Lifandi málverk, töfrandi raunveruleiki, og gamalt pönk

Tón­leikar, sýn­ingar og við­burðir 8.–21. febr­úar.

Lifandi málverk, töfrandi raunveruleiki, og gamalt pönk

Þetta og svo ótal margt fleira er á döf­inni næstu tvær vik­urnar.

Fígúrur í landslagi

Hvar? I8
Hvenær? Til 16. mars
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Sjö skjáir tróna á veggjum gall­er­ís­ins, en í hverjum þeirra er sól­ar­hringslangt mynd­bands­verk eftir Ragnar Kjart­ans­son. Vís­inda­menn í hvítum sloppum sjást vafra stefnu­laust um það sem við fyrstu sýn lítur út eins og mál­verk, en Ragnar segir að hvert og eitt þeirra teng­ist á einn eða annan hátt sós­í­al­r­eal­isma í anda þess sem dafn­aði í Sov­ét­ríkj­unum.

Fræbbblarnir

Hvar? Hard Rock
Hvenær? 8. febr­úar kl. 22.00

Árið 1978 fædd­ist fyrsta tækni­frjóvg­aða barnið, 900 með­limir sér­trú­ar­söfn­uðar Jim Jones í Gvæjana frömdu sjálfs­víg, og Fræbbbl­arnir stigu fyrst á svið. Á þeim tæpu 41 ári sem hafa liðið hefur þessi elsta pönk­hljóm­sveit Íslands spilað á ógrynni af tón­leikum, en þeir halda áfram að gera það enn þann dag í dag.

Umrót

Hvar? Hafn­ar­borg
Hvenær? Til 17. mars
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Verk Mörtu Maríu eru óhlut­bundin, á mörkum teikn­ingar og mál­verks, og mynd­heim­ur­inn ljóð­rænn og opinn. Þau sýna óræðan heim sem er við það að leys­ast upp, heim sem er á mörkum þess að mynd­ast eða eyð­ast. Pens­il­strokur og flæði lit­ar­ins virka sem stoðir mál­verks­ins, liggja ekki ofan á mynd­flet­inum heldur byggja upp mynd­ina.

Ben Frost

Hvar? Mengi
Hvenær? 8. febr­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.500 kr.

Ástralsk-íslenski tón­list­ar­mað­ur­inn Ben Frost spilar í fyrsta skiptið á Mengi, en hann mun flytja Widening Gyre sem er tón­leika­út­gáfa plöt­unnar The Centre Cannot Hold sem kom út árið 2017. Þá hefur Ben hannað hljóð­rýmið eins og unnið var að plöt­unni í stúd­íói. Áhorf­and­inn situr inni í miðri hring­iðu fjöl­punkta hljóð­um­hverfis sem er ætlað til að örva skiln­ing­ar­vitin.

Vetrarhátíð

Hvar? Höf­uð­borg­ar­svæðið
Hvenær? Til 10. febr­úar
Aðgangs­eyrir: Fer eftir við­burði

Vetr­ar­há­tíð Reykja­víkur er hátíð ljóss og myrk­urs, en um 150 stakir við­burðir tengj­ast hátíð­inni. Á föstu­dag­inn 8. febr­úar er Safna­nótt, en þá opna 53 söfn dyr sínar end­ur­gjalds­laust og frítt verður í sér­stakan Safn­ar­næt­ur­strætó á milli safna. Laug­ar­dag­inn 9. febr­úar er síðan Sund­laug­arnótt, en þá verður frítt í tólf sund­laugar frá 15.00–22.00.

Velkomin heim!

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? 9., 10., & 15. febr­úar
Aðgangs­eyrir: 6.200 kr.

Í þess­ari leik­sýn­ing­unni segir leik­konan María Thelma Smára­dóttir sögu móður sinnar, Völu Rúnar, sem fædd­ist á hrís­grjóna­akri í Taílandi um miðja 20. öld­ina. Vala þekkti ekki föður sinn og missti móður á ungum aldri, en flutti til Íslands fyrir 26 árum þrátt fyrir að kunna ekki málið og þekkja engan. Samt leið henni frekar eins og hún væri komin heim á Íslandi en henni leið undir lokin í Taílandi.

Hringur, ferhyrningur og lína

Hvar? Kjar­vals­staðir
Hvenær? 8. febr­úar til 28. apríl
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Verk Eyborgar Guð­munds­dóttur byggja á fyr­ir­myndum geó­metrískrar abstrakt­listar þar sem sjón­ræn áhrif reglu­bund­inna forma eru meg­in­á­herslan, stíll sem kenndur er við „Op-list“. Ferill Eyborgar spann­aði fimmtán ár, en hún náði að þróa per­sónu­legt mynd­mál sem ein­kennd­ist af ein­földum formum og sjón­ar­spili sem sést í þess­ari yfir­lits­sýn­ingu.

Dj. flugvél og geimskip, Axis Dancehall

Hvar? Iðnó
Hvenær? 20. febr­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 500 kr.

Dj. flug­vél og geim­skip er hlið­ar­sjálf lista­kon­unnar Stein­unnar Eld­flaugar, en í því hlut­verki flytur Steinunn lög um töfróttan raun­veru­leika þar sem viti bornar skepnur eiga flókið til­finn­inga­líf. Hún fagnar útgáfu plöt­unnar Our Atlantis á þessum tón­leikum, en með henni spila stuð­bolt­arnir Axis Dancehall sem fagna útgáfu plöt­unnar Celebs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár