Eggjasmyglari bíður eftir löggunni: Keypti hluta smyglvarnings í búð

Maður sem var tek­inn með egg úr frið­uðum fuglum í Norrænu í fyrra hefur ekk­ert heyrt í lögg­unni.

Eggjasmyglari bíður eftir löggunni: Keypti hluta smyglvarnings í búð
Tíu himbrima­egg Meðal þess sem Gunnar var með í fórum sínum í Norrænu voru tíu himbrima­egg en himbrim­inn er frið­aður fugl á Íslandi. Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

„Dettur þér í hug að ég ætli að segja þér það? Það er bara eins og sagt er: No komment,“ segir Gunnar Gunn­ars­son, íbúi á Húsavík, sem var tek­inn með 100 egg úr íslenskum fuglum í Norrænu á leið­inni úr landi í ágúst í fyrra, þegar hann er spurður að því hvað hafi vakað fyrir honum með eggja­smygl­inu. Eggjunum var pakkað inn í sæl­gæt­is­dunka. Meðal ann­ars var um að ræða egg frið­aðra fugla, smyrils­egg, flór­goða­egg og ein tíu himbrima­egg auk lang­víu­eggja. Blásið er úr eggj­unum þannig að skurnin ein stendur eftir og eru þau svo seld til erlendra safn­ara. „Það eru ýmsir sem hafa áhuga á þessu. Líka nátt­úru­gripa­söfn og svo­leiðis og guð má vita hvað,“ segir mað­ur­inn. 

Langvíueggin fengin í búð

Mál manns­ins var sent frá Lög­regl­unni á Egils­stöðum til Lög­regl­unnar á Akureyri en lög­reglan þar í bæ seg­ist ekki vera með málið á sínu borði. Gunnar seg­ist ekk­ert hafa heyrt frá lög­regl­unni eftir að hann var tek­inn með eggin. „Ég hef ekki heyrt hósta eða stunu frá þeim. Ég veit ekk­ert, minna en þú.“

Gunnar segir að hann svari engu um það hvort hann hafi smyglað eggjum áður eða hvort háar fjár­hæðir fáist fyrir slík egg erlendis. „No komment. En þetta er alveg stór­kost­leg frétt. Sér­stak­lega þar sem hluti eggj­anna var keyptur út í búð, til dæmis lang­víu­eggin,“ segir Gunnar. 

„Ég myndi giska á að þetta sé algeng­ara en fólk heldur“

Algengara en fólk heldur

Gunnar seg­ist ekk­ert ætla að segja um þetta mál fyrr en hann hafi heyrt í lög­regl­unni. „Ég hef ekki heyrt neitt í rottu­geng­inu. Þangað til ætla ég ekki að segja neitt en það væri gaman að vita hver staðan er á þessu,“ segir Gunnar.

Aðspurður hvort hann telji að slíkt eggja­smygl sé algengt á Íslandi, segir Gunnar að hann telji að minnsta kosti að sjald­gæft sé að eggja­smygl­arar séu staðnir að verki. „Það er lík­lega frekar sjald­gæft að þetta kom­ist upp. Já, þetta er lok­aður heimur fyrir flesta; ég myndi giska á að þetta sé algeng­ara en fólk heldur. Þetta er bara alveg eins og með hassið, held ég,“ segir Gunnar. 

ingi@stundin.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögreglurannsókn

Hvæst og hrækt á múslima í Breiðholti: „Taldi lögreglan í alvöru ekki mikilvægt að tryggja öryggi fjölskyldunnar?“
FréttirLögreglurannsókn

Hvæst og hrækt á múslima í Breið­holti: „Taldi lög­reglan í alvöru ekki mik­il­vægt að tryggja öryggi fjöl­skyld­unnar?“

Þórunn Ólafs­dóttir segir frá árásinni sem nú er rann­sökuð sem hat­urs­glæpur. „Kona veitt­ist að þeim, fyrst með ókvæð­is­orðum en svo bætti hún í og hrækti á þau og gerði til­raunir til að rífa í hijab kvenn­anna sem er þekkt aðferð hat­urs­glæpa­manna til að nið­ur­lægja múslima.“
Snappari sendi frá sér yfirlýsingu um sögusagnir af meintu sjálfsvígi manns
Fréttir

Snappari sendi frá sér yfir­lýs­ingu um sögu­sagnir af meintu sjálfs­vígi manns

„Ég tel það ekki vera mér að kenna ef hann hefur fyr­ir­farið sér,“ segir Jóhannes Gísli Egg­erts­son snapp­ari, í yfir­lýs­ingu um sögu­sagnir þess efnis að maður hefði svipt sig lífi í kjöl­far tál­beitu­að­gerðar hans. Í síð­ustu viku birti hann mynd­band af manni sem hafði mælt sér mót við 14 ára stúlku. Lög­reglan veitir engar upp­lýs­ingar en segir að slíkt tál­beitu­mál sé til rann­sóknar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár