Uppskeruhátíð íslenska tónlistarlífsins, hrekkjavaka og minningartónleikar

Tón­leikar, við­burðir og sýn­ingar 26. októ­ber til 8. nóv­em­ber.

Uppskeruhátíð íslenska tónlistarlífsins, hrekkjavaka og minningartónleikar

Lista­há­tíðin Cycle 

Hvar? Kópavogi og víðar
Hvenær? 26. októ­ber– 4. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: Oftast ókeypis!

Fjöl­lista­há­tíðin Cycle er haldin fjórða árið í röð, en hún er haldin á Íslandi, Þýska­landi og Kína. Hátíðin er sam­tal til­rauna­kenndrar sam­tímatón­listar og mynd­listar, en opn­un­ar­at­höfn hátíð­ar­innar fer fram á Þing­völlum 26. októ­ber kl. 12–13. Hátíðin fer síðan fram í Gerð­ar­safni, Iðnó, Mengi, Kópa­vogs­laug, Salnum og NÝLÓ. Hægt er að nálg­ast dag­skrána á www.cycle.is.

Reykjavík Kabarett

Hvar? Þjóð­leik­hús­kjall­ar­inn
Hvenær? 26. októ­ber, 2. & 9. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: 3.900 kr.

Sýningin blandar saman burlesque, kab­ar­ett, sirku­slistum, dragi, töfrum, tón­list og fleiru með vænni skvettu af full­orð­ins­brönd­urum. Auk kjarnateym­is­ins bak við Reykja­vík Kabarett koma erlendir og íslenskir gestir fram í sýn­ing­unni. Sýningin er strang­lega bönnuð innan 18 og ekki fyrir þá sem eru við­kvæmir fyrir dóna­brönd­urum eða undrum manns­lík­am­ans.

Jóhann Jóhannsson minningartónleikar

Hvar? Mengi
Hvenær? 27. októ­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 3.000 kr.

Fráfall Jóhanns Jóhanns­sonar skildi eftir sig djúp sár í íslenska tón­list­ar­heim­inum. Á 48 árum gaf tón­list­ar­mað­ur­inn út fjöld­ann allan af plötum, hljóð­heimum og lögum. Sér­stakir minn­ing­ar­tón­leikar eru haldnir honum til heið­urs í Mengi þar sem HAM, Ben Frost, Skúli Sverr­is­son og fjöl­margir aðrir lista­menn koma fram. Allur ágóði miða­söl­unnar fer í minn­ing­ar­sjóð Jóhanns.

Halloween Iceland 2018

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 27. októ­ber kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Hið árlega hrekkja­vöku­ball Halloween Iceland fer fram á Gauknum. Eins og áður er þetta bún­inga­keppni og því verður bún­inga­lausum mein­aður aðgangur. Verðlaun eru veitt fyrir bestu bún­inga og til­þrif og síðan munu plötu­snúðar þeyta skífum fram í rauða bítið.

The Exorcist hrekkjavökusýning

Hvar? Bíó Paradís
Hvenær? 31. októ­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: 1.600 kr.

Sær­ing­ar­mað­ur­inn, eða The Exorcist, heldur enn dampi sem ein mest sjokker­andi og gríp­andi mynd í kvik­mynda­sög­unni og er oft með á listum yfir óhugn­an­leg­ustu myndir sem gerðar hafa verið. Myndin fjallar um tólf ára stelpu sem verður and­setin og bar­áttu móður hennar og tveggja presta við að særa kölska í burtu.

Ingólfur Arnarsson: Jarðhæð

Hvar? Hafn­ar­húsið
Hvenær? 3. nóv­em­ber–10. febr­úar
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Ingólfur hefur verið áhrifa­mik­ill í íslensku lista­lífi frá níunda ára­tugnum. Teikning hefur ætíð skipað veiga­mik­inn sess í list­sköpun hans en teikn­ingar Ingólfs ein­kenn­ast af fín­gerðum línum, nákvæmni og tíma. Sýningar á verkum Ingólfs eru hugs­aðar út frá hverju rými fyrir sig og hafa spar­leg en nákvæm­lega úthugsuð verk hans verið kennd við mínímal­isma.

Skotleyfi á skynfærin: Indriði Arnar Ingólfsson

Hvar? Húrra
Hvenær? 4. nóv­em­ber kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Á sunnu­dags­kvöldum fá valdir lista­menn frjálsar hendur í tón­list­ar­vali á Húrra. Lista­maður þennan til­tekna sunnu­dag er Indriði Arnar Ing­ólfs­son lista­maður, en áður en hann hóf sóló-indí-feril sinn spil­aði hann með leift­ur­hröðu pönk­sveit­inni Muck. Búast má við því að hann muni spila alls konar tón­list á þessu kvöldi.

Iceland Airwaves

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? 7.–10. nóv­em­ber
Aðgangs­eyrir: 21.900 kr.

Iceland Airwaves er upp­skeru­há­tíð íslenska tón­list­ar­lífs­ins, en á þess­ari fjög­urra daga  tón­list­ar­há­tíð koma rúm­lega 200 hljóm­sveitir fram. Aðeins rjómi íslensks tón­list­ar­fólks og hljóm­sveita stíga á svið, en sam­hliða dag­skrá hátíð­ar­innar fer fram svokölluð „off venue“-dag­skrá sem er gjald­frjáls. Hátíðin er haldin í 20. skiptið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár