem líta [bæri] til við með­ferð mála og því ekki tæm­andi talin þau til­vik sem stjórn­völdum ber eða er heim­ilt að líta til við afgreiðslu umsókna um alþjóð­lega vernd í þeim til­vikum er Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin á við“. Þá kom fram að „hvert og eitt mál [væri] ávallt metið sér­stak­lega og stjórn­völdum látið eftir mat á vægi þeirra sjón­ar­miða sem fram koma í reglu­gerð­inni“. 

Í grein sinni sem birt­ist í Úlfljóti bendir Arndís Anna hins vegar á að í reglu­gerð­inni standi skýrum stöfum að stjórn­völdum beri að „leggja meg­in­á­herslu á mik­il­vægi sam­vinnu aðild­ar­ríkja Dyfl­inn­ar­sam­starfs­ins og skil­virkni umsókn­ar­ferl­is­ins“ auk þess sem vísað sé til til þess að sjón­ar­mið um skil­virkni umsókn­ar­ferl­is­ins end­ur­speglist í 47. reglu­gerð­ar­innar. 

Sigríður Á. Andersendóms­mála­ráð­herra

„Eru stjórn­völdum hér bein­línis gefin fyr­ir­mæli um for­gangs­röðun sjón­ar­miða, þar sem sjón­ar­miði sem hvergi kemur fram í lögum eða lög­skýr­ing­ar­gögnum – þ.e. um mik­il­vægi sam­vinnu aðild­ar­ríkja Dyfl­inn­ar­sam­starfs­ins – er skipað öðrum framar,“ skrifar Arndís. „Þvert á móti er í lög­skýr­ing­ar­gögnum lögð áhersla á ein­stak­lings­bundið mat stjórn­valda á per­sónu­bundnum aðstæðum umsækj­anda um alþjóð­lega vernd og á vernd ein­stak­linga í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu.“

Í þessu sam­hengi vísar hún sér­stak­lega til úrskurðar kæru­nefndar útlend­inga­mála frá 10. októ­ber 2017 en þar kom skýrt fram sú túlkun nefnd­ar­innar að lög­skýr­ing­ar­gögn gæfu til kynna að „við­kvæm staða umsækj­enda skuli hafa aukið vægi and­spænis sjón­ar­miðum sem tengj­ast m.a. skil­virkni við með­ferð umsókna og mik­il­vægis sam­vinnu aðild­ar­ríkja Dyfl­inn­ar­sam­starfs­ins“.

Sé fall­ist á þessa túlkun kæru­nefnd­ar­innar á vilja lög­gjafans má leiða líkum að því að dóms­mála­ráð­herra hafi ekki fylgt lög­mæt­is­reglu stjórn­ar­skrár­innar við setn­ingu reglu­gerð­ar­innar, þ.e. að stjórn­valds­fyr­ir­mælin sam­ræm­ist ekki þeim mark­miðum og við­horfum lög­gjafans sem lágu að baki lög­unum sem reglu­gerðin byggir á.

Arndís fjallar sér­stak­lega um tvo meg­in­þætti breyt­ing­ar­reglu­gerð­ar­innar frá 6. mars, ann­ars vegar um túlkun á sér­stökum ástæðum og hins vegar á þýð­ingu hags­muna barns. 

Samkvæmt 2. mgr. 36. útlend­inga­laga ber stjórn­völdum að taka hæl­is­um­sókn til efn­is­með­ferðar ef útlend­ing­ur­inn hefur slík sér­stök tengsl við landið að nær­tæk­ast sé að hann fái hér vernd eða ef sér­stakar ástæður mæla ann­ars með því. Arndís bendir á að sam­kvæmt athuga­semdum við ákvæðið í frum­varpi til lag­anna er byggt á því að um ein­stak­lings­bundna ákvörðun sé að ræða þannig að metið sé hvort var­huga­vert væri að senda til­tek­inn hæl­is­leit­anda til ann­ars ríkis sam­kvæmt ákvæðum Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Í öllum málum er varða end­ur­send­ingar til þriðja lands skuli fara fram „ítar­legt mat á aðstæðum við­kom­andi útlend­ings og aðstæðum og ástandi í mót­töku­ríki“. Arndís vitnar líka í athuga­semdir við frum­varp um breyt­ingar á útlend­inga­lögum sem sam­þykkt var í fyrra en þar er árétt­aður sá vilji lög­gjafans að „ávallt skuli taka til efn­is­legrar með­ferðar umsóknir um alþjóð­lega vernd ef umsækj­andi er í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu“. Hún telur ekki hægt að álykta annað af lög­skýr­ing­ar­gögnum en að mark­mið 2. mgr. 36. gr. lag­anna hafi verið að skylda stjórn­völd til að meta aðstæður umsækj­enda í hverju ein­stöku til­viki, meta við­kvæma stöðu umsækj­anda per­sónu­bundið í hverju máli fyrir sig, og að ef ein­stak­lingur telj­ist í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu skuli almennt taka umsókn­ina til efn­is­með­ferðar. 

Bent er á að sam­kvæmt almennum lög­skýr­ing­ar­reglum ber að túlka und­an­tekn­ing­ar­heim­ildir í lögum þröngt og sam­kvæmt 1. mgr. 36. gr. útlend­inga­laga er meg­in­reglan sú að hæl­is­um­sókn skuli tekin til efn­is­með­ferðar nema til­teknir staf­liðir lag­anna eigi við og rétt þyki að beita þeim. Þótt lögin veiti stjórn­völdum heim­ild til að synja um efn­is­með­ferð undir vissum kring­um­stæðum leggja þau jafn­framt skyldu á stjórn­völd að taka umsóknir til efn­is­með­ferðar við til­teknar aðstæður. Í reglu­gerð Sigríðar Andersen eru hins vegar hendur stjórn­valda bundnar og þeim gefin nokkuð nákvæm fyr­ir­mæli um hvenær má og má ekki taka umsókn til efn­is­legrar með­ferðar á grund­velli sér­stakra aðstæðna. „Í ljósi þess sem fram er komið um þrönga túlkun und­an­tekn­ing­ar­á­kvæða í lögum og um túlkun mats­kenndra reglu­gerð­ar­heim­ilda leikur vafi á um hvort ákvæði 3. og 4. mgr. 32. gr. a reglu­gerðar um útlend­inga þrengi svig­rúm stjórn­valda til mats umfram laga­stoð,“ skrifar Arndís. 

Arndís A. K. Gunn­ars­dóttirdokt­or­snemi við Strass­borg­ar­há­skóla en starf­aði áður sem lög­fræð­ingur hjá Rauða kross­inum

Í reglu­gerð Sigríðar er sér­stak­lega tekið fram að almenn við­mið reglu­gerð­ar­innar gildi einnig í málum barna. Þá er vikið að fylgd­ar­lausum börnum og mælt fyrir um að „Útlend­inga­stofnun [sé] heim­ilt að taka umsókn fylgd­ar­lauss barns til efn­is­legrar með­ferðar á grund­velli sér­stakra ástæðna, sam­rým­ist það hags­munum þess og afstöðu. Hagsmuni fylgd­ar­lauss barns ber m.a. að meta með hlið­sjón af mögu­leikum barns til fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, sbr. 8. gr. Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar […]. Við mat á sér­stökum ástæðum er heim­ilt að horfa til ungs ald­urs við­kom­andi sem náð hefur 18 ára aldri en sann­an­lega verið fylgd­ar­laust barn við komu til lands­ins“. 

Arndís bendir á að þarna eru settar reglur um heim­ildir stjórn­valda til að taka umsóknir fylgd­ar­lausra barna til efn­is­með­ferðar sem ganga skemur en ákvæði Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar í þessum efnum, en í 8. gr. hennar er ábyrgðin á með­ferð umsóknar barns í þeirri stöðu lögð á það ríki þar sem barnið er statt. „Er íslenskum stjórn­völdum því skylt að taka slíka umsókn til efn­is­með­ferðar sam­kvæmt ákvæðum Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Verður því að telja þetta ákvæði reglu­gerðar um útlend­inga hafa tak­mark­aða, ef nokkra, þýð­ingu við beit­ingu 36. gr. laga um útlend­inga,“ skrifar Arndís. 

Þetta er athygl­is­vert í sam­hengi við ákvæði 32. gr. sömu reglu­gerðar sem áður var fjallað um, þar sem stjórn­völd eru skylduð til að „leggja meg­in­á­herslu á mik­il­vægi sam­vinnu aðild­ar­ríkja Dyfl­inn­ar­sam­starfs­ins og skil­virkni umsókn­ar­ferl­is­ins“. Þrátt fyrir þetta felur sama reglu­gerðin sem­sagt í sér ákvæði sem sam­ræm­ast ekki Dyfl­inn­ar­reglum um fylgd­ar­laus börn. 

Í reglu­gerð Sigríðar er þrengt að svig­rúmi stjórn­valda til mats á því hvort heim­ilt sé að taka mál til efn­is­með­ferðar á grund­velli tengsla umsækj­anda við lands­ins. Þannig kemur fram að Útlend­inga­stofnun sé heim­ilt að líta til tengsla á grund­velli fyrri dvalar ef umsækj­andi hefur „áður verið með útgefið dval­ar­leyfi hér á landi í eitt ár eða lengur“, en þó ekki ef umsækj­andi hefur „dvalist erlendis lengur en 18 mán­uði sam­fellt frá útgáfu síð­asta dval­ar­leyfis“ nema tengslin séu „mjög sterk“. 

Arndís bendir á að í athuga­semdum við frum­varp til útlend­inga­laga er ekki gert ráð fyrir svo ströngu mati. „Þar segir um sér­stök tengsl að þau geti átt við í til­fellum þar sem tengsl eru rík­ari en við við­töku­land, svo sem vegna fyrri dvalar. Ekki er þar gerð nein krafa um dval­ar­leyfi eða lág­marks­gild­is­tíma. Vaknar því enn upp sú spurn­ing hvort ákvæði breyt­ing­ar­reglu­gerð­ar­innar hafi næga laga­stoð,“ skrifar hún.

Í nið­ur­stöðukafla grein­ar­innar kemur fram að svo virð­ist sem lög­gjaf­inn hafi gert nokkrar til­raunir til að víkka út gild­is­svið 2. mgr. 36. gr. laga um útlend­inga og sam­svar­andi ákvæði í eldri lögum. Hins vegar séu stjórn­völd almennt hik­andi við beit­ingu þess­ara heim­ilda og hafi til­hneig­ingu til að beita þeim þröngt. Þó hafi á allra síð­ustu miss­erum orðið þróun í aðra átt. Þeirri þróun hafi að nokkru leyti verið snúið við með setn­ingu nýrrar reglu­gerðar Sigríðar Andersen um túlkun og beit­ingu 2. mgr. og 36. gr. útlend­inga­laga. Enn eigi þó eftir að reyna á bæði túlkun og laga­stoð reglu­gerð­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár