Nefnd um tækifæri og ógnanir framtíðarinnar skipuð þingmönnum

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur skipað „fram­tíð­ar­nefnd“ um tækni­breyt­ingar, lang­tíma­breyt­ingar á nátt­úr­unni og lýð­fræði­lega þróun. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi aðstoð­ar­maður Katrínar, starfar með nefnd­inni, sem er ein­vörð­ungu skipuð þing­mönnum.

Nefnd um tækifæri og ógnanir framtíðarinnar skipuð þingmönnum
Katrín og Unnur Brá Fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks var ráðin aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra til að gegna hlut­verki verk­efn­is­stjóra við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Mynd: Alþingi

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur skipað „fram­tíð­ar­nefnd“ sem ætlað er að fjalla um tæki­færi og ógn­anir Íslands í fram­tíð­inni. Mun hún fjalla meðal ann­ars um lang­tíma­breyt­ingar á nátt­úr­unni, lýð­fræði­lega þróun og þau hröðu umskipti sem eru í vændum með síauk­inni sjálf­virkni og tækni­breyt­ingum.

Eingöngu þing­menn sitja í nefnd­inni, sem mun skila árlegum skýrslum til Alþingis. Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og aðstoð­ar­maður Katrínar, starfar með nefnd­inni.

Nefnd­inni er falið að skoða áskor­anir og tæki­færi vegna tækni­breyt­inga, áhrif tækni­fram­fara og hina svoköll­uðu fjórðu iðn­bylt­ingu. Nefndin skal stuðla að upp­lýstri umræðu um tæki­færi og ógn­anir fram­tíð­ar­innar og verði virkur umræðu­vett­vangur um fram­tíð­ar­fræði.

Nefnd­ar­menn eru Smári McCarthy, for­maður, Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, vara­for­maður, Andrés Ingi Jónsson, Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, Bryndís Har­alds­dóttir, Njáll Trausti Frið­berts­son, Halla Signý Krist­jáns­dóttir, Gunnar Bragi Sveins­son, Þor­steinn Víglunds­son, Logi Ein­ars­son og Inga Sæland.

Ráðin til að endurskoða stjórnarskrána

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og núver­andi verk­efn­is­stjóri hjá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, er full­trúi ráðu­neyt­is­ins og starfs­maður nefnd­ar­innar. 

Unnur var ráðin sem aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra frá 1. apríl til að gegna hlut­verki verk­efn­is­stjóra við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. 

Tilkynnt var um ráðn­ing­una í byrjun febr­úar og haft eftir Katrínu Jak­obs­dóttur að það væri „mik­ill akkur í því að fá reynslu­mik­inn lög­fræð­ing með bak­grunn úr stjórn­málum, sem þar að auki nýtur trausts þvert á flokka og í sam­fé­lag­inu, til að stýra þessu vanda­sama verk­efni næstu árin“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár