Veittu vildarviðskiptavinum 60 milljarða lán með tölvupóstum

Glitnir veitti vild­ar­við­skipta­vinum sínum mikið magn hárra pen­inga­mark­aðs­lána án þess að skrifað væri undir samn­ing um þau. Bankinn skoð­aði rift­anir á upp­greiðslu fjöl­margra slíkra lána í aðdrag­anda og í kjöl­far hruns­ins. Sá ein­stak­lingur sem greiddi mest upp af slíkum lánum var Einar Sveins­son.

Veittu vildarviðskiptavinum 60  milljarða lán með tölvupóstum
Gerðu upp lán fyrir tím­ann Bræð­urnir Einar og Benedikt Sveins­synir gerðu upp pen­inga­mark­aðs­lán sem þeir voru með hjá Glitni fyrir loka­gjald­daga þeirra. Glitnir skoð­aði riftun á þessum upp­greiðslum og öðrum sam­bæri­legum eftir hrunið 2008. Mynd: Morgunblaðið

Stór hópur vild­ar­við­skipta­vina Glitnis-banka gerði upp skamm­tíma­lán, svokölluð PM-lán, sín við bank­ann fyrir tím­ann í aðdrag­anda banka­hruns­ins eða skömmu eftir það og skoð­aði skila­nefnd Glitnis mögu­legar rift­anir á þessum við­skiptum í kjöl­far hruns­ins. Þetta kemur fram í minn­is­blaði, sem end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið Deloitte vann fyrir Glitni í kjöl­far banka­hruns­ins árið 2008, sem dag­sett er í ágúst 2011. 

MInn­is­blað DeloitteÍ minn­is­blaði Deloitte fyrir Glitni er fjallað um mögu­legar rift­anir á upp­greiðslu tæp­lega 60 millj­arða króna lána.

Meðal þess­ara við­skipta­vina Glitnis voru Einar Sveins­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Glitnis og við­skipta­fé­lagi og frændi Bjarna Bene­dikts­sonar, Helga S. Guð­munds­dóttir, þáver­andi eig­in­kona Þor­steins M. Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja og stjórn­ar­for­manns Glitnis, félag Bene­dikts Sveins­sonar, föður Bjarna Bene­dikts­sonar og bróður Einars, Eyrir Invest og Axel ehf., dótt­ur­fé­lag Samherja. 

Í skjali sem Stundin hefur undir höndum kemur fram að Einar Sveins­son hafi verið í per­sónu­legri ábyrgð fyrir upp á nærri millj­arð króna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Glitnisgögnin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár