Síðasti keisarinn: Heimsókn til Poznan á landamærum Þýskalands og Póllands

Poznan hefur ekki verið frið­væn­leg­asta borg aust­urs­ins í sög­unni. Barist hefur verið um borg­ina, upp­reisnir hafa átt sér stað þar og hún ýmist til­heyrt Póllandi, Prúss­landi eða Þýska­landi.

Síðasti keisarinn: Heimsókn til Poznan á landamærum Þýskalands og Póllands
Gamli bær­inn Gamli bær­inn í Poznan er lit­skrúð­ugur og lif­andi. Mynd: Shutterstock

S

tutt frá miðbæ Poznan í Póllandi er kast­ali. Þetta er kannski ekki í frá­sögur fær­andi í sjálfu sér þar sem kast­alar eru ekki endi­lega sjald­gæf sjón í Mið-Evrópu. Kastali þessi er þó öðru­vísi í útliti en maður er vanur að sjá, nútíma­legri allur. Og það kemur brátt á dag­inn að þetta er einmitt síð­asti keisarakastal­inn sem byggður var í Evrópu.

Pólland hefur löngum verið stað­sett í ein­hverju erf­ið­asta hverfi álf­unnar og undir lok 18. aldar hvarf það alveg af kort­inu. Landinu var skipt á milli nær­liggj­andi stór­velda og fengu Aust­ur­ríki, Rússland og Prúss­land hvert sinn skerf. Poznan, sem á þýsku nefnd­ist Posen, kom í hlut þess síð­ast­nefnda. Árið 1871 varð kon­ungur Prúss­lands svo að keis­ara Þýska­lands en hafði eftir sem áður meg­in­að­setur í Berlín. Keis­ara­höllin þar varð hins vegar illa úti í loft­árás í seinna stríði og voru leif­arnar rifnar af yfir­völdum í Austur-Þýska­landi, en nú er verið að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár