Bragi kvartar undan „falsfréttum“

Ham­ingju­óskum rignir yfir Braga Guð­brands­son eftir að í ljós kom að ráðu­neyt­inu mistókst að rann­saka kvart­anir gegn honum. Óháð úttekt stað­festir að atvika­lýs­ing Stund­ar­innar er sam­hljóða einu sam­tíma­gögn­unum sem til eru um afskipti Braga af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu.

Bragi kvartar undan „falsfréttum“

„Í meira en hálft ár hef ég setið undir dylgjum og fals­fréttum sem óþarft er að tíunda hér. Það er mér mik­ill léttir að þessu máli sé nú lokið.“

Þannig kemst Bragi Guð­brands­son, fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, að orði í stöðu­upp­færslu á Facebook. 

Fjöldi fólks sendir honum ham­ingju­óskir og virð­ist líta svo á að úttekt Kjartans Bjarna Björg­vins­sonar hér­aðs­dóm­ara og Krist­ínar Bene­dikts­dóttur dós­ents hreinsi Braga af ávirð­ingum barna­vernd­ar­nefnda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem kvört­uðu undan síend­ur­teknum óform­legum afskiptum hans af ein­stökum málum.

Í úttekt­inni sem kynnt var í gær kemur fram að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi van­rækt rann­sókn­ar­skyldu sína við með­ferð á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda og láðst að leiða í ljós hvað hæft væri í þeim ásök­unum sem bornar voru á Braga Guð­brands­son. Þá kemur fram að and­mæla­réttar hafi ekki verið gætt gagn­vart Braga. 

Úttekt­ar­nefndin lagði ekki heild­ar­mat á vinnu­brögð og emb­ætt­is­færslur Braga. Ekki var tekin afstaða til þeirra að öðru leyti en því að bent er á að ráðu­neytið hafði ekki full­nægj­andi grund­völl til að stað­hæfa að Bragi hefði farið út fyrir starfs­svið sitt eða brotið þagn­ar­skyldu sinni með sam­skiptum sínum við föður máls­að­ila í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu. 

Ráðu­neytið er gagn­rýnt harð­lega fyrir að hafa ekki kannað betur afskipti Braga af því máli og óskað skýr­inga á þeim, en sam­kvæmt einu skráðu sam­tíma­gögn­unum um afskiptin sem til eru beitti Bragi sér fyrir því að stúlkur yrðu látnar umgang­ast föður sinn þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um kyn­ferð­is­brot. Þetta gerði Bragi í kjöl­far þess að föð­ur­afi stúlkn­anna hafði leitað til hans. 

„Ég vissi ekk­ert hvort pabb­inn í þessu til­viki hefði gert eitt­hvað á hlut þessa barns eða ekki. Ég var ekki dóm­bær á það og hafði ekki aðgang að neinum gögnum og hafði í raun og veru engan áhuga á að vita það,“ sagði Bragi þegar Stundin fjall­aði um málið þann 27. apríl. Skjöl sem birt eru í úttekt Kjartans Bjarna og Krist­ínar eru hin sömu og umfjöllun Stund­ar­innar byggði á, en um er að ræða einu skráðu sam­tíma­gögnin um afskipti Braga af umræddu máli. 

Bragi seg­ist þó hafa orðið fyrir dylgjum og að fluttar hafi verið fals­fréttir. Þar vísar hann lík­lega ann­ars vegar til fréttar RÚV um kvörtun barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar frá 23. nóv­em­ber 2017 og hins vegar til frétta­flutn­ings Stund­ar­innar í lok apríl þar sem fjallað var ítar­lega um afskiptin. Úttekt Kjartans Bjarna og Krist­ínar stað­festir þær atvika­lýs­ingar á afskiptum Braga sem birt­ast í fréttum RÚV og Stund­ar­innar. 

Í stöðu­upp­færslu sinni segir Bragi að nú sé mál­inu lokið. Hins vegar greindi vel­ferð­ar­ráðu­neytið frá því í gær að kvört­un­ar­efni barna­vernd­ar­nefnd­anna yrðu tekin til athug­unar að nýju í sam­ræmi við beiðni Braga sjálfs um end­ur­upp­töku.

Þannig er ljóst að framundan er enn frek­ari athugun ráðu­neyt­is­ins á þeim vinnu­brögðum sem barna­vernd­ar­nefndir gerðu athuga­semdir við. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár