Alþingi leyfði forsætisráðherra að auglýsa MS mjólk í þinghúsinu

Skrif­stofu­stjóri Alþingis segir að Katrín Jak­obs­dóttir hafi ekki brotið reglur þegar full­trúar MS afhentu henni nýjar mjólk­ur­fernur í and­dyri þing­húss­ins. Ekki hafi verið um vöru­aug­lýs­ingu að ræða, heldur atburð í tengslum við full­veld­is­af­mæli Íslands.

Alþingi leyfði forsætisráðherra að auglýsa MS mjólk í þinghúsinu
Katrín Jak­obs­dóttir Full­trúar afmælis­nefndar og Mjólk­ur­sam­söl­unnar afhentu for­sæt­is­ráð­herra fyrstu full­veld­is­mjólk­ur­fern­urnar. Mynd: MS

Skrif­stofu­stjóri Alþingis segir for­sæt­is­ráð­herra ekki hafa brotið reglur þegar hún tók við nýjum mjólk­ur­fernum Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS) í and­dyri þing­húss­ins. Athöfnin hafi verið með hans sam­þykki og í tengslum við full­veld­is­af­mæli Íslands.

Á föstu­dag afhentu full­trúar MS og afmælis­nefndar full­veldis Íslands Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra nýjar mjólk­ur­fernur fyr­ir­tæk­is­ins, sem skreyttar eru með texta og myndum sem tengj­ast atburðum á full­veld­is­ár­inu 1918. Athöfnin fór fram í and­dyri þing­húss­ins og voru ljós­myndir teknar af Katrínu með mjólk­ur­fern­urnar fyrir framan mál­verk af Jóni Sig­urðs­syni for­seta að mót­mæla á þjóð­fund­inum 1851.

„Reglan er sú að húsið er ekki notað til kynn­ingar á vörum og við teljum nú að það hafi ekki verið í þessu til­viki,“ segir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis. „Það var sér­stak­lega óskað eftir því að vera þarna, næstum því af hag­kvæmn­is­á­stæðum, og við féll­umst á það af því að þetta var tengt full­veld­is­af­mæl­inu.“

„Við töldum að ekki væri um neina vöru­sýn­ingu eða vöru­aug­lýs­ingu að ræða.“

Athygli vakti í fyrra þegar Björt Ólafs­dóttir, þá umhverf­is­ráð­herra, sat fyrir í þingsalnum í kjól frá fyr­ir­tæk­inu Galvan í London, en list­rænn stjórn­andi þess, Sóla Kára­dóttir, er vin­kona hennar til margra ára. Myndin birt­ist á sam­fé­lags­miðlum Galvan, en Helgi sagði mynda­tök­una „óvenju­lega“ þó að strangt til tekið hafi hún ekki verið brot á reglum. Í fyrstu grein siða­reglna ráð­herra er tekið skýrt fram að ráð­herra skuli ekki not­færa sér stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðila sér nákomna.

„Það er engin stefnu­breyt­ing að þessu leyti,“ segir Helgi. „Þetta var þarna niðri í and­dyri, með mínu sam­þykki, og við töldum að ekki væri um neina vöru­sýn­ingu eða vöru­aug­lýs­ingu að ræða, heldur fyrst og fremst atburð sem teng­ist hátíð­ar­dag­skrá á hátíð­ar­ár­inu.“

Forstjóri og markaðsfulltrúar MS afhentu fernurnar

Viðstödd athöfn­ina voru Ari Edwald, for­stjóri MS, Guðný Steins­dóttir, mark­aðs­stjóri MS, og Ásgerður Hösk­ulds­dóttir og Gréta Björg Jak­obs­dóttir, mark­aðs­full­trúar MS. Ragn­heiður Jóna Ingi­mars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri afmælis­nefnd­ar­innar, og nefnd­ar­menn­irnir Sigrún Magn­ús­dóttir og Þórunn Sig­urð­ar­dóttir voru einnig við­staddar. Afhentu þau Katrínu nýju full­veld­is­fern­urnar.

Helgi seg­ist ekki hafa verið sjálfur á staðnum, en hann hafi gefið leyfi eftir að beiðni barst frá afmælis­nefnd­inni. Venju­lega sé þó reynt að nota and­dyri Skálans, við­bygg­ing­ar­innar við upp­runa­lega húsið. „Þetta var reyndar and­dyrið í þing­hús­inu, en and­dyrið í Skálanum er notað til marg­vís­legra við­burða eins og að afhenda und­ir­skrifta­lista eða aðra hluti sem fólk eða sam­tök vilja afhenda þing­mönnum. En slíkt mundi aldrei vera í þingsalnum,“ segir Helgi.

Fern­urnar afhentarFor­sæt­is­ráð­herra heldur á mjólk­ur­fernum með full­trúum MS og afmælis­nefnd­ar­innar.

Mjólk­ur­sam­salan er 90,1% í eigu Auðhumlu, sam­vinnu­fé­lags kúa­bænda, og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem á 9,9% hlut. Fyr­ir­tækið er í sam­keppni við aðra fram­leið­endur mjólk­ur­af­urða og var það dæmt til að greiða tæpan hálfan millj­arð króna í sekt vegna sam­keppn­is­brota í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í maí.

Nýmjólk „bara best“

Eftir athöfn­ina var boðið upp á mjólk og rjómapönnu­kökur. Í frétt á Vísi með fyr­ir­sögn­inni „For­sæt­is­ráð­herra drekkur ein­göngu nýmjólk“ var fjallað um atburð­inn og við­tal tekið við Katrínu:

En er Katrín mikil mjólk­ur­kona ?

„Nei, ég er það nú ekk­ert endi­lega, ég er meira fyrir aðrar mjólk­ur­af­urðir eins og osta, smjör og rjóma en mjólk með heitum kökum eða nýbök­uðum pönnu­kökum er nátt­úru­lega algjör­lega frá­bær“.

En hvernig mjólk drekkur Katrín ?

„Nýmjólk“, segir hún ákveðin og þá var spurt hvort hún væri að reyna að fita sig? Katrín hló og svar­aði, „það er mik­il­vægt að byggja upp ákveðið fitu­lag en mér finnst hún bara best“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár