Forsætisráðherra „áhrifavaldur“ með dulda auglýsingu

Formaður Við­reisnar spurði á Alþingi hvort for­sæt­is­ráð­herra muni aug­lýsa full­veld­is­bjór og full­veld­iskleinur eins og MS mjólk í þing­hús­inu. Katrín Jak­obs­dóttir sagð­ist hafa tekið þátt í ótal við­burðum og að hún feli sig ekki bak við afmælis­nefnd­ina.

Forsætisráðherra „áhrifavaldur“ með dulda auglýsingu
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir Formenn Við­reisnar og Vinstri grænna ræddu mynda­töku í and­dyri þing­húss­ins á þing­fundi í gær. Mynd: Pressphotos

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekk­ert hafa séð því til fyr­ir­stöðu að taka við nýjum mjólk­ur­fernum MS við athöfn í and­dyri Alþing­is­húss­ins á föstu­dag. Hún hafi verið beðin um það af afmælis­nefnd full­veldis Íslands enda sé full­veld­is­af­mælið ekki einka­eign rík­is­ins, heldur þjóð­ar­innar allrar og einnig einka­að­ila.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, vakti athygli á mál­inu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í gær. Sat Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fyrir svörum.

„Við sem hér störfum vitum að reglan er sú að húsið er ekki notað til kynn­ingar á vörum og hafa mörkin þar verið nokkuð skýr,“ sagði Þor­gerður Katrín. „Úr varð þessi fína ljós­mynd af for­sæt­is­ráð­herra með mjólk­ur­fern­urnar góðu fyrir framan mál­verk af Jóni for­seta. Aðspurður segir síðan skrif­stofu­stjóri Alþingis að ekki sé um neina vöru­sýn­ingu eða vöru­aug­lýs­ingu að ræða heldur fyrst og fremst atburð sem teng­ist hátíð­ar­dag­skránni. Gott og vel. Þá hlýt ég að spyrja: Getur hvaða fyr­ir­tæki sem er útbúið nýjar umbúðir í til­efni af full­veld­is­af­mæl­inu og fengið for­sæt­is­ráð­herra til að sitja fyrir og aug­lýsa þannig vör­urnar?“

Þor­gerður Katrín benti á að MS sé í „svo­kall­aðri“ sam­keppni við aðra fram­leið­endur mjólk­ur­af­urða og hafi verið dæmt vegna sam­keppn­is­brota á árinu. „Þótt þessi upp­á­koma end­ur­spegli í raun ákveðna ein­ok­un­ar­starf­semi á mjólk­ur­mark­aði, sem kemur ekki á óvart miðað við stefnu rík­is­stjórn­ar­innar, er það umhugs­un­ar­efni. Hvernig er það metið hvort þetta sé gert í mark­aðs­legum til­gangi eða ekki? Það er alþekkt að nýta svona leiðir til mark­aðs­setn­ingar, t.d. með áhrifa­völdum. Þeir sem mættu í and­dyri til að afhenda vör­una voru einmitt for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar, sá góði maður, mark­aðs­stjóri og mark­aðs­full­trúar. En var þetta ekki í mark­aðs­legum til­gangi?“

Hefði þurft að merkja myndina #samstarf

Þor­gerður Katrín sagði það vera ljóst að um dulda aug­lýs­ingu væri að ræða. „Hvað kostar klukku­stund með for­sæt­is­ráð­herra, lík­lega mesta áhrifa­valdi lands­ins? Er virki­lega ekki um dulda aug­lýs­ingu að ræða? Hefði mögu­lega átt að setja undir mynd­ina #sam­starf, eins og Neyt­enda­stofa hefur ítrekað bent á að sé nauð­syn­leg for­senda þess að neyt­endur átti sig á hvort um dulda aug­lýs­ingu sé að ræða eða ekki?“

Katrín Jak­obs­dóttirFor­sæt­is­ráð­herra veitti fern­unum við­töku frá full­trúum MS og afmælis­nefnd­ar­innar.

Hún spurði í fram­hald­inu hvar draga eigi mörkin þegar kemur að því að nota þing­húsið sem aug­lýs­inga­vett­vang. „Mun þá for­sæt­is­ráð­herra ekki fetta fingur út í það ef þessi full­veld­is­nefnd kemur aftur með til­lögur?“ spurði Þor­gerður Katrín. „Við erum til dæmis með frá­bæra bjór­fram­leið­endur víða um land. Verður þing­húsið vett­vangur fyrir aug­lýs­ingu á full­veld­is­bjór? Eða eigum við að tala um full­veld­iskleinur? Við erum með marga frá­bæra fram­leið­endur að kleinum, góða bak­ara, sem geta alveg örugg­lega bakað full­veld­iskleinur.“

Viðreisn eigi fulltrúa í afmælisnefndinni

Katrín svar­aði því til að hún hafi fengið óskina frá afmælis­nefnd­inni og kannað í kjöl­farið hvort leyfi hafi verið veitt af hálfu Alþingis. „Ég hef skilið mark­mið afmælis­nefnd­ar­innar sem svo að full­veld­is­af­mælið sé ekki einka­eign rík­is­ins heldur þjóð­ar­innar allrar og þau hafa því hvatt meðal ann­ars einka­fyr­ir­tæki til að koma að hátíða­höldum,“ sagði Katrín. „Þar sem ég hef tekið þátt í ótelj­andi við­burðum á þessu afmæl­is­ári tengdum full­veld­inu, bæði með einka­fyr­ir­tækjum, frjálsum félaga­sam­tökum og stofn­unum, sá ég í í sjálfu sér ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að veita þessum mjólk­ur­fernum við­töku.“

Katrín benti á að í afmælis­nefnd­inni sitji full­trúar allra flokka á þingi, þar á meðal Við­reisnar. „Ég vil ítreka að ég er alls ekki að fela sig á bak við nefnd­ina. Mér fannst bara rétt að nefna það af því að mér fannst ég greina á fyrri orðum hátt­virts þing­manns að hún þekkti hugs­an­lega ekki til þess að þessi beiðni hefði komið frá nefnd­inni þar sem hennar full­trúi situr,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samkeppnismál

KS kaupir Kjarnafæði – Skagfirska efnahagssvæðið orðið Norðurland allt
Skýring

KS kaupir Kjarna­fæði – Skag­firska efna­hags­svæðið orðið Norð­ur­land allt

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga mun ekki þurfa að bera kaup sín á Kjarna­fæði undir Norð­lenska Sam­keppn­is­eft­ir­litið, eftir að Alþingi und­an­skyldi fyr­ir­tækin sam­keppn­is­lögum. KS fær yfir­burð­ar­stöðu á kjöt­mark­aði. Kjarna­fæði sam­ein­að­ist Norð­lenska fyrir tveimur árum með ströngum skil­yrðum, sem falla nú niður. Verðlaus hlutur þing­manns, sem harð­ast barð­ist fyrir sam­keppn­isund­an­þág­unum, í KN, er orð­inn millj­óna­virði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár