Ísland með lokað á kæruleið fyrir heimilislaust fólk

Ísland er aðili að alþjóða­samn­ingi sem kveður á um rétt­inn til hús­næðis, en hefur ekki full­gilt val­frjálsa bókun sem gefur ein­stak­lingum kost á að kvarta til nefndar Sam­ein­uðu þjóð­ar­innar. Málið sofn­aði í nefnd á Alþingi í vetur.

Ísland með lokað á kæruleið fyrir heimilislaust fólk
Sam­ein­uðu þjóð­irnar Ísland er ekki meðal þeirra 23 ríkja sem hafa full­gilt bókun sem tryggir ein­stak­lingum kæru­leið. Mynd: Shutterstock

Ísland er aðili að alþjóða­samn­ingi sem fjallar um rétt­inn til hús­næðis, en hefur ekki full­gilt val­kvæða bókun sem tryggir ein­stak­lingum mögu­leik­ann á að kæra brot á honum til nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um full­gild­ingu bók­un­ar­innar sofn­aði í nefnd á Alþingi í vetur.

Frum­kvæð­is­at­hugun umboðs­manns Alþingis á hús­næð­is­vanda utan­garðs­fólks leiddi í ljós að „almennur og við­var­andi vandi“ sé til staðar, sér­stak­lega hjá þeim sem glíma við fjöl­þættan vanda. Í áliti umboðs­manns sem birt var í gær kom fram að Reykja­vík­ur­borg tryggi ekki utan­garðs­fólki lausn við „bráðum hús­næð­is­vanda“ í sam­ræmi við lög, stjórn­ar­skrá og fjöl­þjóð­legar mann­réttinda­reglur.

Vísar umboðs­maður sér­stak­lega í alþjóða­samn­ing um efna­hags­leg, félags­leg og menn­ing­ar­leg rétt­indi sem Ísland full­gilti árið 1979. Í samn­ingnum er kveðið á um „rétt sér­hvers manns til við­un­andi lífs­af­komu fyrir hann sjálfan og fjöl­skyldu hans, þar á meðal við­un­andi fæðis, klæða og hús­næðis og sífellt batn­andi lífs­skil­yrða. Aðild­ar­ríkin munu gera við­eig­andi ráð­staf­anir til þess að tryggja að þessum rétti verði fram­fylgt.“

Málið sofnaði í nefnd

23 ríki Sam­ein­uðu þjóð­anna hafa full­gilt val­kvæða bókun við samn­ing­inn frá 2009 sem heim­ilar ein­stak­lingum í ríkj­unum að kvarta yfir brotum á honum til rétt­inda­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þingmenn Pírata lögðu fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um full­gild­ingu bók­un­ar­innar í des­em­ber, en mál­inu hafði ekki verið hleypt úr utan­rík­is­mála­nefnd við þing­lok í vor.

„Ýmis mik­il­væg rétt­indi falla þar undir, meðal ann­ars rétt­ur­inn til við­un­andi fæðis, klæða og hús­næðis og sífellt batn­andi lífs­skil­yrða,“ sagði í umsögn Hags­muna­sam­taka heim­il­anna um málið. „Til þess að tryggja slík rétt­indi er nauð­syn­legt að ein­stak­lingum á Íslandi sem telja að brotið sé gegn þeim, verði gert kleift að beina málum sínum til þar til bærrar nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna.“

Þá mælti Þroska­hjálp einnig með full­gild­ingu bók­un­ar­innar. „Með því að full­gilda val­frjálsu bók­un­ina verður virkara aðhald með ríkjum um að fram­fylgja samn­ingnum og að tryggja öllum, þ.m.t. fötl­uðu fólki, þau efna­hag­legu, félags­legu og menn­ing­ar­legu mann­rétt­dindi sem þeir eiga að njóta, án mis­mun­unar,“ sagði í umsögn sam­tak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár