Veðkall í hlutabréfum Sturlu Sighvatssonar í Heimavöllum

Bréf félags Sturlu Sig­hvats­sonar í leigu­fé­lag­inu Heima­völlum voru seld á 140 millj­ónir króna og missti hann yfir­ráð yfir langstærstum hluta bréfa sinna. Gengi Heima­valla hefur hækkað mikið síðan.

Veðkall í hlutabréfum Sturlu Sighvatssonar í Heimavöllum
Hafnar því að um veð­kall hafi verið að ræða Sturla seg­ist bara hafa verið að skipta um banka og að hann ætli að kaupa öll hluta­bréfin sín aftur með samn­ingum við Arion banka, sem sé að kaupa bréf fyrir hann núna. Arion banki er einn þeirra kröfu­hafa sem hafa beðið um nauð­ung­ar­sölur í fast­eignum Sturlu síð­ustu mán­uði. Mynd: RÚV

Veðkall var gert í hluta­bréfum Lauga­vegar ehf., félags Sturlu Sig­hvats­sonar fjár­festis, í leigu­fé­lag­inu Heima­völlum á dög­unum, sam­kvæmt traustum heim­ildum Við­skipta­Mogg­ans. Sturla hafi þannig misst yfir­ráð yfir langstærstum hluta bréfa sinna í félag­inu, sem seld hafi verið á 140 millj­ónir króna.

Stundin fjallað nýlega um Sturlu, sem var einn af stofn­endum Heima­valla og fyrsti fram­kvæmda­stjóri félags­ins. Samkvæmt nýj­ustu til­kynn­ingu félags­ins til kaup­hall­ar­innar í maí var félag hans, Lauga­vegur ehf., þrett­ándi stærsti hlut­hafi Heima­valla, með 2,04% hlut. Nafn­virði bréfa hans námu um 200-250 millj­ónum króna að mati Við­skipta­Mogg­ans.

Fjöldi fast­eigna í eigu félaga Sturlu hefur hins vegar verið boð­inn upp til nauð­ung­ar­sölu und­an­farna mán­uði. Fast­eigna­fé­lag hans er ógjald­fært og sum dótt­ur­fé­lög í mjög alvar­legum van­skilum. Sturla hefur verið umfangs­mik­ill í fast­eigna­við­skiptum og situr í stjórn á þriðja tug félaga, sem flest snúa að fjár­fest­ingum í fast­eignum eða sjóðum.

Telja heim­ild­ar­menn Við­skipta­mogg­ans að lengi hafi verið vitað af fjár­hags­örð­ug­leikum sem tíund­aðir voru í frétt Stund­ar­innar og mögu­lega hafi gengi Heima­valla tekið kipp eftir að ljóst var að Lauga­vegur ehf. hyrfi úr hlut­hafa­hópnum. Bréf Heima­valla hafi hækkað mikið í kjöl­far veð­kalls­ins, en bréfin voru seld af Kviku á lægsta verði sem bréf Heima­valla hafa verið skráð á síðan félagið fór á markað í vor.

Veðkall er þegar fjár­festir þarf að leggja fram auknar trygg­ingar vegna láns sem liggur til grund­vallar skuld­settri fjár­fest­ingu. Lán­veit­and­inn hefur heim­ild til að þvinga lán­tak­and­ann til að selja bréf ef hann getur ekki lagað stöð­una með öðrum hætti.

Segist kaupa bréfin aftur

Sturla hafnar því í sam­tali við Við­skipta­Mogg­ann að um veð­kall hafi verið að ræða. Segir hann að hann hafi skipt um banka og hygg­ist kaupa öll bréfin aftur með fram­virkum samn­ingi hjá Arion banka. „Þeir eru að kaupa bréf fyrir mig núna og út þessa viku. Ég mun á end­anum eiga sama magn bréfa og ég átti áður, og jafn­vel meira. Ég hef mikla trú á Heima­völlum til fram­tíðar,“ segir Sturla. 

Arion banki er einn af þeim kröfu­höfum sem beðið hafa um nauð­ung­ar­sölur í fast­eignum félaga Sturlu und­an­farna mán­uði, eins og fram hefur komið í umfjöllun Stund­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár