Eyþór efndi ekki loforðið í Árborg því það stóðst ekki lög en endurtekur nú leikinn í Reykjavík

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík, hafn­aði beiðni félags eldri borg­ara á Eyr­ar­bakka um afnám fast­eigna­skatts þegar hann var for­maður bæj­ar­ráðs Árborgar vegna þess að það stóðst ekki lög. Hafði áður lofað slíku afnámi, og lofar því nú í Reykja­vík þótt það stand­ist ekki lög.

Eyþór efndi ekki loforðið í Árborg því það stóðst ekki lög en endurtekur nú leikinn í Reykjavík
Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, vissi að afnám fast­eigna­skatts íbúa 70 ára og eldri stæð­ist ekki lög þegar hann kynnti kosn­inga­lof­orð sín í vor, enda hafði hann sjálfur hafnað til­lögu um slíkt sem for­maður bæj­ar­ráðs Árborgar árið 2012, einmitt á þeim grund­velli að laga­heim­ild skorti.

Félag eldri borg­ara á Eyr­ar­bakka hafði skorað á bæj­ar­ráðið að fella niður fast­eigna­skatta á íbúa 70 ára og eldri en því var hafnað af Eyþóri og bæj­ar­ráð­inu. Málið var tekið fyrir í mars árið 2012 og segir meðal ann­ars í bókun bæj­ar­ráðs­ins um málið: „Verður að telja að óheim­ilt sé lögum sam­kvæmt að verða við beiðni Félags eldri borg­ara á Eyr­ar­bakka um að fella niður fast­eigna­skatt hjá íbúum sem eru 70 ára eða eldri.“

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun fella niður fast­eigna­skatt á Reyk­vík­inga, 70 ára og eldri“

Þegar Eyþóri var bent á í apríl að honum og Sjálf­stæð­is­flokknum í Reykja­vík væri óheim­ilt sam­kvæmt lögum að efna slíkt lof­orð gagn­rýndi hann aðra fram­bjóð­endur. „Í stað þess að taka undir til­lögur okkar um að létta álögum á elstu sam­borg­ara okkar fara þau í laga­túlk­anir á því hvað borg­inni er heim­ilt,“ skrif­aði Eyþór á Facebook síðu sinni. „Það sem við erum að leggja til hefur verið gert í Vest­manna­eyjum við góðan orðstír um ára­bil.“ 

Í kjöl­far umræð­unnar um ólög­mæti afnáms fast­eigna­skatts­ins ítrek­aði Eyþór að skatt­ur­inn yrði afnum­inn. „Stjórn­mála­menn eiga að leita lausna, ekki finna afsak­anir fyrir því að létta ekki byrðum af fólki,“ skrif­aði Eyþór. „Ég tel að það sé ekki rétta lausnin við hús­næð­is­vand­anum að skatt­leggja eldri borg­ara út úr íbúð­unum sínum. Það er ómann­úð­legt. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mun fella niður fast­eigna­skatt á Reyk­vík­inga, 70 ára og eldri.“

Þannig virð­ist Eyþór ann­að­hvort ganga út frá því að lög­unum verði breytt eða ætla að ráð­ast í skatta­að­gerðir sem hann veit að stand­ast ekki lög. 

Var gerður afturreka með sama loforðið í Árborg

Eitt af aðal­kosn­inga­lof­orðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Árborg fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar árið 2006 var að afnema téðan fast­eigna­skatt ef flokk­ur­inn fengi lykla­völd að Árborg. Svo fór að Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mynd­uðu meiri­hluta­sam­starf og fólst í því sam­komu­lagi að Eyþór myndi taka við emb­ætti for­manns bæj­ar­ráðs að einu ári liðnu af kjör­tíma­bil­inu. Sam­starfið ent­ist hins vegar ekki lengi og sprakk stjórnin eftir fimm mán­aða sam­starf. Í kjöl­far þess mynd­uðu Sam­fylk­ingin, Vinstri Grænir og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn meiri­hluta.

Loforðið var hins vegar ekki gleymt og snemma í tíð nýja meiri­hlut­ans, í sept­em­ber árið 2007, bók­aði Eyþór á fundi bæj­ar­ráðs Árborgar að heim­ild væri í lögum til að fella niður fast­eigna­skatta á eldri borg­ara og lagði minni­hlut­inn fram til­lögu þess efnis. Meiri­hlut­inn bók­aði í kjöl­farið á sama fundi að heim­ildin næði aðeins til tekju­lít­illa elli- og örorku­líf­eyr­is­þega.

Í des­em­ber 2007 var til­lagan afgreidd af bæj­ar­ráði Árborgar með þeim hætti að hún var felld með fimm atkvæðum gegn fjórum atkvæðum full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Gert var grein fyrir atkvæði meiri­hlut­ans þar sem fram kom að útfærslan á inn­heimtu fast­eigna­skattar yrði að vera innan marka laga og byggj­ast á mál­efna­legum og lög­mætum sjón­ar­miðum.

Málinu lauk ekki þar. Í jan­úar 2008 lagði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fram sömu til­lögu og var hún felld á nýjan leik. Ári síðar var málið enn á nýju til umræðu hjá bæj­ar­ráði Árborgar. Bæj­ar­ráð­inu hafði borist bréf frá sam­göngu­ráðu­neyt­inu þar sem vísað var til úrskurðar ráðu­neyt­is­ins sem tók af allan vafa um hvort lög­mætt væri að afnema fasteig­anskatt án til­lits til tekna elli­líf­eyr­is­þega.

Þannig segir til dæmis í úrskurð­inum: „Því sé óheim­ilt að veita afslátt með vísan til þessa ákvæðis, án þess að tekið sé til­lit til tekna þeirra sem hans eiga að njóta. Fastur afsláttur eins og hann er ákveð­inn í reglum kærða, án til­lits til tekna, er því ekki í sam­ræmi við áskilnað ákvæð­is­ins um tekju­lága ein­stak­linga þar sem hann kemur öllum líf­eyr­is­þegum til góða, án til­lits til þess hvaða tekjur þeir hafa.“

Í kjöl­far bréfs sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins lagði Jón Hjart­ar­son, þáver­andi for­maður  Vinstri Grænna í Árborg, fram bókun. „Með bréfi þessu er stað­fest að marg­ít­rek­aðar til­lögur frá D-list­anum í Árborg um nið­ur­fell­ingu fast­eigna­gjalda hjá 70 ára og eldri stang­ast á við lög,“ sagði þar meðal ann­ars.

Eyþór þrá­að­ist hins vegar enn við og bók­aði: „Heimilt er að fella niður fast­eigna­skatta að fullu á eldri borg­ara með reglum sem sveit­ar­fé­lög setja hverju sinni.“

Kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Árborg árið 2006Eitt af helstu kosn­inga­lof­orðum Eyþórs og Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2006 var að afnema fast­eigna­skatt­inn á íbúa 70 ára og eldri.

Snerist hugur þegar Sjálfstæðisflokkurinn náði meirihluta

Árið 2010 vann Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hreinan meiri­hluta í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum og var Eyþór kjör­inn for­maður bæj­ar­ráðs Árborgar. Í mars 2012 barst bæj­ar­ráð­inu áskorun frá félagi eldri borg­ara á Eyr­ar­bakka um að fella niður fast­eigna­skatta íbúa 70 ára og eldri, rétt eins og Eyþór hafði áður lofað.

Málið var tekið fyrir á fundi bæj­ar­ráðs þar sem áskor­unin var afgreidd af bæj­ar­ráð­inu. Var nið­ur­staðan sú að óheim­ilt væri að fella niður fast­eigna­skatt án þess að taka til­lit til tekna. Það var það síð­asta sem heyrð­ist af gamla kosn­inga­lof­orði Sjálf­stæð­is­flokks­ins það kjör­tíma­bilið.

Kosningaloforð Eyþórs enn á ný sagt óheimilt af ráðuneyti

Í kjöl­far lof­orðs Eyþór og Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík að afnema skatt­inn árétt­aði sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytið að óheim­ilt væri að veita afslátt af fast­eigna­skatti án þess að til­lit væri tekið til tekna þeirra sem hans eiga að njóta. Þá var tekið fram í til­kynn­ing­unni að fram­kvæmd Vest­manna­eyj­ar­bæjar á inn­heimtu skatts­ins hefði verið til skoð­unar, en Eyþór hafði rök­studd laga­gildi kosn­inga­lof­orðs­ins á þeim grunni að Vest­manna­eyja­búar hefðu afnumið skatt­inn.

Ráðu­neytið benti á fram­kvæmd Vest­manna­eyja­bæjar hafi verið tekin til skoð­unar árið 2013, en bæj­ar­stjórn hafði á árunum 2012 og 2013 fellt niður fast­eigna­gjöld á íbúð­ar­hús­næði í eigu elli­líf­eyr­is­þega, 70 ára og eldri, sem nýtt var af þeim til búsetu, óháð tekjum. Bæj­ar­stjórn hafi sam­þykkt nýjar reglur árið 2015 þar sem afslátt­ur­inn var tekju­tengdur og ráðu­neytið því lokað mál­inu án þess að haf­ast frekar að. Samkvæmt upp­lýs­ingum á heima­síðu Vest­manna­eyja­bæjar sé afslátt­ur­inn enn tekju­tengdur og þar með ekki í sam­ræmi við lof­orð Eyþórs.

Loforð Eyþórs myndi kosta hálfan milljarð á ári

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá fjár­mála­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar hefði lof­orð Eyþórs og Sjálf­stæð­is­flokks­ins um afnám fast­eigna­skatts­ins skilað Reykja­vík­ur­borg 579 milljón krónum lægri tekjum í fyrra. Alls 4.300 manns hefðu bæst við þann hóp sem nú þegar fær skatta­af­slátt vegna lágra tekna, en þessi rúmi hálfur millj­arður króna hefði ein­göngu runnið til tekju­hærri hluta eldri borg­ara.

Reykja­vík veitir nú þegar tekju­lægri eldri borg­urum afslátt af fast­eigna­skatti. Samkvæmt áætl­unum fjár­mála­skrif­stof­unnar fyrir árið 2018 verður borgin af 489 millj­ónum króna vegna þessa, en afsláttur er veittur til ein­stak­linga með undir 5,2 millj­ónir króna í árs­tekjur og sam­skatt­aðra með undir 7,2 millj­ónir króna. Alls 6.238 Reyk­vík­ingar, 67 ára og eldri, munu fá þennan afslátt árið 2018. 4.516 af þeim hópi eru 70 ára og eldri og mundi því sá hluti ald­urs­hóps­ins sem fengi afslátt nær tvö­fald­ast yrði kosn­inga­lof­orð Sjálf­stæð­is­flokks­ins að veru­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sveitarstjórnarkosningar 2018

ÚttektSveitarstjórnarkosningar 2018

Laun íslenskra bæj­ar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæj­ar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borg­ar­stjóra New York og London. Báðir bæj­ar­stjórar eru á hærri launum en for­sæt­is­ráð­herra. Laun bæj­ar­stjóra Kópavogs hækk­uðu um tæp 58% á kjör­tíma­bil­inu og laun bæj­ar­stjóra Reykja­nes­bæjar um 36%. „Allt órétt­læti mun kalla á meiri óánægju,“ segir for­maður stétt­ar­fé­lags­ins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár