Telur verðmæti laxeldisleyfa vera 100 til 150 sinnum hærra en greitt er

Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor segir að ef miðað er við það sem greitt er fyrir leyfi til sjó­kvía­eldis á laxi í Noregi sé verð­mæti þeirra leyfa sem veitt voru á norð­an­verðum Vest­fjörðum 31 til 56 millj­arðar króna.

Telur verðmæti laxeldisleyfa vera 100 til 150 sinnum hærra en greitt er
Telur leyfin miklu meira virði Þórólfur telur að virði þeirra leyfa sem lax­eld­is­fyr­ir­tæki hafa fengið úthlutað á norð­an­verðum Vest­fjörðum sé 100 til 150 sinnum meira en fyr­ir­tækin greiða fyrir þau. Mynd: Shutterstock

Verð­mæti þeirra starfs­leyfa sem tveimur lax­eld­is­fyr­ir­tækjum voru veitt á norð­an­verðum Vest­fjörðum gætu numið á bil­inu 31 til 56 millj­örðum króna, ef miðað er við nið­ur­stöður á upp­boði á við­líka heim­ildum í Noregi síð­ast­liðið sumar. Það er um 100 til 150 sinnum hærra en greitt er fyrir leyfin hér á landi. Til sam­an­burðar var rúmum 19 millj­örðum veitt í stofn­fram­kvæmdir í vega­gerð á Vest­fjörðum á árunum 2005 til 2016.

Þórólfur Matth­í­as­son

Þórólfur Matth­í­as­son hag­fræði­pró­fessor vekur athygli á þessu í grein í Frétta­blað­inu í dag. Þar bendir hann á að í upp­boð­inu á heim­ildum til sjó­kvía­eldis með­fram strand­lengju Noregs hafi fjórtán fyr­ir­tæki fengið leyfi og hafi þau greitt ein­skipt­is­greiðslu frá 1,8 millj­ónum til 3,2 millj­óna íslenskra króna til að setja upp kvíar sem afkasti sem svari til fram­leiðslu eins tonns af slát­ur­laxi á ári. Miðað við útreikn­inga Þórólfs má gera ráð fyrir að við­líka ein­skipt­is­greiðsla fyr­ir­tækj­anna sem starfa á Íslandi jafn­gildi 20 þús­und krónum.

Gæti greitt vegagerð á Vestfjörðum í 10 til 20 ár

Fjár­mun­irnir sem norsku fyr­ir­tækin greiða renna inn í sjóð, Havbruks­fondet, sem ráð­stafar um 80 pró­sentum af tekjum sínum til sveit­ar­fé­lag­anna þar sem lax­eldi er stungað. „Til sam­an­burðar ráð­stafar Umhverf­is­sjóður sjó­kvía­eldis á Íslandi drjúgum hluta fjár­magns síns í styrki til fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna sjálfra eða sam­starfs­að­ila þeirra.“

Þórólfur nefnir að lax­eldi kalli á marg­hátt­aðar fjár­fest­ingar af hálfu sveit­ar­fé­lag­anna þar sem það fer fram, meðal ann­ars vökt­un­ar­ferlum vegna starf­sem­innar, en ekki síður upp­bygg­ingu á innviðum. Því séu sterk rök fyrir því að fara sam­bæri­lega leið og farin hefur verið í Noregi hér á landi. Þannig má ætla að verð­mæti þeirra leyfa sem Arctic Sea Farm og Fjarða­lax hafa fengið í Pat­reks­firði og Tálkna­firði, starfs­leyfi fyrir eldi upp á 17.500 tonn, nemi á bil­inu 31 til 56 millj­örðum króna. Það sé 100 til 150 sinnum hærri upp­hæð heldur en greidd er til Umhverf­is­sjóðs sjó­kvía­eldis.

Til sam­an­burðar má nefna að útgjöld vegna stofn­fram­kvæmda í vega­gerð á Vest­fjörðum námu rúmum 19 millj­örðum á ára­bil­inu 2005 til 2016. Mögu­legur umfram­arður af fisk­eld­inu gæti því greitt vega­gerð á Vest­fjörðum í 10 til 20 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár