List í almannarými, fögnuður myrkurs og Einræðisherrann

Tón­leikar, sýn­ingar, og við­burðir 11.–24. jan­úar.

List í almannarými, fögnuður myrkurs og Einræðisherrann

Þetta og svo margt fleira er að ger­ast næstu tvær vik­urnar.

Einræðisherrann

Hvar? Þjóð­leik­húsið
Hvenær? til 23. febr­úar
Aðgangs­eyrir: frá 3.000 kr.

Þessi leik­sýn­ing er óður til sam­nefnds meist­ara­verks Charlie Chaplins en leik­stjór­inn, Nikolaj Cederholm, hlaut mikið lof þegar hann sýndi það í Nørrebro-leik­hús­inu í Kaup­manna­höfn á liðnu leik­ári. Á Íslandi tekur Sigurður Sig­ur­jóns­son að sér hlut­verk flæk­ings­ins sem verður ein­ræð­is­herra fyrir röð mis­taka. Boðið verður upp á umræður eftir sýn­ingu 12. jan­úar. 

Dynfari, Úlfúð, Morpholith

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 12. jan­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 1.000 kr.

Blásið er til dúm-kvölds á Gauknum til að fagna myrkr­inu. Dynfari spilar draum­kennda tón­list inn­blásna af black metal. Vopnaðir reyk­elsum, kerta­ljósi og dáleið­andi tónum sigla þeir skiln­ing­ar­vitum áheyr­enda í aðra ver­öld. Úlfúð er sam­an­safn mis­mun­andi strauma innan öfgarokks. Níðþungt grúv, svíf­andi meló­díur og kalt, ófyr­ir­gef­andi hatur. Morp­holith hefur markað sér stöðu sem þyngsta starf­andi dúm-hljóm­sveit lands­ins.

Núna 2019

Hvar? Borg­ar­leik­húsið
Hvenær? 12., 13., & 20. jan­úar
Aðgangs­eyrir: 6.550 kr.

Þrír ungir höf­undar, þau Hildur Selma Sig­berts­dóttir, Matthías Tryggvi Har­alds­son og Þórdís Helga­dóttir, sýna hvert sitt 30 mín­útna verk, sem voru þróuð með Borg­ar­leik­hús­inu og leik­stjór­anum Kristínu Jóhann­es­dóttur. Verkin fjalla um allt frá ein­manna­leika, skilnað, ein­búa og veru­leikaflótta.

Versatile Uprising

Hvar? Veður og vindur
Hvenær? Til 26. febr­úar
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Þetta gagn­virka lista­verk eftir Claire Paugam og Raphaël Alex­andre bregst við hreyf­ingu áhorf­enda með flóknu munstri af ljósum og hljóðum. Veður og vindur er götugall­erí í glugga Hverf­is­götu 37 sem hefur það yfir­lýsta mark­mið að tengja saman list­ina, borg­ina og gang­andi veg­far­endur. Sýningar standa yfir í einn eða tvo mán­uði og eru opnar allan dag­inn.

Svartir sunnudagar: The Princess Bride 

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 13. jan­úar kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Það er nán­ast óhugs­andi að þessi klass­íska ævin­týra- og skylm­ing­ar­mynd sé nú fyrst að rata á dag­skrá Svartra sunnu­daga, en hún verður sýnd í tveimur sölum. Fjöl­skyldu­væn kvik­myndin fjallar um ótrú­legan kraft ást­ar­innar og sýnir hvernig jafn­vel hinir verstu tuddar geta orðið að bestu mátum ef þeim er mætt af skiln­ingi og kær­leika. Myndin er sýnd með íslenskum texta.

CLOSEUPS

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? Til 14. febr­úar
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Norska lista­konan Ingunn Vestby sýnir á abstrakt hátt mynd­mál hringrásar nátt­úr­unnar. Mynd­irnar end­ur­spegla ferla og stöðuga end­ur­tekn­ingu svo óljóst er hvort eitt­hvað sé að fara að mynd­ast eða leys­ast upp. Ingunn vinnur með bland­aða tækni og notar ljós­myndir, textíl og mál­verkið gjarnan hvort fyrir sig eða sam­blandað.

Kristín Anna 

Hvar? Mengi
Hvenær? 19. jan­úar kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Kristín Anna Val­týs­dóttir hefur verið virk í tón­list­ar­heim­inum í rúm­lega tvo ára­tugi. Hún var ein af stofn­með­limum til­rauna­kenndu hljóm­sveit­ar­innar múm og hefur haldið tón­leika og gjörn­inga víða sem Kría Brekkan. Hún kemur nú fram undir eigin nafni og spilar bæði ný og eldri píanó og sönglög úr eigin smiðju á þessum tón­leikum.

Undir sama himni – List í almenningsrými

Hvar? Ásmund­ar­safn
Hvenær? 19. jan til 31. des
Aðgangs­eyrir: 1.800 kr.

Lista­safn Reykja­víkur helgar árið 2019 lista­verkum í almenn­ings­rými. Af því til­efni verður lögð áhersla á úti­lista­verk í Ásmund­ar­safni á árinu. Sett er upp sýn­ing á verkum Ásmundar Sveins­sonar í hluta safns­ins sem stendur út árið. Verkin á sýn­ing­unni eru bæði frum­myndir verka sem standa úti í almenn­ings­rými eða verk sem tengj­ast þeim. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár