Haldið áfram eða endað eftir framhjáhald

Sál­fræð­ingur varar við því að sýnd sé dóm­harka eftir fram­hjá­hald.

Haldið áfram eða endað eftir framhjáhald
Endalok eða upp­haf? Fram­hjá­hald getur verið upp­haf að nýju sam­bandi við sama maka, ef unnið er rétt úr því. Mynd: Shutterstock

Í parsam­böndum geta komið upp hin ýmsu svik bæði í formi lyga og sær­inda. Við mann­fólkið höfum þó valið að taka svik er varðar fram­hjá­hald upp á sér plan sem bæði ófyr­ir­gef­an­legt og óaf­sak­an­legt með öllu. Hver hefur ekki heyrt orð­til­tækið „Once a cheater always a cheater“. Í dag er fram­hjá­hald ein helsta ógn hjóna­bands­ins og ástæða fjölda skiln­aðar í nútíma sam­fé­lagi. En þarf fram­hjá­hald að vera enda­stöð? 

Ragn­hildur Bjarka­dóttirRáð­leggur hjónum eftir fram­hjá­hald að leita ekki söku­dólgs, en að tryggja að ekki sé skot­ist undan ábyrgð.

Til er þög­ull hópur para sem kosið hefur að láta fram­hjá­hald ekki verða loka­punkt­inn í sínu hjóna­bandi. Stór hluti þess­ara para kýs þó að halda þess­ari ákvörðun út af fyrir sig vegna sterkra og afdrátt­ar­lausra sam­fé­lags­skoð­ana á ótryggð í hjóna­bandi. Þolendur fram­hjá­halds finna fyrir skömm yfir að hafa lent í hjú­skap­ar­broti og upp­lifa í fram­hald­inu enn dýpri skömm við að  geta ekki rætt brotið opin­skátt í nærum­hverf­inu. Ástæða þess er að erfitt þykir að ræða fram­hjá­haldið opin­skátt af ótta við að vera stimpl­aður sem und­ir­lægja, já eða dyramotta fyrir að hafa ákveðið að segja ekki skilið við hjóna­bandið í kjöl­far brots­ins.                           

Ragn­hildur Bjarka­dóttir, sál­fræð­ingur hjá Auðnast, hefur sér­hæft sig í fjöl­skyldu- og para­með­ferð og hefur víð­tæka reynslu af því að vinna með pörum sem hafa lent á enda­stöð með sitt sam­band sökum fram­hjá­halds. Þetta eru pör, eðli­legt fólk úr öllum stigum þjóð­fé­lags­ins sem hafa lent í brot­sjó með hjóna­bandið. Þau vitja til hennar í leit að von­ar­glætu, ein­hvers konar hald­reipi og aðstoð á djúpsár­ustu augna­blikum parsam­bands­ins. Ragn­hildur setur sig hvorki með né á móti þeim ákvörð­unum sem pör taka í  kjöl­far fram­hjá­halds en gefur inn­sýn í reynslu­heim í formi ráð­gjafar sem sér­fræð­ingur í sinni grein.

Makinn settur í guðatölu

„Stað­reyndin er sú að hjóna­bandið þarf að rækta, það vitum við. Að hjóna­band­inu þarf að hlúa vel að og næra til þess að afrakstur þess skili sér. Ef það er gert verður blóma­tíma­bilið lengra og krefj­andi tíma­bilin við­ráð­an­legri. En það eru margir sem taka afdrifa­rík feil­spor í ræktun hjóna­bands­ins sem geta létti­lega leitt til bresta, fram­hjá­halds og jafn­vel sundr­ungar, en fram­hjá­hald er ein helsta ástæða hjóna­skiln­aðar hér­lendis. Mín reynsla sem fag­að­ili  hefur leitt í ljós rauðan þráð sem ein­kennir brostin parsam­bönd. Sá þráður er mis­skiln­ing­ur­inn um að hjóna­bandið eigi að vera ein­hvers konar verk­smiðja sem fram­leiði ham­ingju og flug­elda­kyn­líf í massa­vís, með öllu óháð vinnu­fram­lagi. Sem hlut­hafar hjóna­bands virð­umst við eiga það til að forð­ast skil­málana sem fylgja því að skuld­binda sig að öðrum aðila,“ segir hún.

„Mín reynsla sem fag­að­ili  hefur leitt í ljós rauðan þráð sem ein­kennir brostin parsam­bönd.“

„Ég get útskýrt það með léttri sam­lík­ingu, en þegar við byrjum í nýrri vinnu þá án umhugs­unar skrifum við undir samn­ing sem skuld­bindur okkur að vissu vinnu­fram­lagi, til­greindum vinnu­stundum, trún­aðar fyr­ir­komu­lagi og jafn­vel mögu­legri fram­tíð­ar­sýn. En með hjóna­bandið eiga þessir þættir bara ein­hvern veg­inn að vera til staðar og birt­ast ein­stak­lingnum án þess að hann leggi nokkuð á sig. Við setjum maka okkar í hálf­gerða guða­tölu um að hann eigi að upp­fylla svo ótal margt. Hann á að vera besti vin­ur­inn, okkar helsta klapp­stýra, ómót­stæði­legur elsk­hugi, góður hlust­andi, sem getur komið manni til að hlæja þegar þess þarf og lesi hugs­anir manns þegar svo ber undir. En hvað ef eitt­hvað af ofan­töldu klikkar? Getur mögu­lega mynd­ast hætta á því að fólk leiti þess­ara upp­fyll­ing­ar­þátta utan hjóna­bands­ins?“

ÁstinEf sam­band er ekki ræktað fjarar undan því.

Hverjir halda framhjá?

Fram­hjá­hald er algengt og helst ekki í hendur við það hversu aðlað­andi mak­inn er. „Ég heyrði út undan mér um dag­inn vin­kvenna­hóp ræð­andi fram­hjá­hald Jay Z gagn­vart Beyonce, ofupars­ins sem virð­ist allt hafa. Ein konan greip þá inn í og sagði; er ein­hver hólp­inn úr því Jay Z heldur fram­hjá eig­in­konu sinni, sem er ein fal­leg­asta og hæfi­leik­a­rík­asta kona heims, sem er um leið hold­gerv­ingur ofur­kon­unnar? Það er nefni­lega málið að ríki­dómur, vel­gengni og feg­urð kemur hrein­lega ekk­ert mál­inu við. Það er ekki ein­hver ein for­múla af fólki sem heldur fram­hjá. Hjú­skap­ar­brot geta meira að segja átt sér stað í ham­ingju­sömum hjóna­böndum,“ segir Ragn­hildur.

„Það að upp­lifa að maður sé eft­ir­sóttur í augum ann­arra er nefni­lega nær­andi til­finn­ing“

Hún bætir enn fremur við að „marg­vís­legar ástæður liggi að baki fram­hjá­haldi og margt sem getur kynt undir það. Stundum er um að ræða einna nætur gaman þar sem losti og spenna grípur við­kom­andi, en í slíkum aðstæðum er það oft sam­eig­in­leg aðdáun sem grípur fólk og ruglar marga í rím­inu, og enn frekar þegar áfengi er haft um hönd. Það að upp­lifa að maður sé eft­ir­sóttur í augum ann­arra er nefni­lega nær­andi til­finn­ing, þá sér­stak­lega þegar hjóna­bandið svona hvers­dags­lega er stút­fullt af sam­skiptum sem inni­halda praktíska hluti, líkt og: „Ætlar þú að skutla á hand­bolta­æf­ingu? Ertu búin að borga reikn­ing­ana?““

Ragn­hildur segir slík sam­skipti nauð­syn­leg fyrir heim­il­is­batt­er­íið, en geri á sama tíma ekk­ert fyrir sjálfs­traustið. „Málið er að aðdáun úr óvæntri átt frá öðrum aðila en maka kitlar sjálfs­traustið og getur mögu­lega leitt til þess að fram­hjá­hald kvikni. Eins geta innri vand­kvæði líkt og ábóta­vant sjálfs­traust og efi um eigið ágæti ýtt undir þrá fyrir við­ur­kenn­ingu af ein­hverju tagi.“

Lagði hjartað að veði Eftir mikla reiði og doða ákvað kona, sem komst að því að eig­in­mað­ur­inn hefði verið ótrúr, að vera hug­rökk, leggja hjartað að veði og halda hjóna­band­inu áfram. Myndin teng­ist efni frétt­ar­innar ekki beint.

 

Tvöfalt líf

Ragn­hildur segir fram­hjá­hald geta tekið lengri tíma að þró­ast. „Þetta getur byrjað á vin­skap sem leiðir á end­anum út í eitt­hvað annað og dýpra. Fólk getur í fram­hald­inu lifað tvö­földu til­huga­lífi í dágóðan tíma. Algengt er að sam­skiptin sem leiði út í fram­hjá­hald eigi sér stað á vinnu­stað þar sem við­kom­andi á í dag­legum sam­skiptum. Fram­hjá­hald getur einnig byrjað að þró­ast á lík­ams­rækt­ar­stöðvum eða í félags­skap í tengslum við áhuga­mál að ógleymdum netheim­inum. Það sem á sér stað þegar rætur fram­hjá­halds­ins taka að mynd­ast er að það verður til ein­hvers konar nánd­ar­til­finn­ing í bland við hrifn­ingu. Skyndi­lega er við­kom­andi búinn að eign­ast svo­kall­aðan trún­að­ar­vin sem hann ræðir við um per­sónu­lega hluti og upp­lifir í gegnum vin­skap­inn hrifn­ingu og áhuga­semi sem hann finnur ekki í parsam­band­inu. Þetta getur svo síðar hægt og rólega þró­ast og teygt anga sína yfir í lík­am­legt sam­neyti.“

Ragn­hildur seg­ist oft heyra skjól­stæð­inga sína á stof­unni hjá sér sem hafa gerst brot­legir í hjóna­band­inu hafa upp­lifað sig hafa fundið sálu­fé­laga sinn í fram­hjá­hald­inu. Það án þess að þekkja við­kom­andi á djúpu nót­unum og ekki í hálf­kvisti jafn­vel og maka sinn. „Þetta þykir mér umhugs­un­ar­vert þar sem á sama tíma virð­ist sú vinna hafa gleymst í hjóna­band­inu, þessi sálu­fé­laga­vinna og við­hald nánd­ar­sam­skipta. En það eru margar ástæður fyrir því að djúp sam­skipti séu ómeð­vitað sett á pásu í hjóna­líf­inu. Það getur verið vegna vinnu­á­lags, þreytu, krefj­andi barna, tölvu­leikja, tóm­stunda eða per­sónu­legra vand­kvæða. Það er einmitt þetta, það gleym­ist að það þarf að rækta hinn svo­kall­aða sálu­fé­laga og til þess þarf að búa til tíma og hlúa að sam­skipt­unum. Það koma vissu­lega upp erf­iðir tímar í flestum hjóna­böndum en að kom­ast í gegnum þá sterk­ari gerir stoðir parsam­bands­ins öfl­ugri en áður,“ segir Ragn­hildur. 

Af hverju heldur fólk fram­hjá? „Ástæð­urnar er yfir­leitt per­sónu­bundnar en sam­merkt með þeim öllum er að við­kom­andi er yfir­leitt ekki ham­ingju­samur í núver­andi stöðu, hvort heldur með sig sjálfan per­sónu­lega eða í hjóna­band­inu. Það er að segja, við­kom­andi getur verið að ganga í gegnum per­sónu­lega erf­ið­leika eða vinn­andi úr gömlum and­legum sær­indum, eða verið óham­ingju­samur í sam­skiptum við maka sinn. Mjög algengt sjón­ar­horn sem ég heyri er að hinn brot­legi upp­lifir sig ein­mana í hjóna­band­inu. Þetta er þó ekki algilt því ágætis hjóna­bönd geta líka lent á vegg.“ 

Enginn einn sökudólgur

Hverjum er fram­hjá­hald að kenna? Ragn­hildur seg­ist eiga erfitt með að líta á fram­hjá­hald með þeim hætti að benda eigi á söku­dólg. „Það er oft­ast djúp saga á bak­við fram­hjá­haldið er varðar ein­stak­ling­inn sem hélt fram­hjá, maka hans eða jafn­vel sá sem við­kom­andi hélt fram­hjá. Yfir­leitt þegar ég fer að rekja sög­una með fólki kemur í ljós að söku­dólga­að­ferðin skilar engum árangri, þetta er allt saman eitt stórt tangó, mennskir brestir.“

Ábyrgðin er Ragn­hildi hug­leikin því þrátt fyrir feil­sporið er brýnt að minna á mik­il­vægi þess að minna á ábyrgð­ina þegar kemur að fram­hjá­haldi. Sá sem heldur fram­hjá þarf að taka fulla ábyrgð á broti sínu. 

Hjónabandið sett í öndunarvél

Hvað eiga hjón að gera í kjöl­far fram­hjá­halds ef þau vilja bæta hlut­ina? „Fólk þarf að byrja á því að leita sér aðstoðar. Það dettur engum í hug við bein­brot að kaupa sér gipsi, fara með það heim og setja það á sig sjálfur. Þegar fram­hjá­hald á sér stað í hjóna­bandi þarf fólk hjálp, svo ein­falt er það. Ráðgjafi eða sál­fræð­ingur getur hjálpað ykkur við að finna hvaða aðstoð þið þurfið og hvaða aðferðir eru heppi­leg­astar í ykkar til­viki. Sá sem heldur fram­hjá ber ávallt strax frá byrjun ábyrgð á gjörðum sínum, það er algjör for­senda.“

Er hægt að koma í veg fyrir fram­hjá­hald? Ragn­hildur leggur áherslu á mik­il­vægi for­varn­ar­vinnu sem mögu­lega getur komið í veg fyrir bresti í hjóna­bandi. „Hjá mörgum pörum er hægt að koma í veg fyrir fram­hjá­hald með for­varn­ar­vinnu. Með því að fólk geri sér grein fyrir því að hjóna­band kostar vinnu, tíma, mála­miðl­anir, hrein­skilni, traust og þol­in­mæði. Með þessum lyk­il­at­riðum er hægt að leggja traustan grunn til þess að byggja ham­ingju og ein­ingu ofan á. Við þetta bæt­ist síðan leikur, gleði og spenna sem yfir­leitt er erf­ið­ara að við­halda í lang­tíma­sam­bandi. En slík vinna dregur tölu­vert úr líkum á fram­hjá­haldi.“

Ragn­hildur segir marga af sínum skjól­stæð­ingum sem hafa lent í fram­hjá­haldi koma í það sem hún kallar fjórð­ungs­upp­gjör. „Það felur í sér að pör koma á þriggja mán­aða milli­bili. Við förum yfir grunn­þætt­ina; hvað hefur gengið vel, hvað má bæta, hver eru verk­efni næstu mán­aða o.s.frv. Hér er allt rætt: kyn­líf - fjár­hagur - sam­töl - vinir - fjöl­skylda - tengdó - fantasíur og til­tekt svo fátt eitt sé nefnt. Það má lýsa ferl­inu við heilsu­rækt­ina. Við komum í veg fyrir van­heilsu með hreyf­ingu, það sama á við um og hjón­bandið, þú kemur í veg fyrir van­heilsu í hjóna­band­inu með því að rækta sam­bandið.“ 

Að fyrirgefa

Er hægt að fyr­ir­gefa fram­hjá­hald og hvernig fer maður að því? „Það er vel hægt sé vilj­inn fyrir hendi og leiðin þangað er marg­vís­leg og háð per­sónu­ein­kennum hvers og eins. Sumir kjósa að ræða fram­hjá­haldið einu sinni og síðan aldrei aftur, á meðan aðrir vilja ræða mikið og margt. Traustið fer þegar fram­hjá­hald á sér stað og fer drjúgur tími í að byggja það upp.“

Ragn­hildur segir lyk­il­at­riði að bregð­ast við þegar fram­hjá­hald hefur átt sér stað. „Ég lýsi því oft þannig að eftir fram­hjá­hald, ef vilji er fyrir hendi, þurfti að setja parsam­bandið í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu, mark­mið pars­ins sé svo að koma því í end­ur­hæf­ingu. Það krefst þess að báðir aðilar séu með­vit­aðir um að aðstæð­urnar eru krítískar, allir eru við­kvæmir og að söku­dólga­að­ferðin skilar yfir­leitt ekki árangri. Eins er mik­il­vægt að sætt­ast við allar erf­iðar til­finn­ingar og leyfa þeim að koma upp á yfir­borðið. Reiði, leiði, sekt­ar­kennd, öfund, höfnun og dofi eru algengar til­finn­ingar sem allar þurfa sinn tíma. En eins og með svo margt þá er það er per­sónu­bundið í hverju end­ur­hæf­ingin felst en yfir­leitt er þemað; skýr sam­skipti, umburð­ar­lyndi og hrein­skilni.“

Þetta með óttann

Eins segir Ragn­hildur mik­il­vægt í byrjun batans að gerður sé full­gildur samn­ingur um að báðir aðilar séu skuld­bundnir því að reyna að gera sitt allra besta áður en frek­ari ákvarð­anir eru teknar. „Að hræð­ast ekki að vera ósam­mála, því það er ekki hægt að vera sam­mála um allt. Fólk ótt­ast of mikið það að vera ósam­mála – kunna ekki að finna mála­miðl­anir, eða hræð­ast það og fara í kjöl­farið að draga álykt­anir um að ástin sé lík­leg­ast farin að fölna því þeir séu ekki sam­mála um alla hluti eða að þeim finn­ist ekki hann/ hún skilja sína hlið. Stað­reyndin hér er sú að fólk verður að geta verið ósam­mála, farið út í sitt­hvort hornið í smá stund, rif­ist og rök­rætt. En slíkt er ekki hægt sé maður alltaf hræddur um að hinn aðil­inn pakki niður í tösku og fari. Eins er vert að muna að fórna­lambið í fram­hjá­hald­inu þarf ekki að vera fórna­lambið í hjóna­band­inu sjálfu. Það er eng­inn einn vondur og annar góður.“

Opna á umræðuna

„Að lenda í fram­hjá­haldi getur verið líkt og að verða fyrir ein­hverri plágu. Eftir fram­hjá­hald fer af stað hið þögla sorg­ar­ferli þar sem ein­stak­ling­ur­inn fær oft ekki þá samúð sem hann þarfn­ast. Það er eins með fram­hjá­haldið og hvers kyns óvæntar plágur, að þær geta vissu­lega fellt mann. En ef maður nær að standa þær af sér á hvorn hátt­inn sem er getur það gefið af sér dýr­mætt upp­haf í nýrri mynd. Sumt fólk fer í gegnum nokkur mis­mun­andi sam­bönd í gegnum lífið á meðan aðrir mögu­lega fara í gegnum tvö mis­jöfn sam­bönd en þó með sama aðil­anum. Reynum að leggja okkur fram við að beita ekki dóm­hörku ef vina­fólk eða fjöl­skyldu­með­limir lenda í fram­hjá­haldi. Veitum stuðn­ing, sýnum sam­kennd og forð­ast eftir fremsta megni að taka afstöðu. Ef við gerum það þá minnkum við lík­urnar á því að pör sem verða fyrir fram­hjá­haldi beri harm sinn áfram í hljóði.“

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár