Afmæli borgarinnar, fögnuður ástarinnar, og listræn kvöldganga

Tón­leikar, sýn­ingar, og við­burðir 3.–23. ágúst.

Afmæli borgarinnar, fögnuður ástarinnar, og listræn kvöldganga

Kristín Anna 

Hvar? Mengi
Hvenær? 3. ágúst kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.500 kr.

Kristín Anna Val­týs­dóttir hefur verið virk í tón­list­ar­heim­inum í 20 ár. Hún var ein af stofn­með­limum til­rauna­kenndu hljóm­sveit­ar­innar múm og hefur haldið tón­leika og gjörn­inga víða sem Kría Brekkan. Hún kemur nú fram undir eigin nafni og spilar bæði nýtt og eldra efni úr eigin smiðju á þessum tón­leikum.

Hinsegin dagar 

Hvar: Reykja­vík
Hvenær? 7.–12. ágúst
Aðgangs­eyrir: Fer eftir við­burði.

Gleði­gangan, sem fagnar marg­breyti­leika ást­ar­innar og tján­ingu hennar, leggur af stað frá Hörpu að Hljóm­skála­garð­inum 11. ágúst klukkan 14.00. Auk göng­unnar eru fjöl­margir aðrir við­burðir á dag­skrá Hinsegin daga, eins og drag­sýn­ing með RuPaul's Drag Race dragdrottn­ing­unni Detox Icunt, uppi­stand með Jonathan Duffy, fræðslu­fundir, pöbb­arölt og tón­leikar.

Lára Rúnars

Hvar? Norræna húsið
Hvenær? 8. ágúst kl. 21.00
Aðgangs­eyrir: 2.000 kr.

Lára Rúnars er söngvaskáld sem snemma varð undir áhrifum frá tón­list­ar­mönnum eins og Nick Cave og Tom Waits, og hún starf­aði með Damien Rice árið 2004. Lára spilar lög af nýrri breið­skífu sinni. Tón­leik­arnir eru þeir næst­síð­ustu í tón­leika­röð Norræna húss­ins í sumar.

Mighty Bear, VAR, Klaki

Hvar? Gauk­ur­inn
Hvenær? 9. ágúst kl. 22.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Fjór­menn­ing­arnir í póst-rokk sveit­inni VAR eru að vinna að annarri plötu sinni, en þeir gáfu út plöt­una „Vetur“ í hitti­fyrra. Með þeim spila raf­lista­mað­ur­inn Klaki og dul­ar­fulli gjörn­ing­ar­lista­mað­ur­inn og dragdrottn­ingin Mighty Bear sem kemur iðu­lega fram með hulið and­lit og í skraut­legum bún­ingum.

Kvöldganga um strandlengjuna: List í almenningsrými

Hvar? Harpa
Hvenær? 16. ágúst kl. 20.00
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Sigurður Trausti Trausta­son og Edda Hall­dórs­dóttir hjá Lista­safni Reykja­víkur leiða göngu um úti­lista­verk við Sæbraut, frá Hörpu á Hlemm. Gangan hefst við Hörpu við lista­verk Ólafar Páls­dóttur, „Tón­list­ar­mað­ur­inn“. Lista­safn Reykja­víkur, Borg­ar­bóka­safnið og Borg­ar­sögu­safn Reykja­víkur bjóða upp á kvöld­göngur með leið­sögn alla fimmtu­daga í sumar kl. 20.00

Menningarnótt 2018

Hvar? Reykja­vík
Hvenær? 18. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Afmæl­is­há­tíð Reykja­vík­ur­borgar er haldin hátíð­lega 18. ágúst eins og fyrri ár. Boðið er upp á ara­grúa af fjöl­skyldu­vænum við­burðum, skipu­lögðum af borg­ar­búum. Má þar nefna til dæmis Reykja­vík­ur­mara­þonið, ljós­mynda­sýn­ingar, dans­kennslu og tón­leika. Undir lok kvölds­ins verður síðan að sjálf­sögðu flug­elda­sýn­ing við höfn­ina.

Róttæki sumarháskólinn 2018

Hvar? Múltí Kúltí
Hvenær? 20.–26. ágúst
Aðgangs­eyrir: Ókeypis!

Róttæki sum­ar­há­skól­inn stendur fyrir árlegri fyr­ir­lestr­a­röð þar sem fræði­menn og aktí­vistar miðla hug­myndum og reynslu sinni. Í ár verða fluttir fyr­ir­lestrar um incel hreyf­ing­una og karl­mennsku, end­ur­nýjun verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, fem­inískan marx­isma og fleiri mál­efni. Sum­ar­há­skól­inn er ókeypis og aðgengi­legur öllum.

Gjörningur sem skúlptúr

Hvar? Hafn­ar­hús
Hvenær? 23. ágúst kl. 18.00
Aðgangs­eyrir: 1.650 kr.

Hinn íslenski Ragnar Kjart­ans­son og banda­ríski Theaster Gates eru báðir þekktir fyrir marg­brotin verk þar sem gjörn­ingar eru hluti rýmis- og/eða mynd­bands­verka eða eru tíma­bundin inn­grip í rými eða sam­fé­lag. Samtal mynd­list­ar­mann­anna tveggja fer fram fyrir opnum tjöldum í Hafn­ar­húsi sem hluti af hinni árlegu umræðu­dag­skrá Nasher Sculpture Center.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár