Sagan af misnotkun Kaupþings á manni: „Þú verður að kannast við þetta félag “

Kaupþing í Lúx­em­borg lét fjár­sterkan við­skipta­vin bank­ans, Skúla Þor­valds­son, eiga fyr­ir­tæki sem notað var til að fremja lög­brot án þess að Skúli vissi af því. Í bók­inni Kaup­þt­hink­ing er þessi ótrú­lega saga sögð en hún end­aði á því að Skúli hlaut dóm fyrir pen­inga­þvætti af gáleysi.

Sagan af misnotkun Kaupþings á manni: „Þú verður að kannast við þetta félag “
Til­finn­inga­þrungnar lýs­ingar Lýs­ing­arnar á vina­sam­bandi Magnúsar Guð­munds­sonar og Skúla Þor­valds­sonar eru til­finn­inga­þrungnar en sá síð­ar­nefndi sagði Magnús hafa reynt að fá hann til að taka á sig sök í stærsta fjár­drátt­ar­máli Íslands­sög­unnar.

Þá fer hann [Magnús Guð­munds­son for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg] á hnén – sem sagt nán­ast hágrát­andi – á hnén fyrir framan mig og biður mig að hjálpa sér því hann hafi ekki í nein hús að venda,“ sagði Skúli Þor­valds­son, sem yfir­leitt er kenndur við Hótel Holt, í yfir­heyrslu hjá sér­stökum sak­sókn­ara, árið 2013 þegar hann lýsti því hvernig Magnús hefði reynt að fá hann til að segja við ákæru­valdið á Íslandi að hann kann­að­ist við félagið Marple Holding S.A. sem Kaupþing í Lúx­em­borg not­aði til að taka við rúm­lega 8 millj­arða króna milli­færslum frá Íslandi árið 2007 og síðar til að kaupa skulda­bréf af Kaup­þingi á yfir­verði í aðdrag­anda hruns­ins. Skúli Þor­valds­son var skráður eig­andi Marple Holding S.A. en sjálfur vissi hann ekk­ert af þessu milli­færslum til hans eig­ins félags fyrr en eftir hrunið 2008. 

Sagan er eitt dæmi þess hvernig Kaupþing banki not­aði nöfn við­skipta­vina sinna og félög …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár