Framkvæmdastjóri Örnu segir MS eiga greiðan aðgang að opinberum aðilum

Afmælis­nefnd full­veldis Íslands þver­tekur fyrir að athöfn í Alþing­is­hús­inu þar sem for­sæt­is­ráð­herra voru afhentar mjólk­ur­fernur MS hafi verið aug­lýs­ing. Sam­keppn­is­að­ili seg­ist ekki viss um að önnur einka­fyr­ir­tæki fengju sömu umfjöllun.

Framkvæmdastjóri Örnu segir MS eiga greiðan aðgang að opinberum aðilum
Katrín tekur við fern­unum Fram­kvæmda­stjóri Örnu segir athöfn­ina hafa verið kynn­ingu á mjólk­ur­vörum MS. Mynd: MS

Fram­kvæmda­stjóri mjólk­ur­fram­leiðsl­unnar Örnu seg­ist hafa hlegið að frétt Stöðvar 2 á laug­ar­dag um atburð í and­dyri Alþingis þar sem full­trúar MS og afmælis­nefndar full­veldis Íslands afhentu Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra nýjar mjólk­ur­fernur fyr­ir­tæk­is­ins. Afmælis­nefndin þver­tekur fyrir að um aug­lýs­ingu hafi verið að ræða.

„Mér fannst þetta bara fyndið eins og lík­lega mörgum öðrum,“ segir Hálfdán Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Örnu í Bol­ung­ar­vík. „Að þetta skyldi vera flokkað sem frétt og merki­legur atburður á Stöð 2. Þetta var bara kynn­ing á mjólk­ur­vörum MS, það geta allir séð það sem vilja.“

„Ég er ekki viss um að Coca Cola hefði getað gert þetta, þó þeir hefðu sett full­veld­istexta á kók­dós.“

Arna selur laktósa­fríar mjólk­ur­vörur og er einn af fáum aðilum sem hafa farið í sam­keppni við MS, langstærsta aðil­ann í fram­leiðslu á mjólk­ur­af­urðum. MS er 90,1% í eigu Auðhumlu, sam­vinnu­fé­lags kúa­bænda, og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, sem á 9,9% hlut. Fyr­ir­tækið var dæmt til að greiða tæpan hálfan millj­arð króna í sekt vegna sam­keppn­is­brota í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í maí.

„Þeir virð­ast eiga greiðan aðgang að opin­berum aðilum,“ segir Hálfdán. „Ég er ekki viss um að Coca Cola hefði getað gert þetta, þó þeir hefðu sett full­veld­istexta á kók­dós.“

Athöfnin að frumkvæði nefndarinnar

Í sam­tali við Stundina segir Ragn­heiður Jóna Ingi­mars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri afmælis­nefndar full­veldis Íslands, að athöfnin hafi verið að frum­kvæði nefnd­ar­innar og ekki í mark­aðs­skyni fyrir MS. Í frétt Stöðvar 2 heim­sótti Ragn­heiður mjólk­urbú MS á Selfossi, skál­aði í mjólk og kynnti nýju fern­urnar fyrir frétta­manni.

Ragn­heiður Jóna Ingi­mars­dóttirFram­kvæmda­stjóri afmælis­nefndar var til við­tals í mjólk­ur­búi MS á Selfossi í fréttum Stöðvar 2.

„Mjólk­ur­sam­salan ákvað í sam­ráði við afmælis­nefnd að setja fræðslu og fróð­leik um full­veld­is­árið 1918 á mjólk­ur­fernur nú fyrir jólin,“ segir í til­kynn­ingu frá Ragn­heiði og Einari K. Guð­finns­syni, for­manni nefnd­ar­innar og fyrr­ver­andi þing­manni. „Afmælis­nefnd óskaði eftir því við for­sæt­is­ráð­herra að þiggja fyrstu fern­urnar með fræðslu­textum um full­veldið.  Í sam­ráði við yfir­stjórn Alþingis var ákveðið að afhend­ingin færi fram í and­dyri Alþing­is­húss­ins. Þess var gætt að hvergi kæmi fram kynn­ing­ar­efni frá fyr­ir­tæk­inu og áhersla lögð á texta og myndefni sem tengj­ast full­veld­is­ár­inu. Fræðslu­textar á fern­unum eru unnir af Bryndísi Sverr­is­dóttur fyrir afmælis­nefnd­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samkeppnismál

KS kaupir Kjarnafæði – Skagfirska efnahagssvæðið orðið Norðurland allt
Skýring

KS kaupir Kjarna­fæði – Skag­firska efna­hags­svæðið orðið Norð­ur­land allt

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga mun ekki þurfa að bera kaup sín á Kjarna­fæði undir Norð­lenska Sam­keppn­is­eft­ir­litið, eftir að Alþingi und­an­skyldi fyr­ir­tækin sam­keppn­is­lögum. KS fær yfir­burð­ar­stöðu á kjöt­mark­aði. Kjarna­fæði sam­ein­að­ist Norð­lenska fyrir tveimur árum með ströngum skil­yrðum, sem falla nú niður. Verðlaus hlutur þing­manns, sem harð­ast barð­ist fyrir sam­keppn­isund­an­þág­unum, í KN, er orð­inn millj­óna­virði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár