Nýr stjórnarformaður Secret Solstice var í Panamaskjölunum

Fyrra rekstr­ar­fé­lag Secret Solstice er ógjald­fært og margir hafa ekki fengið greitt. Ný kennitala hátíð­ar­innar er tengd fyrri eig­endum. Fulltrúi Reykja­vík­ur­borgar ítrekar að ekki hafi verið gengið frá samn­ingum vegna hátíð­ar­innar 2019.

Nýr stjórnarformaður Secret Solstice var í Panamaskjölunum
Secret Solstice Hátíðin hefur verið haldin frá árinu 2014. Mynd: Pressphotos

Guð­mundur Hreið­ars­son Viborg, stjórn­ar­for­maður félags­ins sem tekur við rekstri tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Secret Solstice, var nefndur á nafn í Panama­skjöl­unum. Fyr­ir­tækið sem hefur rekið hátíð­ina hingað til er ógjald­fært og hafa margir lista­manna og starfs­manna enn ekki fengið greitt fyrir vinnu sína. Aðstand­endur nýju kenni­töl­unnar eru mikið til þeir sömu og hjá þeirri fyrri, fjöl­skyldu­með­limir Jóns Ólafs­sonar vatns­út­flytj­anda.

Guð­mundur var skráður hlut­hafi Galahan Corp á Bresku Jóm­frú­areyjum frá jan­úar 2008. Fyr­ir­tækið var skráð af lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca, sem hélt utan um fjölda íslenskra aflands­fé­laga eins og Wintris, félag Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur og Falson & Co., félag Bjarna Bene­dikts­sonar.

„Ég átti það einu sinni,“ segir Guð­mundur. „Ég get alveg sagt þér eins og er að þetta félag var stofnað og gerði ekki neitt. Það var ekki um neina starf­semi að ræða.“

Milli­göngu­að­ili um stofnun félags­ins var Nordea Bank í Lúx­em­borg. Guð­mundur var á þessum tíma búsettur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Hvernig peningaslóð stjórnenda Kaupþings og maka þeirra liggur til Tortólu
Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.
Sæmarksstjóri ákærður ásamt lögmanni fyrir stórfelld skattsvik og peningaþvætti
Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
Fengu fjölskyldumálverk í hendurnar eftir umfjöllun Stundarinnar
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár