Áhyggjur af dóttur minni voru hunsaðar árum saman

Hulda Hrund Sig­munds­dóttir var hvött til að hvíla sig og fara á for­eldra­nám­skeið, þegar hún lýsti veru­legum áhyggjum af dóttur sinni. Á fimmta ári fékk hún loks grein­ingu þar sem í ljós kom að hún var á ein­hverfu­rófi, með Asperger-heil­kenni og ADHD.

Áhyggjur af dóttur minni voru hunsaðar árum saman
Ekki hlustað Ekki var hlustað á Huldu Hrund þegar hún reyndi að koma fag­að­ilum í skiln­ing um að eitt­hvað amaði að dóttur sinni. Huldu var sagt að hún væri að ímynda sér hlut­ina og henni sagt að hvíla sig. Það var ekki fyrr en á fimmta ári að stúlkan var greind með fötlun.

Hulda Hrund Sig­munds­dóttir, móðir fatl­aðrar stúlku, segir frá því þegar hún þurfti að berj­ast fyrir því að barnið sitt væri rann­sakað. Henni var sagt af fag­að­ilum að dóttir hennar væri ekki fötluð, að þetta væri ímyndun í henni sem móður, og lagt til að hún sæti for­eldra­nám­skeið og hvíldi sig. Á tíma­bili fór hún að efast um eigin geð­heilsu og missti um leið trúna á kerf­inu.

Móðurhjartað veit

„Ég vissi að eitt­hvað amaði að dóttur minni, í raun finnst mér ég alltaf hafa vitað í hjarta mér að það væri eitt­hvað að. Við mæðgur tengd­umst ekki alveg eðli­lega, hún var frá­brugðin öðrum börnum. Það var sár­ara en tárum taki  að fylgj­ast með dóttur minni una sér illa í fangi mér, sem er til­finn­ing sem engin móðir vill finna. Öll snert­ing var henni erfið og átti hún erfitt með að  horfa í augun mín. Þegar dóttir mín fer í tveggja og hálfs árs skoðun sést að ekki var allt með felldu. Hún kom ekki vel út úr þeim þroskaprófum sem lögð voru fyrir hana. Að auki gekk hún í skrokk á mér og missti algjör­lega stjórn á skapi sínu meðan á skoð­un­inni stóð. Hún réði ekki við sig og aðstæð­urnar voru henni um megn. Fag­að­il­arnir á Heilsu­gæslu Hafn­ar­fjarðar lýstu áhyggjum sínum yfir nið­ur­stöðum þroska­mats­ins og úr varð að hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn sem fram­kvæmdi athug­un­ina skrif­aði með henni bréf til skóla­skrif­stofu Hafn­ar­fjarðar. Í bréf­inu var beiðni sem hljóð­aði á þá leið að hún þyrfti að vera í for­gang inn á leik­skóla vegna þess að sterkur grunur lægi fyrir um óeðli­legan þroska. Enda mik­il­vægt að bregð­ast hratt við sýni börn aug­ljós merki um fatl­anir og þroska­skerð­ingu og koma þeim undir hand­leiðslu fag­að­ila sem fyrst, enda löngu sannað mik­il­vægi snemmtækrar íhlut­unar,“ segir Hulda.

Það var ekki hlustað

Hulda Hrund Sig­munds­dóttir

„Dóttir mín fær inn­göngu í leik­skóla og við for­eldr­arnir báðir von­uð­umst til þess og trúðum að nú færi bolt­inn að rúlla. Að mál dóttur okkar myndi falla í eðli­legan far­veg og hún fengi loks þá aðstoð sem hún svo sár­lega þurfti. Að nú fengjum við svör við því hvað væri að hrjá dóttur okkar. En þar stopp­aði bolt­inn. Leik­skól­inn kaus að fara ekki með mál stúlkunnar okkar lengra. Þessi ákvörðun var tekin þrátt fyrir að hún hafa fengið fall­ein­kunn í ung­barna­skoð­un­inni og við for­eldr­arnir haf­andi lýst áhyggjum okkar af bæði slökum mál­þroska hennar, and­fé­lags­legri hegðun og fælni. Orð okkar voru með öllu hunsuð. Í stað þess að leyfa dóttur okkar að njóta vafans og áhyggjum okkar for­eldr­anna mætt með opnum eyrum, þá var stungið upp á for­eldra­nám­skeiði og góðri hvíld. Að áhyggj­urnar væru sjálf­sagt bara í höfð­inu á mér, móð­ur­inni. Þarna var ég ein­stæð og ég furða mig enn á því af hverju aðeins ég hafi verið hvött til þess að fara á for­eldra­nám­skeið, en ekki faðir hennar, þar sem við deildum for­ræði yfir dóttur okkar. En þegar ég horfi til baka sé ég ekki aðra ástæðu en að það hljóti að hafi verið vegna þess að ég barð­ist af hörku og var um leið dæmd bæði væni- og móð­ur­sjúk. Á þessum tíma­punkti hélt ég að ég væri end­an­lega búin að missa vitið. Ég tek það fram að allan þann tíma er á þessum barn­ingi okkar stóð fylgir bréfið frá heilsu­gæsl­unni með dóttur minni, en það hafði ekk­ert að segja, bréfið var hunsað sama hversu oft við vitn­uðum í það. Þarna var glufa í kerf­inu sem fólk getur farið með að vild, aum glufa sem dóttir mín leið fyrir.“

Loks kom greiningin

„Ári seinna er dóttir mín orðin rúm­lega fjög­urra ára gömul og ég finn hana smátt og smátt renna úr fingrum mér. Litla orku­mikla stelpan mín var komin alveg út í horn til­finn­inga­lega og ég vissi ekki hvernig ég ætti að hjálpa henni,“ segir Hulda og gerir hlé á máli sínu. Það er ekki hægt að lýsa til­finn­ing­unni sem hel­tekur mann við að horfa á barnið sitt á  vondum stað og vera um leið sem for­eldri með öllu hjálp­ar­laus og geta svo tak­markað gert til að hjálpa. Enda hafði ég ekki vit­neskju til þess. Ég stóð á gati. Þetta tíma­bil er í móðu hjá mér, ég var í bar­áttu­ham eins og særð ljónynja að berj­ast fyrir hvolp­unum sínum. Á sama tíma­punkti var starfs­fólk leik­skól­ans sem hlúði að henni á degi hverjum orðið ráð­þrota. En þá fyrst var kall­aður til sál­fræð­ingur sem skimaði hana og sagði nauð­syn­legt að hún færi taf­ar­laust í frek­ari rann­sóknir þar sem dóttir mín sýndi sterk ein­kenni tauga­rösk­unar. Þegar þarna er komið ger­ast hlut­irnir hratt og í gang fer heil­mikið ferli. Hún er send til tauga­sál­fræð­ings og er greind með ADHD, þaðan lá leiðin til sér­fræði­læknis í rösk­unum á ein­hverfu­rófi sem greinir hana með ein­hverfu. Nið­ur­staða grein­ing­ar­innar var afdrátt­ar­laus, dóttir mín var greind á ein­hverfu­rófi, með Asperger-heil­kenni og ADHD.“

Sjálfsásökunin verst

Margir for­eldrar barna með fatl­anir upp­lifa djúp­stæða sorg þegar börn þeirra grein­ast, en hjá Huldu var raunin önnur. „Mér fannst ég hafa verið búin að bera heim­inn allan á öxlum mér til lengri tíma og þegar grein­ingin kom fann ég fyrir þessum djúp­stæða létti. Ég hafði þá áður verið búin að syrgja það að barnið mitt væri ekki heil­brigt, ég vissi alltaf að það væri eitt­hvað ekki í lagi. Loksins fékk ég að vita  hvað amaði að barn­inu mínu og gat byrjað að veita henni við­eig­andi aðstoð, sem hún þráði. Það er nefni­lega þannig að maður þarf að vita hvað sé að til þess að geta sótt sér við­eig­andi verk­færi til upp­bygg­ingar. En eftir grein­ing­una fór allt upp á við hjá stelp­unni minni og hægt og rólega kynn­umst við henni upp á nýtt og hún fer að blómstra. Vissu­lega koma tímar þar sem ég ótt­ast fram­tíð hennar, en það er bara eitt í boði og það er áfram veg­inn,“ segir Hulda og bætir við að jafn­framt hafi grein­ingin um leið verið sorg­leg stað­fest­ing á því fyrir sig per­sónu­lega að hún væri í raun ekki van­hæf móðir né móð­ur­sjúk. Að barnið hennar væri ekki eins og það væri út af slæmum upp­eld­is­að­ferðum, heldur vegna eigin fötl­unar.

Gerði allt sem hún gat                                      

„Ég veit að ég gerði allt sem ég gat og kunni á þessum tíma. Þó þykir mér sár­ast að hugsa til þess að dóttir mín hafi misst af heilu ári í snemmtækri íhlutun. Það hefði ekki þurft að ger­ast hefði verið brugð­ist við fag­mann­lega strax í upp­hafi. En ég við­ur­kenni þó fús­lega að ég kenndi sjálfri mér um að hafa ekki barist meira fyrir henni svona eftir á. Það er þessi eilífa sjálfs­á­sökun. Þó veit ég að á þeim tíma gerði ég allt sem í mínu valdi stóð,“ segir Hulda og leggur ríka áherslu á mál sitt. „Það er oft talað um þessa bar­áttu sem við for­eldrar fatl­aðra barna þurfum að etja, en þarna fékk ég að kynn­ast henni blákalt og það áður en barnið mitt fékk form­lega grein­ingu. Við for­eldrar fatl­aðra barna eigum ekki að þurfa að vera í þess­ari eilífu bar­áttu fyrir börn­unum okkar. Börnin okkar eiga rétt­indi eins og aðrir og það er sam­fé­lags­ins að standa vörð um þau rétt­indi. Þessi bar­átta sem for­eldrar fatl­aðra barna eru að heyja dag hvern, setur óþarfa pressu á fjöl­skyldur fatl­aðra barna sem oft eru ber­skjald­aðar og við­kvæmar fyrir, reyn­andi að gera sitt besta dag frá degi. Það gleym­ist stundum að fötluð börn eiga oft önnur systk­ini sem hlúa þarf að og til að veita þeim þær frum­þarfir þurfa mamma og pabbi að hafa orku á sál og lík­ama.“                      

Líkaminn sagði stopp

Hulda segir mik­il­vægt að huga að eigin heilsu og hlusta á inn­sæið sitt, enda hefur hún þurft að að gjalda lík­am­lega og and­lega í bar­átt­unni um vel­ferð dóttur sinnar. „ Ég gekk algjör­lega fram af sjálfri mér í byrjun grein­ing­ar­ferl­is­ins og huns­aði allar við­vör­un­ar­bjöll­urnar. Heilsan mín stefndi í brot­sjó og skildi mig eftir slyppa og snauða and­lega og lík­am­lega. Í ein­lægni sagt fékk ég alvar­legt taugá­fall og þurfti að leita mér lækn­is­að­stoðar, en náði svo með heil­mik­illi sjálf­skoðun að vinna vel úr mínum málum.“

„Í ein­lægni sagt fékk ég alvar­legt taugá­fall“

Hulda vill brýna á mik­il­vægi þess að for­eldrar fatl­aðra barna og fólks með þung heim­ili, búi til aðgerð­ar­á­ætlun fyrir líf sitt. Á hún þá við að hlúa vel að grunn­þör­f­unum og setja fyrst súr­efn­is­grímuna á sjálfan sig. „Það er stað­reynd að skiln­að­ar­tíðni for­eldra fatl­aðra barna er gríð­ar­lega há og til þess að standa keik þarf að passa vel upp á hjóna­bandið. En það gerum við hjónin með viku­legum stöðu­fundum, þar sem við förum yfir málin í róleg­heit­unum. Þá tökum við fyrir hvað við getum gert betur sem par og hvernig við ætlum að tækla og kom­ast í gegnum næstu daga, því þetta dag­lega líf getur stundum verið hel­víti snúið. Þetta fyr­ir­komu­lag hentar okkur vel og fyrir okkur hrein­lega nauð­syn­legt. Eins er mik­il­vægt fyrir mig að hlúa vel að mér sem ein­stak­lingi. Söng­ur­inn fram­kallar hjá mér vellíðan og ég gæti þess að gefa mér tíma fyrir hann. Fyrir mér er söng­ur­inn besta leiðin til þess að hlaða batt­er­íin, sem eru gjörn á að tæm­ast í amstri dags­ins. Það sem passar einum passar þó ekki endi­lega öðrum. En þá er bara að prufa sig á áfram og finna sitt.“

Leitaði sér hjálpar

„Við for­eldrar fatl­aðra barna eigum að vera óhrædd að leita okkur aðstoðar. Það er óhjá­kvæmi­legt fyrir for­eldra barna með sér­þarfir að að lenda ekki í aðstæðum þar sem við þurfum hressi­lega að hugsa út fyrir rammann og upp koma aðstæður sem geta verið ansi snúnar. Í þeim aðstæðum hefur Sjón­ar­hóll komið okkur fjöl­skyld­unni til bjargar.

Sjón­ar­hóll er óháð ráð­gjaf­ar­mið­stöð sem gætir að rétt­indum fatl­aðra barna og stuðlar að bættum mögu­leikum fyrir þau í líf­inu. Eins er þess gætt að við for­eldrar  barna með sér­þarfir njótum lífs­kjara og jafn­réttis á pari við aðra for­eldra. Þetta er aðstoð í formi leið­sagnar fyrir okkur for­eld­rana í aðstæðum sem reyn­ast okkur flóknar, þær geta tengst skóla­málum barn­anna okkar og stuðn­ing varð­andi ýmis úrræði. Einnig er huggun og nauð­syn fyrir for­eldra fatl­aðra barna og systk­ina þeirra að vita að þeir séu ekki einir í bar­átt­unni og að það séu fleiri fjöl­skyldur að glíma við það sama.“

Fundu jafnvægið í sveitinni

Fyrir ári síðan ákváðu Hulda og mað­ur­inn hennar að flytja í Mývatns­sveit frá Hafn­ar­firði. Þetta var stór ákvörðun fyrir fjöl­skyld­una, sem vildi með flutn­ing­unum ein­falda líf sitt með því að kom­ast í sveita­loftið og kyrrð­ina. „Sjálf ákvörð­unin um að flytja var erf­ið­ust en svo small allt saman eftir að í sveit­ina var komið, það gekk ein­hvern veg­inn allt upp. Stelp­urnar okkar náðu að aðlag­ast fal­lega og þessi ein­faldi lífs­stíll og smæð Mývatns­sveitar smellpass­aði fyrir okkar fjöl­skyldumunstur. Hér er mun minni hraði og meiri tími skap­ast fyrir afslapp­aðar stundir með fjöl­skyld­unni. Í sveit­inni eru einnig færri börn sem verður til þess að dóttir mín ræður betur við félags­legar athafnir í nærum­hverf­inu vegna smæðar sam­fé­lags­ins. Það sem þó höf­uð­máli skiptir  er að hér í sveit­inni upp­lifi ég í fyrsta skipti að dóttir mín til­heyrir, hún á vini og henni veittur við­eig­andi stuðn­ingur. Það er það eina sem ég bið um, að dóttir mín fái að til­heyra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár