„Skít­kast­inu“ lokið Inga Sæland segir að hún sé fegin því að kosn­ing­arnar séu afstaðnar og að „skít­kast­inu“ vegna afstöðu Flokks fólks­ins í inn­flytj­enda­málum sé nú lokið. Mynd: Pressphotos

„Þetta sírennsli úr ríkissjóði á ekki að eiga sér stað“

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, hefur ítrekað borið saman kostnað við mót­töku flótta­manna og skort á úrræðum fyrir fátækt fólk á Íslandi. Inga segir umræð­una byggða á mis­skiln­ingi. Gagnrýni hennar bein­ist ein­göngu að kostn­aði við mót­töku fólks sem svo ekki fær leyfi til að búa á Íslandi. Flokkur fólks­ins vill bara taka á móti um 50 kvótaflótta­mönnum á hverju ári og segir einn þing­maður flokks­ins að þetta sé vegna hús­næð­is­skorts á Íslandi.

„Í þessu ofsa­veðri búa ein­hverjir með­bræður okkar í hjól­hýsum í Laug­ar­dalnum og enn aðrir eru algjör­lega án nokk­urs skjóls. Þetta eru þeir sem eru efna­hags­legir flótta­menn í eigin landi, fátæk­astir í orðs­ins fyllstu merk­ingu og eiga virki­lega bág­t,“ skrif­aði Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, sem kom­inn er á Alþingi með fjóra þing­menn, á Facebook-síðu flokks­ins í febr­úar og bar saman stöðu þessa fólks og hæl­is­leit­enda sem koma til Íslands og spurði svo að því hvort ásætt­an­legt væri að á sama tíma kæmu hæl­is­leit­endur til Íslands sem ríkið hefði kostnað af. Skrif­unum var reyndar síðar eytt af Facebook-síðu flokks­ins líkt og Inga hefði sagt eitt­hvað sem hún vildi ekki standa fyrir og sæi eftir en pist­ill hennar fór á raf­rænt flug á net­inu. 

Með þessum orðum vildi Inga meina að Íslend­ingum væri mis­munað til að aðstoða hæl­is­leit­endur. Þrátt fyrir að þessum skrifum Ingu hafi verið eytt þá hefur hún ítrekað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2017

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár