Þingmaður Flokks fólksins spyr um „aðlögun“ hælisleitenda

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Flokks fólks­ins, spyr félags­mála­ráð­herra um mark­mið um „aðlögun“ hæl­is­leit­enda og þeirra „færni til að sjá sér far­borða“.

Þingmaður Flokks fólksins spyr um „aðlögun“ hælisleitenda
Ólafur Ísleifs­son Þing­mað­ur­inn hefur nú í þriðja sinn á tæpu ári lagt fram fyr­ir­spurn varð­andi flótta­fólk á Íslandi. Mynd: Flokkur fólksins

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Flokks fólks­ins, hefur lagt fram fyr­ir­spurn til félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra um „mark­mið um aðlögun að íslensku sam­fé­lagi“. Spyr hann um þá sem leita alþjóð­legrar verndar og aðlögun þeirra, „þar á meðal um þátt­töku á vinnu­mark­aði, færni til að sjá sér far­borða, tæki­færi til að afla sér mennt­unar og kunn­áttu í íslenskri tungu“.

Þá spyr Ólafur ráð­herra hvaða mæli­kvarðar séu lagðir til grund­vallar slíkum mark­miðum og hvernig þeir hafi þró­ast und­an­farin fimm ár í sam­an­burði við nágranna­lönd. Loks spyr hann ráð­herra hvort hann telji gild­andi mark­mið og árangur í mála­flokknum full­nægj­andi og hvort áform séu um aðgerðir.

Þetta er í þriðja sinn frá þing­kosn­ingum fyrir tæpu ári sem Ólafur spyr út í mála­flokk hæl­is­leit­enda, en í apríl spurði hann dóms­mála­ráð­herra meðal ann­ars um útgjöld vegna þeirra, fjölda þeirra og dval­ar­tíma hér á landi síð­ustu fimm ár.

Flokkur fólks­ins hefur lýst því yfir að hann vilji ein­ungis taka á móti 50 kvótaflótta­mönnum á ári og að mál­efni hæl­is­leit­enda séu afgreidd með skil­virkum hætti „að norskri fyr­ir­mynd“ innan 48 klukku­stunda.

Fyrirspurnin í heild sinni

     1.      Hvaða mark­mið hafa verið sett um aðlögun þeirra sem fá alþjóð­lega vernd hér á landi að íslensku sam­fé­lagi, þar á meðal um þátt­töku á vinnu­mark­aði, færni til að sjá sér far­borða, tæki­færi til að afla sér mennt­unar og kunn­áttu í íslenskri tungu? 
     2.      Hvaða mæli­kvarðar eru lagðir til grund­vallar um árangur að því er snertir þessi mark­mið og önnur sem kunna að hafa verið sett? 
     3.      Hvernig hafa þessir mæli­kvarðar þró­ast á umliðnum fimm árum? Hvernig stand­ast þeir sam­jöfnuð við mæli­kvarða í nágranna­löndum?
     4.      Telur ráð­herra gild­andi mark­mið og árangur til þessa vera full­nægj­andi? Ef ekki, hver eru áform ráð­herra um aðgerðir? 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár