Frambjóðandi sló son sinn: „Þú veist að þú áttir þetta skilið“

Kristinn Sæmunds­son, þriðji maður Karla­list­ans, var hand­tek­inn vegna akst­urs undir áhrifum fíkni­efna með son sinn í bílnum. Hann seg­ist vera fórn­ar­lamb í for­ræð­is­deilu.

Frambjóðandi sló son sinn: „Þú veist að þú áttir þetta skilið“
Sýslu­maður tak­mark­aði umgengni Gögn sem Stundin hefur undir höndum stað­festa að sýslu­maður tak­mark­aði ekki umgengni Kristins við börnin hans vegna ásak­ana móður heldur vegna stað­festra atvika og frá­sagna hans sjálfs og ann­ars sonar hans. Mynd: Kristinn Magnússon / Morgunblaðið

„Þú veist að þú áttir þetta skilið. Á ein­hver skilið hvernig þú kemur fram við hann? Má maður láta eins og asni í öllum allan dag­inn allt í kringum sig, er það allt í lagi? En pabbi má ekki slá þig utan undir þegar pabbi er búinn að fá nóg?“

Þannig kemst Kristinn Sæmunds­son að orði við son sinn í mynd­bandi sem vitnað er til í umsögn sér­fræð­ings í mál­efnum barna sem sýslu­maður kvaddi sér til aðstoðar í umgengn­is­deilu Kristins við barns­móður sína. 

Kristinn skipar 3. sæti á fram­boðs­lista Karla­list­ans í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Flokk­ur­inn leggur áherslu á bætta stöðu feðra og rétt þeirra til að umgang­ast börnin sín. 

Nýlega steig Kristinn fram í Harma­geddon-við­tali og opn­aði sig um raunir sínar vegna deilu um umgengni við börnin sín. „Núna í vetur fæ ég úrskurð í mínu máli loks­ins eftir þrjú ár að velkj­ast í gegnum kerfið og konan kemst upp með allar lygar og ásak­anir og þvælu,“ sagði hann. „Já, ég er fórn­ar­lamb í svona for­ræð­is­deilu þar sem gengið er fram með lygum og fölskum ásök­unum.“ 

Barns­móðir Kristins kaus að tjá sig ekki um málið þegar eftir því var leitað, en gögn sem Stundin hefur undir höndum stað­festa að sýslu­maður tak­mark­aði ekki umgengni Kristins við börnin hans vegna ásak­ana móður heldur vegna stað­festra atvika og frá­sagna hans sjálfs og ann­ars sonar hans. 

Líkamsárásakærur 
felldar niður

Kristinn Sæmunds­son var hand­tek­inn í febr­úar 2015 fyrir að aka með 9 ára son sinn undir áhrifum kanna­bis­efna. Í mars sama ár leit­aði barns­móðir hans til Kvenna­at­hvarfs­ins og sagði frá því að Kristinn hefði beitt hana ofbeldi. Kvenna­at­hvarfið gerði barna­vernd við­vart, en slíkt hið sama gerði geð­svið Land­spít­al­ans nokkrum dögum síðar eftir komu Kristins á spít­al­ann. Þau slitu sam­vistir nokkru síðar og í árs­byrjun 2016 óskaði hún eftir því að sýslu­maður tæki ákvörðun um umgengni föður við börnin.

Við með­ferð umgengn­is­máls­ins kom fram að sam­kvæmt mið­lægum gagna­grunni lög­reglu væri barns­móðir Kristins skráð sem brota­þoli í heim­il­is­of­beldis- og lík­ams­árás­ar­máli frá 2014. Þá hafði Kristinn stöðu kærðs í 21 máli á tíma­bil­inu 1995 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár