Fjármálastjóri borgarinnar: Borgaralaun gætu skapað fyrirtækjum gróðatækifæri en bitnað á þeim fátækustu

Þingmenn fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokka sam­þykktu nefnd­ar­á­lit þar sem hvatt er til kort­lagn­ingar á borg­ara­launum. Fjár­mála­skrif­stofa Reykja­vík­ur­borgar gagn­rýnir hug­mynd­irnar og Alþýðu­sam­bandið telur óráð að rík­is­sjóður fjár­magni skil­yrð­is­lausa grunn­fram­færslu allra lands­manna.

Fjármálastjóri borgarinnar: Borgaralaun gætu skapað fyrirtækjum gróðatækifæri en bitnað á þeim fátækustu

Inn­leið­ing borg­ara­launa á Íslandi er afleit hug­mynd að mati fjár­mála­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar. Þetta er ljóst af umsögn borg­ar­innar um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Pírata sem unnin var að beiðni vel­ferð­ar­nefndar Alþingis meðan málið var þar til umfjöll­unar.

„Draga má sterk­lega í efa að það að láta alla ein­stak­linga 18 ára og eldri fá skil­yrð­is­laust háar fjárhæðir í hverjum mánuði úr ríkis­sjóði leiði til þess að þeir sem lakast eru settir fái bætta afkomu. Það er mun líklegra að þeir sem lakast standa fari verst út úr slíkum kerf­is­breyt­ingum,“ segir í umsögn­inni sem rituð er af Birgi Birni Sig­ur­jóns­syni fjár­mála­stjóra borg­ar­innar.

Eins og Stundin greindi frá í gær hefur minni­hluti vel­ferð­ar­nefndar, sem sam­anstendur af full­trúum Pírata, Mið­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar og Flokks fólks­ins, sam­þykkt nefnd­ar­á­lit þar sem lagt er til að þings­á­lykt­un­ar­til­laga um borg­ara­laun verði sam­þykkt óbreytt.

Tillagan snýst um að Alþingi feli félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, í sam­starfi við fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að skipa starfs­hóp sem kort­leggi leiðir til að tryggja öllum borg­urum lands­ins skil­yrð­is­lausa grunn­fram­færslu. 

Borgaralaun ryðji „þunglamalegu skriffinnskubákni“ úr vegi

Halldóra MogensenÞingkona Pírata og fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um borg­ara­laun.

„Það segir sig sjálft að þegar grunn­fram­færslan er orðin skil­yrð­is­laus minnkar flækju­stigið tölu­vert, eft­ir­lit verður óþarft og þetta þung­lama­lega skrif­finnsku­bákn getur vikið,“ segir meðal ann­ars í grein­ar­gerð til­lög­unnar. „Ljóst er að skil­yrt fram­færsla er nú þegar greidd í gegnum nokkur mis­mun­andi kerfi. Skýr lög um skil­yrð­is­lausa grunn­fram­færslu gætu því ekki ein­göngu haft í för með sér ákveðin sam­fé­lags­legan sparnað, líkt og rann­sóknir gefa til kynna, heldur gæti komið til raun­veru­legs sparn­aðar ríkis og sveit­ar­fé­laga.“ 

Birgir Björn Sig­ur­jóns­son fjár­mála­stjóri bendir á að ef t.d. öllum Íslend­ingum 18 ára og eldri yrði veitt 300 þús­und króna fram­lag á mán­uði myndi slíkt kosta rík­is­sjóð 930,8 millj­arða, rúm­lega 100 millj­örðum meira en nemur öllum útgjöldum A-hluta rík­is­sjóðs sam­an­lögðum.

„Þegar horft er á þessar tölur hlýtur […] spurn­ingin um fjármögnun að vakna. Ef ríkið ein­fald­lega prent­aði meiri pen­inga færu áhrifin þráðbeint út í verð­lagið og það myndi leiða til óðaverðbólgu og geng­is­lækk­ana enda verða ekki til ný fram­leiðslu­verð­mæti og tekjur með seðla­prentun eða stórfelldum erlendum lántökum. Þess vegna yrði vænt­an­lega að mæta þessu að öllu eða miklu leyti með nýjum tekjum ríkis­ins og sam­drætti í ríkisútgjöldum,“ skrifar hann og bendir á að ráð­ast þyrfti í gríð­ar­legan nið­ur­skurð og skatta­hækk­anir til að standa undir slíkum kostn­aði. 

Birgir Björn Sig­ur­jóns­sonfjár­mála­stjóri Reykja­vík­ur­borgar

Þá víkur hann að hugs­an­legum afleiddum áhrifum. Til að mynda megi reikna með að eftir inn­leið­ingu borg­ara­launa reyni fyr­ir­tæki í auknu mæli að draga úr öllum launa­greiðslum umfram lágmarks­taxta með skírskotun í að starfs­menn fái miklar launa­hækk­anir í gegnum borg­ara­laun. „Það skapar fyr­ir­tækjum tæki­færi til að auka arð­semi sína enn frekar.

Þetta er í sam­ræmi við umfjöllun fræði­mann­anna Anne Gray, Luke Martin­elli og Daniel Zamora um borg­ara­laun, en þau hafa bent á að lág eða mjög hóf­leg borg­ara­laun kunni að virka sem eins konar nið­ur­greiðsla á launa­kostn­aði atvinnu­rek­enda, hafa letj­andi áhrif á kröfu­gerð launa­fólks og ala á lág­launa­stefnu.

Lágir launataxtar einn helsti
vandi íslensks velferðarsamfélags

Fram kemur í umsögn fjár­mála­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar að eitt af stóru vanda­mál­unum í íslensku vel­ferð­ar­sam­fé­lagi sé sú stað­reynd að launa­taxtar á Íslandi eru almennt mjög lágir og lægstu taxtar í raun undir lágmarks­fram­færslu­kostn­aði.

„Lægstu launa­taxtar eru að sjálfsögðu sérstakt vandamál sem ógnar nú þegar eðli­legri atvinnuþátttöku fólks sem ber saman ráðstöfun­ar­tekjur miðað við að taka láglauna­störf eða freista þess að fá alls kyns bætur, s.s. í gegnum almanna­trygg­ingar, atvinnu­leys­is­bætur, fjárhags­að­stoð eða svarta vinnu með­fram bótagreiðslum. Stuðn­ingur samfélags­ins við þá sem standa lakast dregur dám af þess­ari stað­reynd um launa­taxt­ana. Í stað þess að taka upp borg­ara­laun sem félags­legt til­rauna­verk­efni ætti að setja í for­gang rýningu á stuðn­ings­kerfum ríkis og sveit­arfélaga gagn­vart þeim ein­stak­lingum og fjölskyldum sem lakast eru sett með það að mark­miði að tryggja grunn­fram­færslu þeirra. Sá stuðn­ingur hlýtur að vera skil­yrtur.“

Nið­ur­staða fjár­mála­skrif­stof­unnar er sú að draga verði sterk­lega í efa að þeir sem nú hafi það verst verði betur settir með inn­leið­ingu kerfis þar sem allir ein­stak­lingar 18 ára og eldri fái háar fjárhæðir skil­yrð­is­laust í hverjum mánuði úr ríkis­sjóði.

Alþýðu­sam­band Íslands er sama sinnis og hefur varað sér­stak­lega við þeirri hug­mynd að rík­is­sjóður fjár­magni grunn­fram­færslu allra lands­manna. „Enda væri það gríð­ar­lega kostn­að­ar­samt og myndi að öllum lík­indum auka ójöfnuð og draga veru­lega úr getu hins opin­bera til að veita almanna­þjón­ustu og tryggja mann­sæm­andi fram­færslu þeirra hópa sem þurfa að reiða sig á fram­færslu­kerfi hins opin­bera,“ segir í umsögn Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur, hag­fræð­ings hjá hag­deild ASÍ, um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Pírata. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár