Króna án verðtryggingar eins og pylsa án kóks

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Flokks fólks­ins, hvatti til þess á Alþingi að hús­næð­isliður yrði tek­inn út úr verð­trygg­ing­unni. Rík­is­stjórnin hefur lofað skrefum til afnáms verð­trygg­ingar. „Að tala um krónu án verð­trygg­ingar er eins og að tala um pylsu án kóks,“ sagði þing­maður Sam­fylk­ingar.

Króna án verðtryggingar eins og pylsa án kóks
Ágúst Ólafur Ágústs­son

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Flokks fólks­ins, hvatti til þess á Alþingi í dag að hús­næð­islið­ur­inn yrði tek­inn út úr vísi­tölu neysl­ur­verðs. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra sagði að vinna væri hafin um að skoða lánaum­hverfi hér á landi. Þing­maður Sam­fylk­ingar sagði ekki vera hægt að aðskilja íslensku krón­una og verð­trygg­ing­una.

Ólafur hafði óskað eftir sér­stakri umræðu um verð­trygg­ingu fjár­skuld­bind­inga. Sagði hann að lóða­skortur í Reykja­vík væri meðal orsaka hækk­unar hús­næð­is­verð­ins, sem smit­að­ist út í vísi­töl­una. Hús­næð­isliður vísi­tölu neyslu­verðs væri ástæða meiri­hluta þeirra verð­bóta sem lán­tak­endur þyrftu að greiða „Sjá menn skrímslið?“ spurði Ólafur.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði starfs­hóp sér­fræð­inga munu meta kosti og galla þess að miða verð­trygg­ingu við vísi­tölu án hús­næðis eða leyfa teng­ingu við aðrar vísi­tölur Nú þegar væri hægt að taka óverð­tryggð lán og vægi þeirra væri að aukast. „Verð­trygg­ing lána hefur þó þann kost að greiðslu­byrði framan af láns­tíma er lægri,“ sagði Bjarni.

„Pylsa án kóks“

„Grunn­vandi hárra vaxta og verð­trygg­ingar liggur í gjald­mið­ilnum,“ sagði Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. „Lausnin liggur í nýjum gjald­miðli og í því sam­bandi kemur aðeins einn kostur til greina, að mati lang­flestra sér­fræð­inga, og það er evran með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.“

PylsaKók er vin­sælt gos með pylsum.

Ágúst Ólafur sagði að 19 þjóðir Evrópu hefðu kosið að nota evru. „Á meðan við höfum krón­una munum við búa við verð­trygg­ing­una og oft hærri vexti en aðrar þjóðir,“ sagði Ágúst Ólafur. „Það er bara svona ein­falt. Að tala um krónu án verð­trygg­ingar er eins og að tala um pylsu án kóks. Það er ekki hægt að aðskilja þetta tvennt í sundur, þótt bæði séu óholl fyrir þig.“

Skrefum til afnáms lofað í stefnuyfirlýsingu

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að rík­is­stjórnin muni taka mark­viss skref á kjör­tíma­bil­inu til afnáms verð­trygg­ingar á lánum. „Samhliða þeim verður ráð­ist í mót­væg­is­að­gerðir til að standa vörð um mögu­leika ungs fólks og tekju­lágra til að eign­ast hús­næði,“ segir í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni. „Sérstök áhersla verður lögð á að gæta efna­hags­legs stöð­ug­leika. Rík­is­stjórnin vill enn fremur skapa hvata og stuðn­ing til þess að heim­ili sem það kjósa geti breytt verð­tryggðum lánum í óverð­tryggð.“

Þá segir í yfir­lýs­ing­unni að rík­is­stjórnin muni hefja skoðun á því hvernig megi fjar­lægja fast­eigna­verð úr mæl­ingu neyslu­vísi­töl­unnar. „Fast­eigna­verð er liður í neyslu­vísi­tölu hér á landi og mikil hækkun þess á und­an­förnum árum hefur af þeim sökum leitt til þess að höf­uð­stóll verð­tryggðra lána hefur hækkað meira en ella,“ segir í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár