Aðili

Mossack Fonseca

Greinar

Panamaskjölin: Eigendur elstu heildverslunar Íslands stunduðu viðskipti gegnum Tortólu
RannsóknPanamaskjölin

Panama­skjölin: Eigendur elstu heild­versl­unar Íslands stund­uðu við­skipti gegnum Tortólu

Erf­ingjar heild­söl­unnar Ó. Johnson og Kaaber, seldu hluta­bréf til Tortóla­fé­lags fyrir nærri 330 millj­ónir króna. Fjögur systk­ini og móðir þeirra stýrðu félag­inu sem hét Eliano Mana­gement Corp sem hóf lán­tökur upp á mörg hund­ruð millj­ónir króna í bönkum í Lúx­em­borg. Systk­inin, meðal ann­ars fyrr­ver­andi frétta­mað­ur­inn Helga Guðrún Johnson, neita að tala um Tortóla­fé­lagið. Skatta­sér­fræð­ingur segir veru­legt skatta­hag­ræði kunna að hafa verið af félag­inu.
Panama-skjölin: Systkinin fjögur með félög í skattaskjóli
RannsóknPanamaskjölin

Panama-skjölin: Systk­inin fjögur með félög í skatta­skjóli

Skatta­yf­ir­völd á Tortóla reyndu að fá upp­lýs­ingar um fjár­hags­stöðu félags Karls Wernerssonar á Tortólu. Karl segir skatta­yf­ir­völd á Íslandi hafa skoðað skatt­skil fyr­ir­tæk­is­ins án frek­ari aðgerða. Þrjú af systk­inum Karls stofn­uðu fyr­ir­tæki í gegnum Mossack Fonseca en eitt þeirra, Ingunn Wernersdóttir, fékk tæpa fimm millj­arða króna þegar hún seldi Karli og Stein­grími Wernerssonum hlut sinn í Milestone árið 2005. Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri segir upp­lýs­inga­skipta­samn­inga við lág­skatta­ríki hafa gert mikið gagn.
Panamaskjölin: Karl Wernersson stofnaði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við milljörðum frá Íslandi
FréttirPanamaskjölin

Panama­skjölin: Karl Wernersson stofn­aði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við millj­örðum frá Íslandi

Karl Wernersson not­aði félag á Seychelles-eyjum til að taka við arði, lána pen­inga og fá lán frá Íslandi. Leiftri ltd. tók meðal ann­ars við tæp­lega þriggja millj­arða láni frá Milestone sem aldrei fékkst greitt til baka. Karl segir að Leiftri hafi tapað öllu sínu í hrun­inu. Panama­skjölin sýna að félagið var lagt niður árið 2012 skömmu eftir að það afskrif­aði millj­arðs króna skuld móð­ur­fé­lags lyfja­versl­un­ar­innar Lyfja og heilsu á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár