Hver bendir á annan vegna viðbragða við kynferðisbrotakærum á lögreglumann

Lög­reglu­maður, sem kærður var fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn ungri stúlku, var boð­aður í útkall á heim­ili hennar fyrir skemmstu. Rík­is­lög­reglu­stjóri seg­ist hafa skort upp­lýs­ingar frá rík­is­sak­sókn­ara, en rík­is­sak­sókn­ara­emb­ættið hafnar því.

Hver bendir á annan vegna viðbragða við kynferðisbrotakærum á lögreglumann
Ábyrgð­inni vísað annað Lög­reglu­maður var sendur í útkall á heim­ili stúlkunnar sem kærði hann fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri, Stefán Eirík­is­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, núver­andi lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Sigríður Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari, hafa öll ábyrgð­ar­stöðu í mál­inu. Mynd: Samsett mynd

Hvorki lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu né rík­is­lög­reglu­stjóri telja sig geta brugð­ist við því að lög­reglu­maður, sem var þrí­vegis kærður fyrir kyn­ferð­is­brot, hefði verið sendur í útkall á heim­ili eins kær­anda hans fyrir skemmstu.

Halldóra Bald­urs­dóttur telur kerfið hafa brugð­ist sér og dóttur hennar, Helgu Elínu Her­leifs­dóttur, í kjöl­far kæru sem þær lögðu gegn hátt­settum lög­reglu­manni, sem var kærður fyrir að hafa beitt Helgu Elínu kyn­ferð­is­of­beldi nokkrum árum áður í sum­ar­bú­stað­ar­ferð.

Halldóra hefur nú sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins: „Hann setti þar með ekki þær kröfur til sinna manna að það sé óásætt­an­legt með öllu að starf­andi lög­reglu­menn fái á sig ítrek­aðar kærur fyrir barn­a­níð,“ segir hún meðal ann­ars um við­bragða­leysi rík­is­lög­reglu­stjóra.

Martröð að gerandi sé sendur í útkallið

Kæran var lögð fram árið 2011 en meint brot átti sér stað í sum­ar­bú­stað árið 2007. Við tók langt ferli sem end­aði með að málið var látið falla niður. Í við­tali við Mannlíf lýsa mæðgurnar bar­átt­unni sem þær hafa háð við kerfið, órétt­læt­inu við að lög­reglu­mann­inum hafi aldrei verið vikið frá störfum og martröð­inni sem rætt­ist þegar hann mætti í útkall heim til þeirra. Þess má geta að mað­ur­inn sem um ræðir hefur þrisvar verið kærður fyrir kyn­ferð­is­brot en aldrei verið vikið úr starfi, hvorki tíma­bundið né að fullu.

Halldóra lýsir því í sam­tali við Mannlíf að hún hafi staðið frammi fyrir því að mað­ur­inn sem dóttir hennar kærði fyrir kyn­ferð­is­brot kom að heim­ili hennar til að taka skýrslu.

„Ég sagði að þessi maður væri alls ekki vel­kom­inn í mín hús“

„Það sem mér hefur þótt ólíð­andi er að við höfum verið sett í þá stöðu að ef við þyrftum á aðstoð lög­reglu að halda þá gætum við átt von á að mað­ur­inn sem við kærðum fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega á dóttur minni kæmi á vett­vang. Núna hefur sú martröð ræst. Ég spurði fyrir rælni hvað sá maður héti og þá kom í ljós að þetta var umræddur maður. Ég sagði að þessi maður væri alls ekki vel­kom­inn í mín hús og útskýrði ástæð­una fyrir lög­regl­unni. Eftir skraf og ráða­gerðir var hann sendur heim og kallað eftir rann­sókn­ar­lög­reglu­manni úr Reykja­vík, sem reynd­ist okkur afar vel. En eftir situr að hinn mætti á svæðið.“

Ríkislögreglustjóri vísar á ríkissaksóknara

Halldóra segir rík­is­lög­reglu­stjóra hafa brugð­ist í þessu máli, þar sem ábyrgðin hafi verið hans að víkja mann­inum frá störfum á meðan á rann­sókn­inni stóð. Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur gefið hins vegar út yfir­lýs­ingu vegna máls­ins þar sem ábyrgð­inni á mál­inu er hafnað, þvert á móti hafi emb­ættið leitað til rík­is­sak­sókn­ara og óskað eftir aðgangi að rann­sókn­ar­gögnum til að geta í fram­haldi tekið ákvörðun um upp­sögn lög­reglu­manns­ins. Þeirri beiðni hafi verið synjað á grund­velli „heim­ild­ar­skorts í lögum“, en synj­anir á afhend­ingu gagna í málum sem þessum væri stefnu­breyt­ing frá því sem tíðk­að­ist og rataði málið því þaðan á borð inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem að ákvörðun þessi hefði for­dæmi í öðrum málum. Þá vís­aði rík­is­lög­reglu­stjóri á lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna máls­ins: „Það er á for­ræði lög­reglu­stjóra að ákveða um til­færslu í starfi og við hvaða verk­efni lög­reglu­maður starfar,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Sigríður J. Frið­jóns­dóttir Rík­is­sak­sókn­ari segir að ekki hafi verið um stefnu­breyt­ingu að ræða.

Stundin hafði sam­band við rík­is­sak­sókn­ara, rík­is­lög­reglu­stjóra og bæði núver­andi og þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins  og leit­aði svara á þessu ósam­ræmi, þar sem  sam­kvæmt þessu virð­ist óljóst hvar ábyrgðin liggi þegar ákvarð­ana­taka um brott­vísan lög­reglu­manna er ann­ars vegar. Thelma Cl. Þórð­ar­dóttir, fjöl­miðla­full­trúi rík­is­lög­reglu­stjóra, segir að til að leysa emb­ætt­is­mann frá emb­ætti um stund­ar­sakir þurfi að vera „rök­studdur grunur um refsi­verða hátt­semi emb­ætt­is­manns, sem ef sönn reyn­ist, sé það alvar­leg að við­kom­andi telj­ist eigi verður eða hæfur að rækja starf­ann sem emb­ætt­is­maður“. Í þessu máli hefði lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu getað fært lög­reglu­mann­inn til í starfi, en hann starf­aði í sama bæj­ar­fé­lagi og mæðgurnar bjuggu í.

Þá segir hún að „ekki væri unnt án rann­sókn­ar­gagna máls­ins eða nægj­an­legra upp­lýs­inga um máls­at­vik þess að taka svo íþyngj­andi stjórn­valds­á­kvörðun, sem lausn frá emb­ætti um stund­ar­sakir er“. Hins vegar kemur fram í svari Sigríðar J. Frið­jóns­dóttur, rík­is­sak­sókn­ara, til Stund­ar­innar að rík­is­sak­sókn­ari hafi sent „rík­is­lög­reglu­stjóra allar upp­lýs­ingar um málið vegna fyr­ir­hug­aðrar ákvarð­ana­töku hans um það hvort veita ætti við­kom­andi lög­reglu­manni lausn frá störfum“. Því hafi ekki verið um stefnu­breyt­ingu að ræða, líkt og fram kemur í yfir­lýs­ingu rík­is­lög­reglu­stjóra.

Var ekki færður til í starfi

Haraldur Johann­es­sen Rík­is­lög­reglu­stjóri hafnar því að hafa brugð­ist í mál­inu.

Rétt er að þó svo að rík­is­lög­reglu­stjóri hefði ekki getað fengið öll gögn afhent til þess að geta í fram­haldi tekið ákvörðum um brott­rekst­urs hins ákærða úr starfi, tíma­bundið eða að fullu, var lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins heim­ilt að færa þann ákærða til í starfi á meðan rann­sókn stóð yfir, sem hann gerði ekki. Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, núver­andi lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, segir þessu máli hafa verið lokið fyrir sína tíð, hún geti ekki svarað fyrir þær ákvarð­anir sem teknar voru af for­vera sínum og hvers vegna maður sem í þrí­gang hafi verið kærður fyrir kyn­ferð­is­brot hafi aldrei verið vikið úr starfi eða færður til. Hún segir lög­regl­una ekki búa yfir neinum gagna­banka um hvaða lög­reglu­maður sé kall­aður í hús og hvenær, og þá geti lög­reglan ekki séð neins staðar fyrri sögu um hvort að lög­reglu­mað­ur­inn hafi verið kærður áður. Samkvæmt því mætti ætla að svip­aðar eða sömu aðstæður gætu komið upp aftur, en aðspurð út í þetta segir Thelma Cl. Þórð­ar­dóttir að í LÖKE séu haldin skrá um öll kæru­mál.

„Þetta er algjör­lega for­veri minn sem tók  þá ákvörðun.“

Sigríður Björk: „Við erum ekki með neinn gagna­banka um það hver er kall­aður í hvaða hús og hvenær, annað hvort er maður í vinnu eða ekki. Og þessu máli var lokið fyrir mína tíð.“ 

Blaða­maður: Þannig að því var lokið og þið gátuð ekk­ert séð fyrri sögu um að hann hafi verið kærður áður?

Sigríður Björk: „Það alla­vega væri ekki hægt að sjá nein­staðar.“ 

Blaða­maður: Og þið getið ekki heldur svarað því hvers vegna lög­reglu­maður sem hefur í þrí­gang verið kærður sé enn að störfum?

Sigríður Björk: „Þetta var fyrir 2011, ég var ekki á staðnum. Það þarf að skoða gögnin og reyna að rekja aftur á bak. En á þess­ari stundu er ég bara ekki með nein svör við því. Þetta er algjör­lega for­veri minn sem tók  þá ákvörðun.“ 

Ábyrgð ríkislögreglustjóra að vísa frá störfum

Í svari inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn frá Halldóru kemur fram það sé á ábyrgð rík­is­lög­reglu­stjóra að víkja lög­reglu­mönnum frá störfum, að því er Mannlíf greinir frá. Því er ljóst að ábyrgðin á að taka ákvörðun um brott­vísan lög­reglu­manns meðan rann­sókn stóð yfir var hjá rík­is­lög­reglu­stjóra en ekki  rík­is­sak­sókn­ara eins og fram kom í yfir­lýs­ingu þess fyrr­nefnda. Þegar Stundin leit­aði svara til Stefáns Eiríksonar, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, um hvers vegna lög­reglu­mað­ur­inn hafi ekki verið færður til meðan rann­sókn stóð yfir sagð­ist hann ekki mega tjá sig um ein­stök mál og benti á rík­is­lög­reglu­stjóra, sem vísar til þess að hann hafi skort upp­lýs­ingar frá rík­is­sak­sókn­ara, sem rík­is­sak­sókn­ari hafnar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögreglurannsókn

Hvæst og hrækt á múslima í Breiðholti: „Taldi lögreglan í alvöru ekki mikilvægt að tryggja öryggi fjölskyldunnar?“
FréttirLögreglurannsókn

Hvæst og hrækt á múslima í Breið­holti: „Taldi lög­reglan í alvöru ekki mik­il­vægt að tryggja öryggi fjöl­skyld­unnar?“

Þórunn Ólafs­dóttir segir frá árásinni sem nú er rann­sökuð sem hat­urs­glæpur. „Kona veitt­ist að þeim, fyrst með ókvæð­is­orðum en svo bætti hún í og hrækti á þau og gerði til­raunir til að rífa í hijab kvenn­anna sem er þekkt aðferð hat­urs­glæpa­manna til að nið­ur­lægja múslima.“
Snappari sendi frá sér yfirlýsingu um sögusagnir af meintu sjálfsvígi manns
Fréttir

Snappari sendi frá sér yfir­lýs­ingu um sögu­sagnir af meintu sjálfs­vígi manns

„Ég tel það ekki vera mér að kenna ef hann hefur fyr­ir­farið sér,“ segir Jóhannes Gísli Egg­erts­son snapp­ari, í yfir­lýs­ingu um sögu­sagnir þess efnis að maður hefði svipt sig lífi í kjöl­far tál­beitu­að­gerðar hans. Í síð­ustu viku birti hann mynd­band af manni sem hafði mælt sér mót við 14 ára stúlku. Lög­reglan veitir engar upp­lýs­ingar en segir að slíkt tál­beitu­mál sé til rann­sóknar.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár