Snappari sendi frá sér yfirlýsingu um sögusagnir af meintu sjálfsvígi manns

„Ég tel það ekki vera mér að kenna ef hann hefur fyr­ir­farið sér,“ segir Jóhannes Gísli Egg­erts­son snapp­ari, í yfir­lýs­ingu um sögu­sagnir þess efnis að maður hefði svipt sig lífi í kjöl­far tál­beitu­að­gerðar hans. Í síð­ustu viku birti hann mynd­band af manni sem hafði mælt sér mót við 14 ára stúlku. Lög­reglan veitir engar upp­lýs­ingar en segir að slíkt tál­beitu­mál sé til rann­sóknar.

Snappari sendi frá sér yfirlýsingu um sögusagnir af meintu sjálfsvígi manns
Snapchat Jóhann­esar Horft hefur verið 176 þús­und sinnum á mynd­band Jóhann­esar á Facebook.

Jóhannes Gísli Egg­erts­son, sem er með vin­sælan Snapchat-reikn­ing undir nafn­inu Jóa Lífið, sendi frá sér yfir­lýs­ingu fyrr í dag þar sem hann greindi frá sögu­sögnum þess efnis að maður, sem hann mynd­birti í tál­beitu­að­gerð síð­asta föstu­dag, hefði jafn­vel svipt sig lífi. Jóhannes hafði ekki fengið stað­fest­ingu á þessum sögu­sögnum þegar hann birti yfir­lýs­ing­una á Facebook, en sagð­ist líta svo á að „ég tel það ekki vera mér að kenna ef hann hefur fyr­ir­farið sér“.

Tekið skal fram að engar heim­ildir benda til þess að mað­ur­inn hafi svipt sig lífi og eru yfir­lýs­ingar þess efnis á sam­fé­lags­miðlum byggðar á sögu­sögnum.

Gunnar Rúnar Svein­björns­son, upp­lýs­inga­full­trúi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, neit­aði að svara spurn­ingum um málið þegar Stundin leit­aði upp­lýs­inga þar. Hann stað­festi þó að lög­reglan hefði til rann­sóknar mál sem leiða má beint af tál­beitu­að­gerð óbreytts borg­ara und­an­farna viku. Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur beðið fólk um að birta ekki mynd­bönd af þessu tagi, heldur senda þau til lög­reglu.

Mynd­bandið hefur verið skoðað 180 þús­und sinnum á Facebook. Hér er and­lit manns­ins afmáð.

Jóhannes villti á sér heim­ildir á net­inu þar sem hann þótt­ist vera fjórtán ára stúlka og eftir sam­tal við mann­inn, sem nefndi sig gradur­gamli4, mælti hann sér mót við hann, undir því yfir­skyni að hún fengi ís. Þá hafði Jóhannes, sem 14 ára stúlka, beðið mann­inn um mynd af honum. Áður hafði mað­ur­inn spurt hvort henni þætti í lagi að hann væri 52 ára gam­all. Hann upp öll sam­skipti við mann­inn og birti beint á Snapchat, sem og á síðu sinni á Facebook. Maðurinn þvertók fyrst fyrir að hafa mælt sér mót við fjórtán ára stúlku en við­ur­kenndi síðan að hann hefði gert það til að bjóða henni upp á ís, „ekk­ert annað“. Hann grát­bað Jóhannes um að birta ekki mynd­bandið. „Ekki eyði­leggja líf mitt,“ sagði mað­ur­inn og Jóhannes spurði hvernig hann væri að því, þegar hann hefði sjálfur sóst eftir sam­neyti við unga stelpu og menn sem gerðu slíkt mættu eiga von á því að hann myndi mæta á svæðið til þess að afhjúpa þá. Hann sagði mann­inum, sem hann hafði áður kallað „kvik­indi“, til synd­anna og greindi frá reiði sinni, áður en hann birti ekki bara mynd­bandið heldur einnig öll sam­skipti sem höfðu farið á milli tál­beit­unnar og manns­ins, með við­kvæmum myndum og upp­lýs­ingum um mann­inn.

Um leið og Jóhannes greindi frá því í yfir­lýs­ingu sinni á Facebook að hann hefði engar heim­ildir fyrir meintu sjálfs­vígi, aðeins sögu­sagnir, sagð­ist hann hafa lært mikið af þessu. „Mun ég í næsta skipti blörra fyrir and­litið á því mynd­skeiði sem almenn­ingur fær og svo afhenda lög­reglu upp­runa­lega mynd­bandið,“ skrifar Jóhannes. „Ég vil líka láta það fylgja að ég tel það ekki vera mér að kenna ef hann hefur fyr­ir­farið sér.“ 

Snapparinn á að baki brotaferil 

Sjálfur á Jóhannes að baki afbrota­feril og var í nóv­em­ber 2016 dæmdur í sex mán­aða fang­elsi fyrir umfangs­mikil fjár­svik úr vef­verslun ELKO. 

Í þrjú skipti áður hlaut hann refsi­dóma fyrir auðg­un­ar­brot, að því er fram kemur í umfjöllun DV. Hann var dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi til tveggja ára í maí 2012. Þá var hann dæmdur í níu mán­aða fang­elsi, þar af sex mán­uði bundna skil­orði, í jan­úar 2014 fyrir marg­vís­leg brot, meðal ann­ars fyrir að selja sama sím­ann þrisvar sinnum á bland.is. Síðar sama ár var hann dæmdur í eins mán­aða fang­elsi fyrir fjár­svik, skil­orðs­bundið til tveggja ára.

Í upp­gjör­svið­tali við DV í mars 2015 sagði hann:  „Fortíðin mun alltaf elta mig en ég þarf bara að fá tíma til að sýna fólki hvernig ég er orð­inn í dag. Ávinna mér traust.“

Hann hefur komið víða við, sér í lagi í net­við­skiptum, selt hjálp­ar­tæki ást­ar­lífs­ins, stofnað tón­list­ar­veitu og rekið slúður- og knatt­spyrnu­vefi. Þá greindi DV frá því að hann hefði keypt lénið Fretta­tim­inn.is í jan­úar síð­ast­liðnum og að fréttir merktar honum hefðu birst á síð­unni.

Und­an­farið hefur hann vakið athygli fyrir Snapchat-reikn­ing sinn en þetta var ekki í fyrsta sinn sem hann lagði gildru fyrir meinta kyn­ferð­is­glæpa­menn. Í sam­tali við Ísland í dag, sem sýnt var á Stöð 2 í kvöld, sagð­ist hann hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­broti sextán ára gam­all.

Yfirlýsing Jóhannesar í heild sinni

Ég birti fyrir stuttu mynd­band af aðila sem var að sækj­ast eftir sam­neyti við 14 ára stúlku (Maðurinn sjálfur fæddur 1966).

Myndband þetta hefur farið allt of hratt um netið og átti ég í raun ekki von á eins miklum við­brögðum komu.

Að mér skilst þá ganga sögu­sagnir um það að aðil­inn sem um ræðir sé lát­inn en engin stað­fest­ing hefur komið á því.

Það sem ég hef lært á þessu er mjög mikið og mun ég í næsta skipti blörra fyrir and­litið á því mynd­skeiði sem almenn­ingur fær og svo afhenta lög­reglu upp­runa­lega mynd­bandið.

Ég vill þakka fyrir allan þann stuðn­ing sem ég hef fengið og alla þá sem höfðu sam­band við mig þegar sagan um að hann hefði fyr­ir­farið sér fór af stað.

Ég vill líka láta það fylgja að ég tel það ekki vera mér að kenna ef hann hefur fyr­ir­farið sér.

Hann er til­bú­inn að skemma líf 14 ára stúlkna og guð má vita hversu mörg líf honum hefði tek­ist að skemma hefði hann ekki verið böstaður.

Ég tek mér nú smá frí frá snapp­inu, síð­unni og öllu sem teng­ist "Jóa Lífið" en kem sterkur til baka eftir smá tíma. 

Ég er samt ekki hættur, það er of mikið af þeim þarna úti og þeir verða stöðv­aðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár