Guðmundar- og Geirfinnsmálið tekið fyrir þann 13. september

Guð­mundar- og Geir­finns­málið verður tekið fyrir á nýjan leik þann 13. sept­em­ber klukkan 9 í dóm­sali I í Hæsta­rétti.

Guðmundar- og Geirfinnsmálið tekið fyrir þann 13. september
Sak­born­ing­arnir sex Efri röð frá vinstri: Sæv­ar Ciesi­elski, Erla Bolla­dótt­ir og Kristján Viðar Viðars­son. Neðri röð frá vinstri: Tryggvi Leifs­son, Al­bert Kla­hn Skafta­son og Guðjón Skarp­héð­ins­son.

Guð­mundar- og Geir­finns­málið verður tekið fyrir þann 13. sept­em­ber klukkan níu í dóm­sal I í Hæsta­rétti. Þetta kemur fram í dag­skrá Hæsta­réttar sem finna má á vef rétt­ar­ins.

Davíð Þór Björg­vins­son, vara­for­seti Lands­réttar, er settur rík­is­sak­sókn­ari í mál­inu og mun hann fara fram á sýknu eins og verj­endur. Sak­born­ingar máls­ins eru Albert Klahn Skafta­son, var­inn af Guðjóni Ólafi Jónssyni lög­manni, Kristján Viðar Júl­í­uss­son, var­inn af Jóni Steinari Gunna­laugs­syni, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ara, Guðjón Skarp­héð­inssson, var­inn af Ragnari Aðal­steins­syni lög­manni, Tryggvi Rúnar Leifsson, var­inn af Jóni Magn­ús­syni lög­manni og Sævar Marinó Ciesieslki, var­inn af Oddgeiri Ein­ars­syni.

End­ur­upp­töku­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væru skil­yrði til end­ur­upp­töku á þætti Erlu Bolla­dóttur í mál­inu og því er hún ekki meðal sak­born­inga í mál­inu sem rekið verður í sept­em­ber. Erla hlaut þriggja ára fang­els­is­dóm fyrir að bera sakir á Einar Gunnar Bollason, Magnús Leó­polds­son, Sig­ur­björn Eiríks­son og Valdimar Olsen vegna dauða Geir­finns Ein­ars­sonar ásamt smygl­brotum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd forsætisráðuneytisins en hafnar því að lögregla hafi beitt harðræði
FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár