Þingmaður Flokks fólksins spyr um kostnað vegna hælisleitenda

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Flokks fólks­ins, spyr hvað stjórn­völd hygg­ist gera til að stytta dval­ar­tíma hæl­is­leit­enda og fyr­ir­byggja end­ur­komur hæl­is­leit­enda sem hefur verið hafnað.

Þingmaður Flokks fólksins spyr um kostnað vegna hælisleitenda

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Flokks fólks­ins, hefur lagt fram tvær fyr­ir­spurnir á Alþingi til dóms­mála­ráð­herra um útgjöld vegna hæl­is­leit­enda, fjölda þeirra og dval­ar­tíma hér á landi síð­ustu fimm ár. Hann spyr hvaða aðgerðum stjórn­völd hafi beitt til að stytta dval­ar­tíma hæl­is­leit­enda og hvaða aðgerðir séu fyr­ir­hug­aðar í því efni. Ólafur spyr jafn­framt um fjölda og með­al­dval­ar­tíma hæl­is­leit­enda sem snúið hafa aftur eftir að hafa verið synjað um vernd og fengið lög­reglu­fylgd úr landi.

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hefur ítrekað borið saman kostnað við mót­töku flótta­manna og skort á úrræðum fyrir fátækt fólk á Íslandi. Flokkur fólks­ins vill ein­ungis taka á móti 50 kvótaflótta­mönnum á ári og að mál­efni hæl­is­leit­enda séu afgreidd með skil­virkum hætti „að norskri fyr­ir­mynd“ innan 48 klukku­stunda.

Ólafur hefur áður kvartað undan því á Útvarpi Sögu að hópur fólks skyldi vilja hjálpa sýr­lenskum flótta­mönnum og reyna að koma í veg fyrir neyð þeirra, þegar þeir sömu hjálp­uðu ekki til við að lág­marka hækkun verð­tryggðra fast­eigna­lána. „Þetta er sama fólkið og horfði upp á heim­ili sam­landa sinna, Íslend­inga, fjöl­skyldn­anna brenna hérna af völdum verð­bólg­unnar,“ sagði Ólafur.

Fyrirspurnirnar í heild

Fyr­ir­spurn til dóms­mála­ráð­herra um útgjöld vegna hæl­is­leit­enda:

Hver voru árleg heild­ar­út­gjöld rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árin 2012–2017 vegna mál­efna hæl­is­leit­enda og hverjir eru ein­stakir þættir þeirra útgjalda á sviði lög­gæslu­mála, landamæra­vörslu, skóla­mála, heil­brigð­is­mála og vel­ferð­ar­mála? 

Fyr­ir­spurn til dóms­mála­ráð­herra um fjölda hæl­is­leit­enda og dval­ar­tíma þeirra hér á landi:

     1.      Hver var fjöldi hæl­is­leit­enda og hversu margir fengu hæli hér á landi á árunum 2012–2017? Svar óskast sund­ur­liðað eftir árum. 
     2.      Hver var með­al­dval­ar­tími þeirra hæl­is­leit­enda hér­lendis sem fengu synjun erindis á sama tíma? Hver var lengsti dval­ar­tím­inn og hvernig var dreif­ing hans? 
     3.      Hvaða þættir hafa helst áhrif á dval­ar­tíma hæl­is­leit­enda? Hvað hafa stjórn­völd gert til þess að stytta dval­ar­tím­ann, hver er árangur þeirra aðgerða og hvaða aðgerðir eru fyr­ir­hug­aðar? 
     4.      Hver er fjöldi og með­al­dval­ar­tími hæl­is­leit­enda sem snúið hafa aftur eftir að hafa verið synjað um vernd og fengið lög­reglu­fylgd úr landi á árunum 2012–2017? Hver var lengsti dval­ar­tím­inn og hvernig var dreif­ing hans? Hvað hafa stjórn­völd gert til þess að fyr­ir­byggja slíkar end­ur­komur og hvaða aðgerðir eru fyr­ir­hug­aðar? 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár