Nauðungaruppboð á fjölda eigna fasteignamógúls

Fjöldi fast­eigna Sturlu Sig­hvats­sonar fjár­festis hefur farið á nauð­ung­ar­upp­boð und­an­farið og er fast­eigna­fé­lag hans ógjald­fært. Ein eign­anna brann í apríl og sögðu nágrannar eig­endur hafa stefnt lífum í hættu.

Nauðungaruppboð á fjölda eigna fasteignamógúls
Sturla Sig­hvats­son Sturla fór fyrir hópi erlenda fjár­festa árið 2011 sem vildu íslenskan rík­is­borg­ara­rétt. Mynd: RÚV

Fjöldi fast­eigna í eigu félaga fjár­fest­is­ins Sturlu Sig­hvats­sonar hefur verið boð­inn upp til nauð­ung­ar­sölu und­an­farna mán­uði. Fast­eigna­fé­lag hans er ógjald­fært og sum dótt­ur­fé­lög í mjög alvar­legum van­skilum. Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra og við­skipta­fé­lagi Sturlu vísar alfarið á hann í tengslum við nauð­ung­ar­sölu á fast­eign þeirra á Óðins­götu í Reykja­vík sem brann í vor.

Þorri fast­eigna félags Sturlu, Lauga­vegar ehf., hafa verið settar á nauð­ung­ar­upp­boð und­an­farna mán­uði. Félagið er skráð ógjald­fært og hefur ekki skilað árs­reikn­ingi síð­ustu tvö ár, en það heldur utan um eign­ar­hluti í 22 öðrum félögum og teygja umsvif þess sig víða. Þá var gert nauð­ung­ar­upp­boð í eign félags hans Ing­ólfs­hvols ehf. á Frakka­stíg vegna mjög alvar­legra van­skila. Námu kröfur tæpum 30 millj­ónum króna.

Loks voru tvær fast­eignir við Óðins­götu seldar á nauð­ung­ar­upp­boði í lok októ­ber. Eign­irnar átti hann með Matth­í­asi Imsland, fjár­festi og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manni Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þá for­sæt­is­ráð­herra, en önnur þeirra brann í apríl og lof­aði Sturla því að hún yrði gerð upp með glæsi­brag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár