Útlendingum var vísað burt á ólögmætum grundvelli

Ákvæði í reglu­gerð Sigríðar Andersen og beit­ing Útlend­inga­stofn­unar á þeim skorti laga­stoð að mati kæru­nefndar útlend­inga­mála sem felldi því fjöl­margar ákvarð­anir stofn­un­ar­innar úr gildi í fyrra. Í mörgum til­vikum hafði fólk­inu sem brotið var gegn þegar verið vísað úr landi.

Útlendingum var vísað burt á ólögmætum grundvelli
Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra Mynd: Pressphotos.biz / Skjáskot af RÚV

Kæru­nefnd útlend­inga­mála taldi ákvæði í reglu­gerð Sigríðar Andersen um sér­staka máls­með­ferð hæl­is­leit­enda frá öruggum ríkjum og beit­ingu Útlend­inga­stofn­unar á þeim skorta laga­stoð og felldi því fjöl­margar ákvarð­anir Útlend­inga­stofn­unar úr gildi í fyrra.

Alls gerði kæru­nefndin Útlend­inga­stofnun aft­ur­reka með 57 pró­sent slíkra mála árið 2017, ýmist að hluta eða fullu. Í flestum til­vikum höfðu hæl­is­leit­end­urnir þegar verið fluttir úr landi þegar kæru­nefndin komst að nið­ur­stöðu um að Útlend­inga­stofnun hefði brotið á þeim.

Óafturkræfar afleiðingar

Í 49. gr. breyt­ing­ar­reglu­gerðar um útlend­inga sem Sigríður Andersen setti þann 30. ágúst 2017 er fjallað um rétt­ar­á­hrif þess þegar „ber­sýni­lega til­hæfu­lausri“ hæl­is­um­sókn er synjað. „Hafi umsókn verið synjað á þeim grund­velli að hún sé ber­sýni­lega til­hæfu­laus skal útlend­ingi almennt brott­vísað og ákvarðað end­ur­komu­bann án þess að veittur sé frestur til sjálf­viljugrar heim­farar,“ segir í ákvæð­inu.

Að mati kæru­nefndar útlend­inga­mála hefur lög­gjaf­inn aldrei falið ráð­herra vald til að setja reglur sem þessar, reglur sem tak­marka „það skyldu­bundna mat sem lög­gjaf­inn hefur falið kæru­nefnd og Útlend­inga­stofnun við beit­ingu heim­ildar til að fella niður frest til umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og brott­vísa þeim sam­hliða ákvörðun um synjun umsóknar“. Fyrir vikið hefur kæru­nefndin ekki beygt sig undir ákvæðið við mat á því hvort vísa beri útlend­ingum á brott. Beiting Útlend­inga­stofn­unar á ákvæð­inu kann hins vegar að hafa haft óaft­ur­kræfar afleið­ingar fyrir fólk sem var þannig vísað úr landi á ólög­mætum grund­velli. 

Ráðuneytið reyndi að kippa andmælaréttinum úr sambandi

Kæru­nefndin felldi úr gildi ákvarð­anir Útlend­inga­stofn­unar þar sem brotið var gegn and­mæla­rétti hæl­is­leit­enda og rann­sókn­ar­reglu stjórn­sýslu­laga. Í einu mál­inu hafði maður frá öruggu upp­runa­ríki beðið um frest til að skila við­bót­ar­upp­lýs­ingum frá heima­ríki sínu en fengið þau svör frá Útlend­inga­stofnun, í anda 47. gr. hinnar nýju reglu­gerðar, að slíkt yrði hann að gera strax á staðnum. Bendir kæru­nefnd útlend­inga­mála á að í íslenskum rétti sé heim­ild til að óska eftir frestun órjúf­an­legur þáttur í and­mæla­rétti aðila, enda ekki hægt að líta svo á að rétt­ur­inn sé raun­hæfur og virkur nema fólk fái ráð­rúm til að und­ir­búa mál sitt.

„Kæru­nefnd telur því að máls­með­ferð Útlend­inga­stofn­unar í máli kær­anda hafi verið í and­stöðu við 18. gr. stjórn­sýslu­laga. Í því sam­bandi telur kæru­nefnd rétt að árétta að ákvæði 47. gr. reglu­gerðar um útlend­inga nr. 540/2017 geta ekki vikið til hliðar ákvæðum stjórn­sýslu­laga um and­mæla­rétt aðila máls,“ segir í úrskurði kæru­nefnd­ar­innar. Fram kemur að „veru­legir og alvar­legir ann­markar“ hafi verið á með­ferð máls­ins hjá Útlend­inga­stofnun sem kunni að hafa „leitt til óaft­ur­kræfra rétt­ar­spjalla fyrir kær­anda sem er ekki lengur hér á landi“.

Stórum hluta ákvarðana snúið við

Kæru­nefndin snýr úrskurðum viðHjörtur Bragi Sverr­is­son er for­maður kæru­nefndar útlend­inga­mála.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem Stundin fékk hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála felldi nefndin úr gildi, að hluta eða fullu, alls 39 pró­sent allra ákvarð­ana Útlend­inga­stofn­unar sem röt­uðu á hennar borð árið 2017. Það sem af er 2018 hefur svo Útlend­inga­stofnun verið gerð aft­ur­reka með 36 pró­sent þeirra mála sem kærð hafa verið. 

Nið­ur­staða efn­is­með­ferðar Útlend­inga­stofn­unar í málum fólks sem ekki kemur frá öruggum upp­runa­ríkjum var að fullu stað­fest í 46 pró­sentum til­vika það sem af er þessu ári. Í fyrra var stað­fest­ing­ar­hlut­fallið hins vegar 73 pró­sent. Í Dyfl­inn­ar­málum er stað­fest­ing­ar­hlut­fallið 72 pró­sent það sem af er ári en var 79 pró­sent í fyrra. Stað­fest­ing­ar­hlut­fall í málum fólks frá öruggum upp­runa­ríkjum hefur hins vegar hækkað úr 43 pró­sentum í 60 pró­sent. Þar var hlut­fallið jafn lágt og raun ber vitni í fyrra vegna tregðu Útlend­inga­stofn­unar til að beygja sig undir túlkun kæru­nefnd­ar­innar á útlend­inga­lögum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár